Morgunblaðið - 05.11.2015, Side 10
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég gekk á gúmmístíg-vélum í þessa tíu daga afþví ég vildi nota það semég átti, í stað þess að
verða mér úti um sérhæfðan
göngubúnað. Ég vildi ekki undir-
búa mig of mikið, bara ganga af
stað. Ég átti þessi ágætu stígvél og
þau komu að góðum notum og
dugðu vel. Mér skilst að það sé að
mörgu leyti hollara fyrir líkamann
heldur en að ganga á sérhönnuðum
hörðum gönguskóm. Með sérhæf-
ingunni vill gleymast hvað það er
sem skiptir máli, og hvað er nauð-
synlegt.
Ég hugsaði mikið til ömmu og
afa á þessari göngu því þau hafa oft
sagt mér frá þeirri byltingu þegar
gúmmískórnir komu til sögunnar í
þeirra lífi í Öræfasveitinni. Amma
mín, Guðmunda Jónsdóttir frá Fag-
urhólsmýri, er fædd árið 1929 og
hún var sjö ára þegar hún fékk
fyrst gúmmískó. Fram að því hafði
hún verið í skinnskóm. Afi minn,
Sigurgeir Jónsson, man eftir sér
einvörðungu á gúmmískóm en hann
er fæddur 1932.
Við erum svo upptekin af því í
nútímasamfélagi að nota réttu
græjurnar í Öllu sem við tökum
okkur fyrir hendur. Samfélagið
býður upp á það, það er hægt að
finna eitthvað sérhæft fyrir nánast
allar okkar gjörðir. Ég vildi sneiða
hjá þessum brjálæðislega
nútímaundirbúningi fyrir gönguna
mína,“ segir Eva Bjarnadóttir,
myndlistarnemi í Rietveld-
akademíunni í Amsterdam, en hún
var í hópi nemanda við skólann sem
var boðið að taka þátt í listahátíð-
inni Urbane Künste Ruhr í Þýska-
landi í október sl. Innlegg Evu var
að ganga heiman frá sér í Amster-
dam til Halfsmanhof í Þýskalandi í
Gelsenkirchen, þar sem listahátíðin
fór fram.
Hver og einn upplifir veru-
leikann á persónulegan máta
„Hreyfanleiki var þemað sem
hópurinn minn fékk til að vinna
með á þessari hátíð. Við fengum
frjálsar hendur og ég ákvað að taka
þetta bókstaflega og skoða
hreyfanleikann sem líkaminn hefur
upp á að bjóða. Mín nálgun var
þessi tíu daga ganga og með henni
langaði mig að skoða hvernig við
mannfólkið skynjum og sjáum
veruleikann á ólíkan hátt. Hvernig
við erum stöðugt að safna brotum í
gegnum eigin upplifun, hvernig
hver og einn upplifir veruleikann á
persónulegan máta. Ótal margt hef-
ur þar áhrif, bakgrunnur fólks og
áhugasvið, hvað maður vill sjá og
hvað maður getur séð. Allt fólkið
sem ég hitti á leiðinni hafði líka
mikil áhrif á hvernig ég upplifði
þessa göngu. Gangan er í raun
Gúmmístígvél dugðu
vel í 10 daga göngu
Eva Bjarnadóttir gekk á gúmmístígvélum frá Amsterdam til Halfsmanhof í Þýska-
landi en það var hluti af göngugjörningi hennar „My true story“ sem hún setti fram
á listahátíð í Gelsenkirchen. Eva er í myndlistarnámi við Rietveld-akademíuna í
Amsterdam og að lokinni göngu bauð hún gestum listahátíðarinnar að koma upp á
herbergi sitt í gistiálmunni og spjalla við sig um ferðina. Þannig „málaði“ hún nýja
mynd af þessari ferð í hvert sinn sem hún sagði frá henni.
Ljósmynd/Michael Korte. FUNKE Foto Services
Listakona og sjómaður Eva á góðri stund með kærastanum sínum Peter.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015
Fátt er betra á síðkvöldum en að
prjóna. Fyrir þá sem eru sammála því
er vert að benda á að fyrsta fimmtu-
dag í hverjum mánuði er prjónakaffi
Heimilisiðnaðarfélagsins á Café
Meskí í Fákafeni 9 í Reykjavík. Í kvöld
kl. 20 verður prjónakaffi nóv-
embermánaðar þar og þá ætlar Hé-
lène Magnússon að kynna einbandið
Love Story og tvíbandið Gilitrutt, en
hún lætur framleiða það á Ítalíu úr
hreinni íslenskri lambsull. Bandið
verður til sölu í kvöld á prjónakaffinu
sem og nokkrar uppskriftir. Til sýnis
verða sjöl úr bókinni Þríhyrnur og
langsjöl, sem prjónuð eru úr Love
Story. Allir eru velkomnir á prjóna-
kaffið.
En fleiri fasta liði má finna á fyrsta
fimmtudegi mánaðanna, til dæmis er
boðið upp á bingó fyrir fullorðna þau
kvöld í bókasafninu í Sólheimum í
Reykjavík, og í dag verður þar bingó
kl. 13-14.
Veglegir bókavinningar, heitt á
könnunni og allir velkomnir.
Prjónakaffi í hverjum mánuði og bingó fyrir fullorðna
Gilitrutt Gaman er að prjóna úr fíngerðu bandi úr íslenskri lambsull.
Viltu prjóna? Eða spila bingó?
Listafélag Verzlunarskóla Íslands setur nú upp leikritið
Herra Kolbert sem er gamanleikur með svörtum húmor
og spennutvisti. Herra Kolbert, eftir David Gisselman,
var sýnt árið 2006 í uppsetningu Leikfélags Akureyrar
og þá fór Edda Björg Eyjólfsdóttir með stórt hlutverk en
hún leikstýrir þeim fimm nemendum Verslunarskólans
sem fara með hlutverkin að þessu sinni.
Hver er Herra Kolbert? Hver var með númer 26 og
tvöfaldan túnfisk? Er Herra Kolbert á lífi? Er hann dauð-
ur? Hver drap hann þá? Og hvaða pitsusendill er þetta?
Venjulegt matarboð hjá venjulegu fólki tekur óvænta
stefnu og þegar kvöldið er liðið er allt breytt.
Verkið Herra Kolbert hefur farið víða og fengið frá-
bærar viðtökur, meðal annars í Royal Court-leikhúsinu í
London árið 2000. Framsæknustu leikhús Evrópu, Ástr-
alíu og Ameríku hafa sett verkið upp og það hefur hlot-
ið lof áhorfenda og gagnrýnenda. Leikritið sameinar
spennu og átök Hitchcocks, undarlegheit Pinters, fá-
ránleika Ionescos og ómótstæðilegan húmor.
Sýningar fara fram í hátíðarsal Verzlunarskólans og
er frumsýning á morgun, föstudag 6. nóv. Önnur sýning
8. nóv., þriðja sýning 12. nóv., fjórða sýning 15. nóv.
Miðar fást á vefsíðunni www.nfvi.is/midasala, einnig
er hægt að panta miða með því að senda Listafélaginu
skilaboð á Facebook: Listafélag Verzlunarskóla Íslands.
Listafélag Verzlunarskóla Íslands frumsýnir Herra Kolbert á morgun, föstudag
Er Herra Kolbert á lífi?
Er hann dauður?
Hver drap hann þá?
Eigum ávallt til á lager/eða á
leiðinni - Dodge Ram 3500,
GMC Sierra 3500 og Ford F350
Ford F350 2016 Lariat
Dodge Ram 3500 Longhorn
• Varahlutir • Sérpantanir
• Aukahlutir • Bílasala
• Verkstæði Umboðsaðilar BL
á Selfossi
IB ehf • Fossnes A • 800 Selfoss • ib.is
Sími 4 80 80 80