Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.11.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er sjálfsagt að leita ráða hjá öðrum þegar maður sjálfur er á báðum átt- um. Gerðu ráð fyrir lagfæringum og við- gerðum heima fyrir og taktu frá tíma fyrir mikilvæg fjölskyldumál. 20. apríl - 20. maí  Naut Samkeppnin gerir þér gott núna. Haltu þig við áætlanir þínar og fáðu alla þá í lið með þér sem þú mögulega getur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Lítið þjófstart er það sem þú þarft til að byrja af fullum krafti og neita að snúa við. Frá og með deginum í dag muntu krefjast meiri gleði og skemmtunar í lífi þínu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú þarft að taka afstöðu í erfiðu máli sem snertir vinnufélaga þinn. Hug- sjónir þínar stangast ekki á við raunveru- leika nútímans. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það er vandi að velja og því meiri þeim mun fleira sem í boði er. Samskipti þín við systkini þín eru sérlega uppörvandi og gefandi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Dagurinn hentar vel til að gera áætlanir varðandi útgáfustarfsemi, mennt- un og ferðalög. Varastu að gera upp á milli manna af persónulegum ástæðum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ábyrgðin sem hvílir á þér heima fyrir gæti íþyngt þér dálítið í dag. Að öllum lík- indum gefur þú mikið af þér en færð ekk- ert í staðinn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að stinga við fótum og standa fast á þínu máli þótt að þér sé sótt úr öllum áttum. Hertu upp hugann og haltu áfram. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þér sýnist erfitt að láta alla hluti falla á sinn stað, er það engu að síður mögulegt. Vertu bjartsýnn og opnaðu vasana. Sumt er rétt og annað rangt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú missir andlitið þegar einhver þér nákominn reynir að standa fyrir máli sínu. Að vita hefur enga merkingu, nema þú nýtir þér það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Varastu að blanda þínum eigin skoðunum í frásögn af gangi mála. Ekki einblína á það sem gengur illa, heldur það sem gengur vel og byggðu á því. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú hefur verið að eyða óvenjumikl- um peningum að undanförnu. Notaðu þetta tækifæri til að bæta sambandið við þá sem þér eru kærir. Justin Bieber er ein vinsælastapoppstjarna heims. Nú gengur ljósum logum á netinu myndband sem tekið var á Íslandi við nýtt lag úr hans smiðju, en þar má meðal annars sjá goðið lauga sig fáklætt í Jökulsárlóni. Myndin birtist í mbl.is á mánudag. Sigrún Haraldsdóttir orti á Leirnum: Ég teymd er af tilfinning flókinni og trega okkar fullkomnu ókynni. Nú upplýsi hér; ég altekin er af honum Bieber á brókinni. Páll Imsland heilsar leirliði á óséðum morgni. Hann Valdi á Valstrýtu dauður vaknaði hreint eins og sauður og skildi’ ekki neitt hve skolli var heitt og skugginn af honum svo rauður. Vésteinn Valgarðsson orti í til- efni af því að Perlan sökk í Reykja- víkuhöfn: Valda grandi margoft mein, magnast vanda grútur, möstrin standa uppúr ein Ísa lands á skútu. Í gær birtist hér limra, Neglan, eftir Davíð Hjálmar Haraldsson af sama tilefni. Og sr. Skírnir Garð- arsson skrifaði í Leirinn: „Við vor- um að borða 2 fyrir 1 á bryggjunni og héldum að þetta væri innifalið í verðinu, einhvers konar „show“. Á Grandanum grandalaus sátum, við gourmet og þindarlaust átum. Segir konan þá klökk, þegar kútterinn sökk, „Hér er kostuleg meðferð á bátum.“ Alveg magnað. Kannski var þetta það sem við kölluðum „gauja- syndrómið“ í sveitinni, karl sem kallaður var Gaui týndi alltaf töpp- unum. Gauji var skorpumaður við heyskap, að moka í blásara o.fl. Hann var blautur túramaður. Hann Gaui minn töppunum týndi, hann tafsaði og eftir þeim rýndi. Hann labbaði að hlöðunni, og leitaði í töðunni, og leikaraskap okkur sýndi. Hann hafði þá ástæðu til að drekka í botn, því tappana fann hann aldrei, hann henti nefnilega töppum viljandi. „Hvar er asskot- ans neglan?“ sagði hann stundum. Afi undirritaðs var svo stækur bindindismaður (hann var bóndi á Svalbarðsströnd) að hann þverneit- aði að drekka nokkuð af stút. Það var algild regla. Eitt sinn hafði gleymst að taka með bolla á engjar og drukkið af stút kaffi úr brúsa sem hafður var í ullarsokk. Þá orti vinnumaður: Faðir vor nú kallar kútinn kaffi-þekka. ei af stút þó einn vill drekka, önugur og þver við rekka. Við erum prinsipp-menn,“ lýkur Skírnir máli sínu. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Justin Bieber og Valda Í klípu „ÞAÐ ER EKKERT SEM JAFNAST Á VIÐ ÞÁ TILFINNINGU AÐ VERA MEÐ SAND Á MILLI TÁNNA. AÐ ÞVÍ SÖGÐU ÆTTI ÉG KANNSKI AÐ FARA Í STURTU NÚ ÞEGAR ÉG ER KOMINN TIL BAKA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „AUÐVITAÐ ERT ÞÚ GÓÐUR Í SÖGU. ÞÚ VARST VIÐSTADDUR MEGNIÐ AF HENNI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að segja ljósmyndinni hans frá vandamálum þínum. ÓKEI… HVERJUM FINNST ÉG VERA FRÁBÆR? ÉG TEL ÞETTA MEÐ SEM „KANNSKI“ NÚ, ÞARNA KEMUR MAÐUR FYRIR ÞIG HUNANG ÉG HEF SAGT ÞÉR, ÁHUGAMÁL MITT NÚNA ER FRAMI Í VIÐSKIPTALÍFINU! ÉG VELTI FYRIR MÉR HVORT HANN VANTI VIÐSKIPTAFÉLAGA? Í Víkverja býr mjög kátt jólabarnárið um kring. Þegar jólahátíðin fer að nálgast og tilhlýðilegt verður að láta tilhlökkun sína í ljós halda honum engin bönd. x x x En það liggur iðulega þungt á Vík-verja ár hvert hvenær það telst í lagi að gefa jólabarninu lausan tauminn. Mörkin færast lengra frá jólum með hverju árinu. Jólaverslunin hefst nú í lok sept- ember þegar allar hillur fyllast af jólapappír, jólakúlum, jólaseríum og öðru glingri, Víkverja til ómældrar gleði. Hins vegar óma jólalögin jóla- vörunum ekki til samlætis og hafa þau því ekki stokkið á jólavagn verslunarinnar. Enn hefur Víkverji því þurft að sitja á sér og bíða fram á fyrsta desember til að ýta á play. x x x Víkverja er líka með öllu ljóst aðþegar komið er heim með ný- keyptu jólaseríuna er ekki í boði að hengja hana upp strax. Það verður líka að bíða fram í desember svo ekki hljótist af útskúfun úr mann- legu samfélagi. Það væri ekki nema Víkverja tækist að heimfæra seríuna undir skilgreiningu „heils- ársseríunnar“ sem hefur rutt sér til rúms á síðustu árum og hlotið sam- þykki tískuspekúlanta um land allt. x x x En um daginn fann Víkverjióvænta en sjálfsagða leið úr viðj- um hefðanna og almenningsálitsins. Víkverji tók nefnilega að sér að passa frændsystkini sín yfir nótt. Börn eru almennt lítið í því að láta álit annarra aftra för sinni og þegar þau horfðu biðjandi hvolpaaugum á Víkverja og kröfðust jólaskreyttrar íbúðar frá toppi til táar, varð ekki aftur snúið. Í næstu andrá voru jóla- kassarnir ferjaðir fram af mikilli áfergju, jólalögin komin á fóninn í hæsta styrk, smákökurnar á leiðinni í ofninn og allir hoppandi kátir með jólasveinahúfu. Hvað nágrönnunum þykir um komu jólanna í þessa einu íbúð á höf- uðborgarsvæðinu verður látið liggja á milli hluta. Því káta jólabarnið er mætt og hvernig nærri hætt! víkver- ji@mbl.is Víkverji En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trú- mennska, hógværð og sjálfsagi. (Gal. 5:22) Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16 www.facebook.com/gaborserverslun Dömuskór í úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.