Morgunblaðið - 05.11.2015, Page 36
FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 309. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Hefur oft langað að deyja
2. „Ég var einfaldlega bölvaður …“
3. Ótrúlegt að ekki hlaust af …
4. Ódýr timburhús alvöru kostur
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Skálholtsútgáfan hefur gefið út
tónlistarævintýrið Lítil saga úr org-
elhúsi, myndskreytta barnabók með
geisladiski þar sem sagan er lesin af
söngvaranum Bergþóri Pálssyni og
tónlist úr ævintýrinu leikin á orgel af
höfundi bókarinnar, Guðnýju Ein-
arsdóttur organista. Tónlistina samdi
Michael Jón Clarke og Fanney Size-
more myndskreytti. Útgáfu bókar-
innar verður fylgt úr hlaði með út-
gáfutónleikum í fjórum kirkjum og
verða þeir fyrstu haldnir í kvöld kl. 18
í Hjallakirkju í Kópavogi. Þær næstu
fara fram 7. nóvember kl. 16 í Dóm-
kirkjunni, 8. nóvember kl. 16 í Akra-
neskirkju og 14. nóvember verða
tvennir tónleikar haldnir í Akureyr-
arkirkju, kl. 13 og 14.30. Á tónleik-
unum mun Bergþór Pálsson segja
söguna, Guðný leika tónlistina á org-
el og myndum Fanneyjar verður varp-
að upp á tjald.
Morgunblaðið/Eggert
Tónlistarævintýri
í fjórum kirkjum
Femdome nefnist fjögurra daga há-
tíð sem hófst í gær og stendur til og
með 8. nóvember á Café Sólon og er
hluti af utandagskrá Iceland Airwa-
ves. Efri hæð veitingastaðarins hefur
verið breytt í tónleikasal og munu
þar koma fram margar fremstu tón-
listarkonur landsins, m.a. Lára Rún-
ars og Þórunn Antonía,
auk annarra sem
eru að hasla sér
völl. Einnig munu
koma fram er-
lendar hljóm-
sveitir; m.a.
The Hinds frá
Spáni og Moon
Bow frá Eng-
landi.
Tónlistarkonur á
efri hæð Café Sólon
Á föstudag Suðaustan 5-10 og rigning með köflum, en úrkomulít-
ið norðaustantil. Snýst í suðvestanátt með skúrum síðdegis. Hiti 3
til 9 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 8-15 m/s. Talsverð
rigning sunnan- og vestanlands, en úrkomulítið norðaustantil.
Hlýnar í veðri, hiti 3 til 10 stig síðdegis.
VEÐUR
Haukar eru enn taplausar á
toppi Dominos-deildar
kvenna í körfuknattleik eftir
leiki gærkvöldsins. Hafn-
firðingar sóttu tvö stig á
Hlíðarenda 79:73. Grindavík
beið lægri hlut gegn Snæ-
felli í Mustad-höllinni í
Grindavík 83:60 og Stjarn-
an bar sigurorð af Hamri í
Hveragerði 81:64. Haukar
eru með 10 stig en Snæfell
kemur næst með 8 stig í
öðru sæti. »2
Haukar enn með
fullt hús stiga
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í handknattleik,
tók djúpt í árinni í samtali við mbl.is
þegar hann sagði að aðstaða íslensku
landsliðanna í handknattleik og
körfuknattleik væri fyrir neðan allar
hellur. Formenn HSÍ og
KKÍ taka undir þetta og
eru sammála um að sú
aðstaða sem landslið-
unum stendur til boða
til æfinga og
keppni sé ekki
viðunandi. » 1
Aðstaða landsliðanna
er ekki viðunandi
Ásgeir Sigurgeirsson er bjartsýnn á
að hann verði á meðal keppenda í
skotfimi á öðrum Ólympíuleikunum í
röð á næsta ári. „Ég hef verið mjög
nálægt því að tryggja mér svokallað
kvótapláss. Ég er því mjög bjartsýnn
á að ná markmiðinu,“ sagði Ásgeir en
næst mun hann fá tækifæri til að
vinna sér sæti á Ólympíuleikunum í
Ríó í febrúar. »4
Ásgeir bjartsýnn
á sæti á ÓL í Ríó
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
„Það gekk bara einhvern veginn allt
upp og stelpurnar toppuðu sig al-
veg,“ segir Ingibjörg Guðjónsdóttir,
kórstjóri og stofnandi Kvennakórs
Garðabæjar, en kórinn kom, söng og
sigraði í alþjóðlegu kórakeppninni
Canta Al Mar á Spáni á dögunum þar
sem hann vann til gullverðlauna í
flokki kvennakóra og til silfurs í
flokki kirkjuverka.
„Þetta var allt staður og stund. Við
höfðum undirbúið okkur gríðarlega
vel og stefnt að þessu í um tvö ár,“
segir Ingibjörg en einnig hafi spilað
stórt hlutverk hve samhentur hóp-
urinn var og tilbúinn að gera sitt
allra besta í keppninni. Alls kepptu
49 kórar frá 29 löndum, eða um 1.500
manns. Kvennakór Garðabæjar er
skipaður áhugasöngkonum úr Garða-
bæ en þær kepptu ótrauðar við er-
lenda atvinnukóra.
Ekki ósvipað íþróttaleik
„Við hoppuðum upp og veifuðum
íslensku fánunum. Maður verður
bara eins og lítill krakki. Kannski
ekkert ósvipað því sem gerist á
íþróttaleikjunum þegar einhver skor-
ar mark,“ segir Ingibjörg létt í
bragði um andartakið þegar ljóst var
að kórinn hafði unnið gullið í flokki
kvennakóra. „Þetta var alveg ein-
stakt og ógleymanlegt.“
Kórinn gerði garðinn frægan á
fleiri sviðum en verðlaunapallinum
því honum var einnig boðið fyrirfram
að taka þátt í hátíðartónleikum í
Dómkirkjunni í Barcelona ásamt
kórum frá Georgíu og Svíþjóð. „Það
var ofsalega mögnuð stund, enda
stór og hljómfögur kirkja, umhverfi
sem við þekkjum ekkert mjög vel.“
Kórasamfélagið hér á landi er lítið
að sögn Ingibjargar og því mikill lær-
dómur fólginn í því að miða sig við
aðra kóra úti í heimi.
Engin bið í næstu tónleika
Kórinn slær hvergi slöku við og
undirbýr sig nú ötullega fyrir árlega
aðventutónleika sem haldnir verða 9.
desember næstkomandi í Digra-
neskirkju.
„Við spýtum bara í lófana og þetta
verður virkilega skemmtilegt,“ segir
Ingibjörg að lokum.
Kórinn sem kom, söng og sigraði
Kvennakór Garðabæjar vann til gull- og silfurverðlauna í alþjóðlegri keppni
Fagnaðarlæti Kvennakór Garðabæjar samanstendur af 34 áhugasöngkonum á öllum aldri, með ólíkan bakgrunn, sem hafa mikið yndi af söng og samveru.
Bestar Ingibjörg Guðjónsdóttir
kórstjóri með verðlaunin.