Víkurfréttir - 15.01.1987, Qupperneq 5
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 15. janúar 1987 5
Brothljóð og
sprenging
, ,Brothljóðið og
sprengingin heyrðist inn í
stofu, svo mikil voru læt-
in. Þegar ég hljóp út í dyr
blasti við ófögur sýn.
Mikinn reyk lagði úr bíln-
um og rúða ökumanns-
megin var mölbrotin"
sagði íbúi í Njarðvík sem
varð fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu að fá rakettu
í gegnum rúðuna á bíln-
um sínum sem stóð í
mesta sakleysi fyrir utan
heimili hans.
Atvik þetta átti sér stað
á miðvikudagskvöld eftir
þrettándann. Ibúi í nær-
liggjandi fjölbýlishúsi
ætlaði að skjóta upp rak-
ettu sem hann átti eftir.
Hann stillti henni upp í
flösku en svo illa vildi til
að hún datt um koll, rak-
ettan flaug í rúmri met-
ershæð og endaði eins og
áður segir inn í fólksbif-
reiðinni og sprakk þar.
Við sprenginguna kom
stórt gat í klæðninguna og
einnig dreifðust glerbrot
um ailan bíl. Það er víst
að aldrei er of vandlega
farið með flugelda.
Byggingar-
nefnd kjörin
Eftirtaldir þrír aðilar
hafa verið settir í bygging-
arnefnd vegna væntanlegr-
ar nýbyggingar við Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja:
Axel Nikolaison, Ingi-
mundur Guðnason og Stur-
laugur Olafsson.
Bjargað úr
Keflavíkurhöfn
Um hádegisbilið sunnu-
daginn næst síðasta var
manni bjargað úr Keflavík-
urhöfn. Hafði maðurinn
verið að þvælast ölvaður
niðri á bryggju er hann féll í
höfnina.
Leigubílstjóri frá Öku-
leiðum, Pálmi Viðar, sá
slysið og hljóp þegar til,
jafnframt því sem hann
kallaði á aðstoð. Tókst hon-
um að klifra niður á dekk
utan á bryggjunni og halda
manninum uppi þar til nær-
staddir sjómenn komu hon-
um til hjálpar og aðstoðuðu
við að koma manninum á
land.
Er lögreglan kom á
staðinn hafði manninum
verið náð á land og þar sem
honum hafði ekki orðið
meint af var hann fluttur til
síns heima. Maðurinn var
ósyndur og því var um
hreina björgun að ræða.
Hér má sjá inn í bQinn, stórt gat í toppnum, rakettan fbst í gatinu og gler-
brot um allan bQ.
er á sunnudaginn. Af því tilefni fá allir
frítt gos með mat, föstudag, laugardag
og sunnudag. - Ljúffengir skyndiréttir:
eldbakaðar pizzur, pítur, hamborgarar
og hinir Ijúffengu
Chick-King kjúklingabitar.
Við erum farin að taka á
móti pöntunum á mat
í fermingarveislur.
Útvegum áhöld í veisluna
og að sjálfsögðu
vant starfsfólk.
Glæsilegt hlaðborð með þorramat
í neðri sal, föstudag, laugardag og
sunnudag. - Eins og hver getur í sig látið
fyrir 650 kr.
Fjölbreyttur matseðill dagsins að
sjálfsögðu einnig framreiddur.
ATHUGIÐ!
Tökum að okkur:
Árshátíðir - Þorrablót
Fermingarveislur
Brúðkaupsveislur
Afmælisveislur
GERUM FÖST
VERÐTILBOÐ
FJÖR Á FJÖLUM
GLÓÐARINNAR
NÝTT - NÝTT - NÝTT - NÝTT
Stórdansleikir föstudag
og laugardag kl. 22-03.
Hin frábæra hljómsveit
KLASSÍK heldur uppi
stanslausu fjöri.
Já, nú rífum við upp góðu
gömlu Glóðar-stemn-
inguna aftur. - Láttu sjá
þig og brostu, -
það er betra.
Sími 1777, 4777
EINS ÁRS AFMÆLI LANGBEST