Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.02.1988, Blaðsíða 6

Víkurfréttir - 11.02.1988, Blaðsíða 6
WKim 6 Fimmtudagur 11. febrúar 1988 juW* orðvar Léttgeggjuð þjóð Kréttaluysi á íslandi í janúar ojí fchrúar ár hvert kemur hart niður á öllum Ijölmiðlum í land- inu. Ef miðað er við aðrar Itjóðir, na'gði landsinönnum eitt i'réttablað oj; ein útvarpsstöö þessa tvo mánuði. IVJarpt vcldur þessum doða. l ólk sem fágnaði fæðin[>u frels- arans með plastkortum ein- gðíjgu, liggur nú í sárum langt Irarn á vor. Arvissar kaupkröfur °g öryggisleysi í atvinnumál- um er varla uppörvandi, þegar gíróseðlarnir fyrir lóðarícigu, fastcignagjöld, nýja bifreiða- skattinn og sjónvarpið iiggja í haugum iunan við hréfalúguna á livcrju kvöldi. En þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Mitt i öllu volæð- inu og fréttaleysinu beinist athygli allrar þjóðarinnar að stráklingi veslur í Kanada. Ahyggjur og hugleiðingar út af 242% skattahækkun inilli ára eru smámunir miðað við heila- hrot skáklistarinnar, þegar þjóðarstoltið er lagt undir. Þar l'ylgir hugur máli. Auðvitað vissu allir strax eftir 3. skákina, að strákurinn bæri sigurorð af reyndasta hólmgöngumanni veraldar. Öll þjóðin veðjaði á Jóhann. Bjartsýnasta, ham- ingjusamasta og langlífasta þjóð í heimi er löngu hætt að miða al'rck sín við hausatölu, enda fór svo í 8. skákinni, sem allir landsmenn kunnu nú utan að, leik fyrir leik, að við unnum einvígið. Við eigum fallegustu konur í heimi, sterkasta manninn, besta söngvarann og 6 stórmeistara í skák. Boltamennirnir stefna að því að verða bestir í heimi og auðvitað verða þeir það, ef þeim tekst vel npp í sumar. Islcndingar eru léttgeggjað- ir, annars byggjum við ekki hérna, en hornstcinninn að sam- stöðu og getu þjóðarinnar er einmitt að finna í sögum um afrek okkar frá landnámi og alit fram á þennan dag. Margar |>jóðir eiga enga sögu og enga afreksmenn, llér eru minnst 2 ÖSKUDAGUR Skrúðganga frá Skátahúsinu kl. 10. Gengið verður norður Hringbraut, niður Tjarnargötu, upp Suðurgötu, niður Skóla- veg og að Myllubakkaskóla, þar sem kötturinn verður sleginn úr tunnunni. Æskulýðsráð Keflavíkur Skátafélagið Heiðabúar Tónlistarskóli Keflavíkur rithöfundar í hverri meðalstórri fjölskyldu, og annað eftir því. Fyrir jólin kom, út bók sem segir frá því að héðan komi spá- muður sem bjargar heimsmál- unum, þegar allt verður komið úr böndunum þarna úti í löndum. I>ví ekki þaö? Hvað er eðlilegra? l>egar ísraelsmenn björguðu gislunum Irá Entebbe-flngvelli hér um árið, varð einum góð- borgara í Njarðvíkum að orði: „Víst er þetta mikið afrek, en fáið mér 10 húsbyggjendur, og ég skal gera livað sem er“. íslendingar eru friðsamir menn nú orðið, og hafa ekki borið vopn i uldaraðir, en bar- áttuhugurinn er enn sá sami og hjá Agli Skallagrímssyni forð- um. Þat mælti mín móðir, at mér skyldi kaupa lley ok fagrar árar, fara á brott nteð víkingum, standa upp i stafni, stýra dýrum knerri, Italda svá til hafnar, höggva mann ok annan. Orðvar „Mikill áhugi hér í Grindavík“ „Ég hef ekkert unnið í getraunum í ár, en í fyrra vorum við fimm saman með kerFi og þá fengum við fjórum sinnum ellefu rétta“ segir næsti tippari, Sigurbjartur Loftsson, 15 ára grunnskólanemi úr Grindavík. „Það er rnikill áhugi fyrir ensku knattspyrnunni og getraunum hérna í Grindavík. Það fylgjast margir með enska boltanum og ég er engin undantekning þar á. Mitt uppáhaldslið er Liverpool. Liðið er í sérflokki í Englandi og ég spái því að mínir menn vinni tvöfalt í ár. Leikurinn á seðl- inum við Watford verður léttur. Við vinnum 2:0“, sagði Sigurbjartur. Heildarspá Sigurbjarts: Arsenal - Luton .......... 1 Charlton - Wimbledon ... X Chelsea - Man. Utd.........2 Coventry - Sheff. Wed. ... 2 Newcastle - Norwich ...... 2 Oxford - Tottenham ....... 2 South'pton - Nott’m For. X Watford - Liverpool....... 2 W. Hant - 1‘ortsm. (sjónv.) . . 1 Barnsley - Blackburn .... X Leicester - Leeds ........ 1 W.B.A. - Crystal Palace .. 1 Gísli með fimm rétta Gísli Eyjólfsson, síðasti tippari, fékk fimm rétta og bland- ar sér því ekki i keppni efstu manna. Nafni hans úr Garðin- um, Gisli Heiðarsson, skaust í efsta sætið í síðustu leikviku, en hann var með 9 rétta. Næstir koma Jón Halldórsson og Sævar Júlíusson með 8 rétta en síðan koma fjórir með 7 rétta. Jóhannes Ellertsson, Jóhann Benediktsson, Asbjörn Jónsson og Bjarki Guðmundsson. Hreppir einshver þess- ara Wembleyferð Samvinnuferða-Landsýn, eða bætist einhver í hópinn á næstu vikum? TIL GREIÐENDA FASTEIGNA- GJALDA Greiðið fasteigna■ gjöldin fyrir 1. mars n.k. og fáið 8% afslátt. BÆJARSJOÐUR KEFLAVIKUR

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.