Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.02.1988, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 11.02.1988, Qupperneq 19
yfiKun fUtUt Fimmtudagur 11. febrúar 1988 19 \mfmnv Baltic Trader í Keflavíkurhöfn á laugardag. Ljósm.: epj. Kef lavíkurhöfn: Stærsta fragtskipið sem komið hefur Á laugardagsmorgun lagðist að bryggju í Keflavík stærsta flutningaskipið sem þangað hefur komið. Varhér á ferðinni flutningaskipið Baltic Trader frá Panama, sem er 146 metra langt, 23 metra breitt og ristir rúma 9 metra. Um borð voru 17 þúsund tonn af salti en í Keflavík var skipað upp milli 8 og 9 þús- und tonnum fyrir Saltsöluna h.f. Héðan fór skipið síðan til Hafnarfjarðar en vegna þess hve djúprista það var komst það ekki þangað fyrr en að búið var að taka nokkuð magn úr því og það létt. Skip, sem ristir þetta mik- ið, kemst aðeins inn í fáar hafnir landsins en Keflavík er ein íarra hafna með nægj- anlegt dýpi. Til að koma skipinu að bryggju þurfti þó aðstoð frá Haka, sem er ann- ar af nýju dráttar- og hafn- sögubátum Reykjavíkur- hafnar. Þurfti þá að snúa skipinu við utan við hafnar- garðinn og bakka síðan inn í höfnina. Njarðvík: Frftt í strætó Nú stendur yfir þriggja mánaða tilraunatímabil varðandi fríar strætóferðir með Steindóri Sigurðssyni milli hverfa í Njarðvík til og frá Keílavík. Stendur til- raun þessi út marsmánuð og er það Njarðvíkurbær sem stendur fyrir tilraun þessari. Til að fá nánari upplýs- ingar um málið hafði blaðið samband við Odd Einars- son bæjarstjóra í Njarðvík. Taldi hann ótímabært að geta niðurstaðna nú, en vís- aði málinu til Steindórs Sig- urðssonar. Sagði Steindór að ástæðan fyrir þessari til- raun hefði verið óánægju- raddir aðallega úr hópi íbúa úr Innra-hverfinu, með kostnað við ferðir milli hverfa. Niðurstaðan hefði þó verið sú, að ferðir þessar hafa verið sorglega lítið notaðar, þrátt fyrir að þær kosti ekki neitt fyrir þá sem þurfa á þeim að halda. Þá vildi Steindór taka það fram að ferðir í sambandi við félagslíf íþróttafélaganna og skól- ans hafa ávalít verið fríar og því væri engin breyting þar á. Þetta tilraunaform hefði því ekki skilað þeim niðurstöðum um aukna notkun á bílunum, sem vænst hefði verið. Eins hefðu komið óskir um auknar ferðir á kvöldin og um helgar, en þar væri sömu sögu að segja, ferð- irnar væru ekki nýttar sem skyldi, sagði Steindór í samtali við blaðið. Suðurnes Óskum eftir húsnæði til leigu frá 1. mars. Leigutími 1á ár eða lengur. Æskileg stærð 3-5 svefnherbergi, rúmgóð hæð, einbýli eða raðhús. Upplýsingar í síma 91-50635. SJAVARGULLIÐ Ó2 RESTAURANT Matarverð sem kemur á óvart. • Sjávargullið, Vesturbraut 17, er opið á i'östudags- og laugardagskvöldum frá kl. 18.30-22.30. • Matargestir greiða ekki aðgang á dansleiki í Glaumbergi. • Hér er dæmi um gest sem ætlar að eiga huggulegt kvöld með kvöldverði og dansleik: - Blandaðir sjávarréttir kr. 750, mínus aðgangseyrír kr. 500, = 250 kr. - Lambalundir í gráðosts- sósu m/kartöílum og grænmeti kr. 1.100, mínus aðgangseyrir kr. 500, = 600 kr. (P.S. þaðgleymdistaðdraga i'rá leigubílinn, því veitingastaðirnir em í sama húsi). - BOLLA - BOLLA Rjómabollur Púnsbollur Vatnsdeigsbollur Einungis ekta rjómi Q OPIÐ ALLA HELGINA. BOLLA - BOLLA - BOLLA Hafnargötu 31 - Keflavik

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.