Víkurfréttir - 10.03.1988, Blaðsíða 1
0
fi
ÍKUR
víkur tók afskarið ogsam-
þykkti á fundi sínum 2.
mars eftirfarandi:
„Bœjarrúð áielur stjórn
Hiiaveiiu Suóurnesju J'yrir
meðferð uiboðs og samn-
inys um reksiur baðhússins
við BUía lánið. I ’erði samn-
ingnuin ri/i og rcksiurinn
boðinn úi aó nýju. svu ftjóu
sem t’ið verður komið".
Hitaveitan rifti samn
ingum um baðhúsið
Nokkur óánægja er nú í
gangi varðandi meðferð á
útboði og samningum á
rekstri baðhússins við Bláa
lónið. Kom þetta vel í Ijós í
grein Kristjáns Pétursson-
ar hér í blaðinu fyrirstuttu.
Fátt hefur þó heyrst frá
opinberum aðilum þar til
nú, að bæjarráð Grinda-
10. tbl. 9. arg. l invntudagur 10. man
s9ötu
Landsbt
Safnahr
101 Reyj
Samninganefndarmenn Hitaveitunnar við Grátmúrinn í Jerúsalem. F.v.: Björn Stefánsson,
Finnbogi Björnsson, Júlíus Jónsson og Albert Albertsson.
Stutt í virkjun
strompgufunnar
Undirritaður hefur verið í
Israel samningur nrilli
fulltrúa Hitaveitu Suður-
nesja og þarlends fyrirtækis
um kaup á þremur Orniat
túrbínum. Hefur samningur
þessi verið staðfestur í stjórn
Hitaveitu Suðurnesja.
Er hér um að ræða þrjár
túrbínur sem myndu nota
lágþrýstigufuna frá stromp-
urn orkuversins í Svartsengi
til raforkuframleiðslu, sem
aflgjafa og yrði brúttó fram-
leiðsla þessara þriggja túr-
bína um 3.720 kw. Auk sölu
á þessum túrbínum getur
komið til sala á lleiri slíkum
túrbínum, varmaskiptum
og þjálfun starfsfólks auk
ýmis annars.
Af hálfu Hitaveitu Suður-
nesja voru í samninganefnd-
inni Finnbogi Björnsson
stjórnarformaður, Júlíus
Jónsson framkvæmdastjóri
fjármálasviðs, Albert
Albertsson framkvæmda-
stjóri tæknsviðs og Björn
Stefánsson innkaupastjóri.
Að sögn Júlíusar er reikn-
að með að þetta verði komið í
gagnið í apríl-maí á næsta
ári. Við þessa framleiðslu
mun gufan frá orkuverinu
svo og hávaðinn minnka til
muna, þó ekki alveg, þar sem
þörf er á fimm túrbínum, en í
þessum áfanga eru aðeins
keyptar þrjár.
Mótframboð hjá Versl-
unarmannafélagimi
Búið er að stilla upp
mótl'ramboð gegn núver-
andi stjórnarlista hjá Versl-
unarmannafélagi Suður-
nesja; Að sögn Guðmund-
ar Ola Jónssonar, sem
skipar formannssæti hins
nýja lista, hafa undirtektir
verið mjög góðar og því
l'ærri komist að en vildu
sem meðmælendur.
Sagði hann að í hugum
fóiks væri hér fyrst og
frcmst um að ræða óskir
um breytingar, en stillt
væri upp í öll sæti stjórnar,
varastjórnar, trúnaðar-
mannaráðs, endurskoð-
anda og annað sem um
væri að ræða. Þá hefði verið
ákveðið að stilla upp Ein-
ari Leifssyni sem fram-
kvæmdastjóra f'yrir félag-
ið, en liann mun einnig
verða kosningastjóri.
Með Guðmundi eru eftir-
laldir á listanum sem full-
trúar í aðalstjórn: Alma
Friðriksdóttir, Guðrún
Hjörleifsdóttir, Hrafnhild-
ur Sumarliðadóttir, Ró-
berta Maloney, Eiríkur A.
Sigurðsson og Erlendsína
M. Sigurjónsdóttir.
Fegurðardrottning
Suðurnesja 1988
krýnd á laugardag
Á laugardaginn rennur upp stór stund hjá stúlkunum átta i Fegurðarsamkeppni Suður-
nesja 1988, en það fer keppnin fram í Glaumbergi í Keflavík. Fegurðardrottning Suður-
nesja 1988 verður valin, svo og Ljósmyndafyrirsætaog Vinsælastastúlkan. Ámyndinni
eru stúlkurnar afslappaðar með Birnu Magnúsdóttur, eftir leikfimitíma, en hún hefur séð
um þjálfun þeirra ásamt Ágústu Jónsdóttur. í miðopnu eru litmyndir af stúlkunum. Þar
brugðu þær sér í hlutverkfyrirsætaog sýnatísku-og sportfatnaðfráfjórum verslunum í
Keflavík. Ljósm.: Heimir Stigsson