Víkurfréttir - 10.03.1988, Blaðsíða 18
\IIKW
18 Fimmtudagur 10. mars 1988
ÚTBOD
Sorpeyöingarstöö Suöurnesja óskar eftir
tilboðum í flutning á grófgerðu rusli fráat-
hafnasvæöi stöðvarinnar á losunarstað á
Stafnesi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Sorp-
eyðingarstöðvar Suðurnesja, Vesturbraut
10a, Keflavík. Tilboð verða opnuð á sama
stað, þriðjudaginn 22. mars 1988 kl. 10.00.
réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Kaupfélag Suðurnesja, Grindavík
ÚTBOÐ
Kaupfélag Suðurnesja óskar eftir tilboð-
um í uppsteypu verslunarhúss að Víkur-
braut 60, Grindavík.
Helstu verkþættir eru lagning frárennslis-
lagna í jörð, fyllingar í grunn og að húsi,
uppsteypu veggja og gólfplötu og upp-
setning límtrésbita. Verkinu skal lokið 1.
júlí 1988.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði-
stofu Suðurnesja hf., Hafnargötu 32, Kefla-
vík, frá og með mánudeginum 14. mars
1988, gegn 3.000 kr. skilatryggingu. Til-
boð verða opnuð á sama stað föstudag-
inn 25. mars 1988 kl. 11.30.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
Útboð
Tilboð óskast í smíði síðari áfanga
Póst- og símahúss í Keflavík-Njarð-
vík, þ.e. lokafrágangur innanhúss.
Verktími er frá 1. apríl til 15. júní n.k.
Útboðsgögn verða afhent á Fast-
eignadeild Pósts og síma, Pósthús-
stræti 5, Reykjavík, og hjá stöðvar-
stjóra Pósts og síma í Keflavík, gegn
skilatryggingu kr. 10.000.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Um-
sýsludeildar, Landssímahúsinu í
Reykjavík, fimmtudaginn 17. mars
n.k. kl. 11.00 árdegis.
Póst- og símamálastofnunin
\jUUit
Blaðamannafélagið:
Lögreglan virði starfsrétt-
indi blaða- og fréttamanna
Stjórn Blaðamannafélags
íslands hefur sent Jóni Sig-
urðssyni dómsmálaráðherra
harðort bréf í tilefni af afskipt-
um lögreglu á Keflavíkurflug-
velli og yfirvalda í Leifsstöð
varðandi blaðamenn nú
nýlega. Birtist hérúrdrátturúr
bréfinu er varðar yfirvöld hér
syðra:
,,Stjórn Blaðamannafélags
Islands sér brýna ástœðu til að
mótmœla harðlega hvernig lög-
regluyfirvöld hafa að undan-
förnu gróflega hindrað blaða-
og fréttamenn að störfum.
Einkum hefur þessa gœtt á
Keflavíkurflugvelli. Ljósmynd-
ari dagblaðs var liandtekinn þar
fyrir skömmu, beint að honum
byssum og tekin af honum vél
og filma, vegna þess að hann
hafði Ijósmyndað farm vöru-
flutningavélar sem nýlent var á
vellinum.
Þeir atburðir er áttu sér stað
við komu Pauls Watsons til
landsins í sl. mánuði eru öllum
kunnar. Blaða- og fréttamenn
voru þá gróflega hindraðir við
störf sín í og við Flugstöð Leifs
Eiríkssonar. Fréttamönnum var
meinuð innganga í stöðina og
þeir sem þangað komust gegn
fram vísun brottfararspjalda,
voru handteknir og settir í
stofufangelsi.
Blaðamannafélagið krefst
þess að slíkir atburðir endur-
taki sig ekki og að starfsrétl-
indi blaða- og fréttamanna
verði virt íhvívetna af yfirvöld-
um. Blaða- og fréttamenn hafa
á undanförnum árum og ára-
tugum átt ánœgjulegt samstarf
við lögreglu og B/aðamannafél-
agið óskar að svo megi verða
áfram um ókomna tíð.
Jafnframt fer félagið fram á
að komið verði á ákveðnum
samskiptareglum blaða- og
fréttamanna og yfirvalda í
Flugstöð Leifs Eiríkssonar,
þannig að blaða- og frétta-
mönnum verði tryggðureðlileg-
ur og sjálfsagður aðgangur að
móttökuherbergisvœði i Flug-
stöðinni.
Blaðamannafélagið vœntir
þess að ráðuneyti yðar taki
þessi mál til umfjöllunar, þann-
ig að ekki þurfi að koma aftur
til slíkra árekstra ísamskiptum
blaða- og fréttamanna við lög-
reglu."
Sex Suðurnesjabúar
fæddir á hlaupársdag
Nú er komið í ljós að á
Suðurnesjum eiga heima 6
manns sem fæddir cru á
hlaupársdag en ckki l'imin,
eins og sagt var frá í síðasta
blaði. Þessi sjötti er fjög-
urra ára strákur til heimilis
að Brekkustíg 17 í Njarð-
vík og heitir hann Sigurður
Davíð Júlíusson.
Stafar misskilningur
þessi af því að blaðið hafði
ekki aðgang að nægjanlega
góðum upplýsingum varð-
andi Njarðvík, eins og
greint var frá í síðasta
blaði. Biðjumst vjð velvirð-
ingar á þessu, en Sigurður
Davíð er þar með yngsti
Suðurnesjamaðurinn sem
fæddur er á þeim merkis-
degi 29. febrúar.
ATHUGASEMD
í formi gagnrýni
Reykjavík, 15/2 1988.
Ágætu ritstjórar
Víkur-frétta!
Ég vil byrja á því að óska
ykkur til hamingju með nýja
húsnæðið. Frá síðastliðnu
hausti hef ég fengið blaðið
ykkar sent reglulega og verð
að segja, að útgáfan er glæsi-
leg og ykkur aðstandendum
til sóma. En ég má til með að
gera nokkrar athugasemdir í
formi gagnrýni, þar sem ég
hef upp á síðkastið orðið var
við nokkrar illa skrifaðar
greinar í blaðinu og tek sem
dæmi viðtal úr Víkur-frétt-
um frá 4. febrúar sl.
í blaðinu er viðtal við
Hörð Guðmundsson rakara
og stórvesír í golfmálum
ykkar Suðurnesjamanna.
Viðtalið byrjar reyndar á
formgalla, sem er að verða
ansi leiðigjarn hjá þeim
blaðamönnum sem hal'a tal
af hinum og þessum áhuga-
verðum persónum. Sá sem
tekur viðtalið við Hörð byrj-
ar sem sagt á því að tala um
sjálfan sig og eyðir öllum
feitletraða innganginum í
það. Það er engu líkara en
sjálfur Illugi Jökulsson hafi
skrifað þennan inngang,
en Illugi er sá Ijölmiðlamað-
ur sem einna mest talar um
sjálfan sig, þegar hann þykist
vera að tala um annað.
Áðurnefndur feitletraður
inngangur er nákvæmlega 23
línur í eindálki. 1 þessum
stutta inngangi tekst blaða-
manninum að minnast á sig
hvorki meira né minna en 13
sinnum. Og í stuttu viðtalinu
tekst honum að geta sín beint
og óbeint 13 sinnum til við-
bótar, eða samtals 26 sinn-
um!
Með allri virðingu fyrir
viðkomandi blaðamanni, þá
ætla ég að halda áfram að-
finnslum og nú vegna mál-
farsins. Hver setningin rekur
aðra, þar sem blaðamaður-
inn eykur óþörfum orðum
við setningar. Hér eru nokk-
ur dæmi:
1. . . . ,,og athuga hvort
hann fullnægði upp settum
skilyrðum".
2. „Varla hefur hann klippt
sig svona sjálfur, velti ég fyrir
mér“.
3. „Nei, getur ekki verið,
sannfærði ég sjálfan mig um".
4. „Jæja, ætli égséekki bú-
inn að yfirheyra manninn
nægilega í bil. Ég þakkaði
fyrir og fór“.
Ágætu ritsjórar! Nú má
vel vera að sá blaðamaður
sem ofangreint viðtal tók, sé
nýliði, eða unglingur í starfs-
kynningu. En hvort sem er,
þá er nauðsynlegt að lesa yfir
slík viðtöl og slípa af þeim
vankantana. Ef um ungling í
starfskynningu er að ræða,
þá er sjálfsagt að geta þess á
síðum blaðsins, það er jafnan
gert og kemur í veg fyrir
harða dóma sem þennan.
Með bestu kveðjum og
framtíðaróskum.
Ragnar Lár
Frá ritstjórum
Öllum er hollt að fá smá
gagnrýni og því þökkum við
Ragnari Lár fyrir þessi skrif.
Jafnframt viljum við benda á
að sá sem skrifaði umrædda
grein var hér til reynslu, og
eftir að hafa skrifað þetta
viðtal, lauk þeim reynslu-
tíma.