Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.1988, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 10.03.1988, Blaðsíða 14
ViKurt 14 Fimmtudagur 10. mars 1988 jutUt LESENDUR HAFA ORÐIÐ - Það á að blóðga keiluna! Vcgna skrifa „sjómanns" um að ckki hal'i verið borgað fyrir góða meðhöndlun á kcilu hjá okkur i Sjóllski s.f., viljum við gjarnan fá að nota tækifærið og skýra stöðu mála eins og þau hafa þróast og hvcrnig þíiu mál slanda í dag varð- andi blóðgun á keilu, svo ogsölu á þeirri afurðsem viðerum að verka, sem er söltuð keilutlök. Varðandi viðskipti okkar við „sjómann" þá fór keilan af hans bát inn á Fiskmarkað Suðurnesja og var boðin þar uppeinsogannar fiskur og slcginn hæstbjóðanda eins og cðlilegt er. F.n á þeim tíma var Sjófiskur s.f. nánasteini kaup- andi á keilu, þannigaðsamkeppn- in var ekki mikil. Þó „sjómaður" væri að landa mjögseint að kvöldi, á bilinu 22:00 til 23:30, og aflinn kannski ekki meiri en 100-300 kg, lögðum við okkur í líma við að kaupa af honum keiluna. Einmitt vegna þess að hann blóðgaði vorum við kannski eini kaupandinn sem bauð í þá keilu. Þá vcgna þess að aðrir stóðu ekki í þvi að bjóða í fiskinn fyrir svona slalla og hvað hann kom seinl i land. Það er dýrt að sækja svona lít- ið magn út í Sandgerði á sama tíma og 80% af okkar keilu var keypt af bátum l'rá Grindavík. Athugum það að keilan af sum_- um bátunum seldist alls ekki. A þessum tíma voru engir merkjan- legir erfiðleikar á því aðseljasölt- uð keilullök, hvort sem hún var blóðguð eða ekki, en lljótt skipast veður í lofli. í byrjun febrúar konia ákveðin aðvörunarmerki frá mörkuðunum á Italíu og Spáni um að þeir séu ekki alveg sáttir við keiluflökin frá íslandi vegna blæbrigða fiskholds- ins. I samanburði við flök annars- staðar frá voru flökin frá okkur mun dckkri. Færeyingar skila skjannahvítum keiluflökum inn á þessa markaði, enda blóðga þcir alla keilu. Þeir sem sjá um sölu- málin á þessari afurð, SÍF (Sölu- samband ísl. fiskframleiðcnda), héldu þá að þetta væri væg kvört- un sem hjaðnaði og af því þyrl'ti ckki að liafa áhyggjur. Við hjá Sjófiski s.f. tókum fullt mark á þessum aðvörunarmerkj- um og rcyndum þá að fá sjómenn, þá sem við náðum tali af, að blóðga og buðum þeim hærra verð fyrir. En móttökurnar voru þærað það kæmi ekki til greina. Vorum við jafnvel kallaðir kjánar að láta okkur detta þetta í hug. Þetta hafi ekki verið gert og engin ástæða til að byrja nú. En viðviljum minnaá að það er til reglugerð scm segirað það eigi að blóðga keiluna enda gildir sama um keiluflök og þorsk- flök í þessu sambandi. Verða þorskflökin hvítari ef þorskurinn er blóðgaður lifandi og um það ef- ast enginn. Síðan þann I. mars kom sprengjan. S.I.F. tilkynnir okkur að markaðirnir á Italíu og Spáni hafni alfarið keiluflökum frá Is- landi nema við getum komið mcð sambærilega vöru og aðrar þjóðir komi mcð. Liggur S.I.F. nú með nokkra tugi tonna af keiluflökum sem seljast ekki. Þetta er ekki skrifað til að skammast út í einn eða neinn, heldur sem vinsamleg tilmæli til þeirra sem að þessu standa. Að taka nú höndum saman og laga þessa hluti. Þannig getum við boð- ið þessa vöru sem 1. flokks vöru inn á dýrustu en jafnframt hörð- ustu markaði sem til eru. Reynum aftur að ná fótfestu á þessum mörkuðum með keiluna okkar, enda státum við okkur af þvi að vera með besta hráefni i heimi. Það er okkar trú að innan ekki mjög langs tíma þá borgi þessir markaðir mjög svipað verð fyrir keiluflök og þorskflök. Þá getum við(verkendur)borgað mun hærra verð fyrir keilu upp úr sjó en gert er í dag. Að lokum, sjómenn og verkendur, tökum saman höndum og verðum með bestu vöruna á þessum mörkuðum eins ogöðrum. Með vinsemd og virðingu, Félagarnir í Sjófiski s.f. HRINGIÐ EÐA SKRIFIÐ Gjaldheimta Suðurnesja: Hægt að greiða reikn- inga í bankastofnunum Vegna lesendabréfs í næst síðasta tölublaði um stað- setningu nvrrar gjaldheimtu á Suðurnesjum hafði Ásgeir Jónsson, gjaldheimtustjóri, santband við blaðið og ósk- aði eftir því að koma á frani- færi eftirfarandi. Sagðist hann geta tekið undir það að svona stofnanir ættu lielst að vera á jarðhæð, með tilliti til eldra fólks og öryrkja. Þó væri núverandi húsnæði mjög hentugt að mörgu leyti og um það var gert sam- komulag að staðsetja gjald- heimtuna þar. Asgeir sagði að aðal niáíið væri þó það.að hægt væri að greiða reikn- inga tii gjaldheimtunnar í ölium afgreiðslum spari- sjóðsins í Kellavík, Grinda- vík, Njarðvík og Garði, Landsbankanum í Sand- gerði og Grindavík. Sam- vinnubankanum í Ketlavík og Utvegsbankanum í Vog- unt. Flestar þessar stofnanir væru með aðgang á jarðhæð og því hentugar fyrir eldra fólk og fatlaða. Bensínafgreiðsla Starfsfólk óskast í bensínafgreiðslu Aðal- stöðvarinnar. Nánari upplýsingar hjá framkvæmdastjóra eða á skrifstofunni, * AÐALSTÖÐIN HF. Keflavík - Símar 11518, 14450 Starfsfólk óskast Starfsfólk óskast í neðantalin störf með umsóknarfresti til 20. mars næstkomandi. LEIKSKÓLI: Forstöðumaður í tímabundið starf frá 1. apríl til 1. september. Starfsmaður í hálft starf fóstru eftir hádegi, frá 15. maí. Ræstistarf frá 1. apríl. GÆSLUVÖLLUR: Umsjónarmaður og annað starfsfólk frá 15. maí til 1. september. Grindavík, 22/2 1988. Bæjarstjóri ATVINNA Okkur vantar starfsfólk í fiskverkun, hálfan eða allan daginn. Góð laun. - Upplýsingar í síma 11922. SJÓFISKUR SF. ATVINNA Sjúkrahús Keflavíkurlæknishéraðs og Heilsugæslustöðvar Suðurnesja óska eftir að ráða starfsfólk til sumarafleysinga í eft- irtalin störf: 1. Læknaritari. - 2. Símavarsla. - 3. Ræst- ingar. - 4. Skrifstofustarf. - 5. Þvottahús. - 6. Meinatæknar. - 7. Hjúkrunarfræðingar. - 8. Ljósmæður. - 9. Sjúkraliðar. -10. Spjald- skrárritun. Sum þessara starfa eru unnin ádagvinnu- tíma, en önnur eru vaktavinnustörf. Þeir sem hafa áhuga eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband sem allrafyrst við hjúkrunarforstjóra SK eða HSS, eða undirritaðan, í síma 140000, sem allrafyrst. Best væri að viðkomandi gæti komið á staðinn og kynnt sér störfin. Þeir sem eiga inni eldri umsóknireru vin- samlegast beðnir um að endurnýja þær. Umsóknarfrestur er til 20. mars. Framkvæmdastjóri Áskorun til hundaeigenda Kona úr Njarðvík hringdi í blaðið í vikunni og vildi koma á framfæri áskorun til hunda- eigenda í Njarðvík, að hafa hunda sína í bandi eða loka þá inni. I vikunni réðist hundurá 4 ára gamla dóttur konunnar á Hlíðarveginum i Njarðvík og hræddi hana rnikið, þó svo að hann hafi ekki bitið hana. Hér með komurn við þessu á framfæri. Óánægður með símaþjónustu Eg hringdi í skrifstofu bæjarfógetans í Keflavík klukkan 11.50 á þriðjudag vegna upplýsinga um bif- reiðagjöld. Beið ég síðan í símanum til kl. 12.05 eftir að fá samband við réttan aðila, en þá slitnaði sambandið. Hringdi ég þá strax aftur, en fékk svarið að viðkom- andi væri farinn í mat. Þess vegna spyr ég: Fyrir hvern er opið í hádeginu? EKG Vegna þessa höfðum við samband við Börk Eiríks- son, skrifstofustjóra bæjar- fógetaembættisins. Sagði hann það vera misskilning hjá viðkomandi að opið væri í hádeginu. Varðandi biðina í símanum virtust annað hvort hafa verið á ferðinni mannleg mistök eða of rnikið álag á síma- kerfinu, sem oft gæti komið fyrir.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.