Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.1988, Page 5

Víkurfréttir - 10.03.1988, Page 5
MÍK Uli juWt Fimmtudagur 10. mars 1988 5 Fór út af brautinni Flutningaflugvél af gerðinni Boeing 737 frá El Salvador fór um fimmleytið á sunnudags- morgun út af akbraut flugvéla að Leifsstöð. Tókst ekki að ná henni aftur inn á brautina að sögn Péturs Guðmundssonar flugvallarstjóra og því varfeng- in aðstoð frá slökkviliði Kefla- víkurflugvallar og Ellert Skúla- syni til að ná vélinni upp. Sagði Pétur í samtali við blaðið að vélin hefði verið að koma frá Gander og var kom- in að beygju er óhappið varð. Sagðist hann ekki geta skýrt frá því á þessari stundu (mánudag) hvað hefði komið upp á en vélin seig nokkuð nið- ur í aurbleytu utan brautar- innar þar sem klaki er að fara úr jörðu. Var flugvélin dregin inn í flugskýli og skoðuð þar og yfirfarin en fór síðan til Frakk- lands um kl. 23 á sunnudags- kvöld. Mannskapinn íflugvél- inni sakaði ekki en hingað kom hún aðeins til millilend- ingar. WJP mr Fegurðardrottning V Suðurnesja verður krýnd í Glaumbergi laugardaginn 12. mars. - Uppselt í kvöldverð. - Takmarkaður fjöldi miða eftir borðhald seldir föstudag. - Húsið opnað fyrir dansleik kl. 00.30. Hljómsveit Grétars Örvarssonar leikur fyrir dansi. - Veitingahúsið Glaumberg óskar öll- um keppendum góðs gengis. Reiðhjóla- árekstur í Keflavík Síðdegis á þriðjudag skullu tvö reiðhjól saman á Víkur- braut i Keflavík, með þeim af- leiðingum að annað féll við og var sá sem á því var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið, en meiðsli hans reyndust aðeins smávægileg. Sýnir myndin er lögreglan var að fjarlægja annað hjólið af vettvangi. FÖSTUDAGUR 11. MARS: Opið 22-03. - Lalli og Jón þeyta skífur af stakri snilld. Nú er tækifærið Verslunin RÓM, Tjarnargötu 3, er til sölu. Góður sölutími framundan. Upplýsingar í síma 12764 eftir kl. 19 og í versluninni eftir kl. 13. Ljósm.: hbb. Viltu bjóða heimsmeistar- anum ífermingarboðið? Ef hann getur ekki komið, þá getum við alla vega boðið verðuga skákandstæðinga í fermingarboðið, - skáktölvur, viðurkenndar af sjálfum heimsmeistaranum Garry Kasparov. Skáktölva er framtíðar fermingargjöf. - Verð frá kr. 2.300.- Frístund Holtsgötu 26 - Njarðvík - Sími 12002 "IfKASPAROV ///SAt C H E S S COMPUTER

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.