Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.03.1988, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 10.03.1988, Qupperneq 20
20 Fimmtudagur 10. mars 1988 \>iKm juWt UIVflFG úr leik eftir Tvöfalt hjá FS Körfuknattleiksmót fram- haldsskólanna var haldið í Keflavík og Njarðvík sl. helgi. Lið Fjölbrautaskóla Suður- nesja sigruðu í bæði karla- og kvennaflokki. Strákarnir unnu Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki 53:48 og stúlk- urnar burstuðu Mennntaskól- ann í Hamrahlíð 51:17. UIVIFN tapaði báðum leikjunum UMFN tapaði báðurn leikj- um sínum í Bikarkeppni körfu- knattleikssambandsins. Sá l'yrri endaði 51:71. Stað- an í leikhlé var 27:33. Gömlu kempurnar, Þor- steinn Bjarnason, Júlíus Val- geirsson, Guðsteinn Ingimars- son og fléiri, kontu skemmti- lega á óvart, byrjuðu leikinn með mikilli baráttu og náðu forskoti, 13:6. En þeir hafa kannski eytt of ntiklu púðri strax i byrjun, því eftir það stálu Haukar senunni og sigr- uðu. Það sent spilaði einnig inn í var dómgæsla Jóhanns Dags og Bergs Steingrímssonar, en hún var alveg út í hött oft á tíð- um. Stigahæstu ntenn UMFN: Þorsteinn Bjarnason 22 og Júlíus Valgeirsson 7. I síðari leiknum var háll'- g e r ð u r u p p g j a f a r t ó n n í Njarðvíkingum og Haukar unnu þar léttan sigur, 100:77, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 48:35 fyrir Hauka. Stigahæstir hjá UMFN: Þorsteinn Bjarnason 19, Gunnar Þorvarðarson 17 og Stefán Bjarkason II. Dúbl í horn! OPIÐ Billiard (snóker) er skemmtileg íþrótt sem allir geta leikið, ungir sem eldri. Leiðbeinendur ef óskað er. Sjö 12 feta borð oq kiuðar fvrir alla. alla daga frá kl. 11.30-23.30. Pantið tíma eða komið. Knattborðsstofa Suðurnesja Grófinni - Keflavik - Sími 13822 tvo lafntefli Síðari leikur Grindvíkinga og IR-inga í átta liða úrslitum Bikarkcppni K.S.Í. endaði með jafntefli 68:68. ÍR-ingar höfðu betur í hálflcik 33:27. Fyrri leiknum lauk einnig með jafntefli, 63:63, en þar sem IR-ingar skoruðu fleiri stig á útivelli halda þeir áfram í undanúrslit. Leikurinn var hraður og spennandi frá lyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Grindvíking- ar byrjuðu mjög vel meðskot- helda vörn og kraftmikla sókn. Fljótlega komu þó smugur I vörn þeirra og nýttu IR-ingarnir sér það vel. Grind- víkingar náðu góðu forskoti 9:2 og 20:14 en ÍR-ingar söx- uðu jafnt og þétt að þeim þeg- ar líða fór að leikhléi, jafna 20:20 þegar um 7 mín. voru eftir og höfðu yfirhöndina eftir það. Staðan í leikhléi var 33:27 fyrir ÍR. Grindvíkingar voru ekki af baki dottnir og sýndu hvað í þeim bjó þegar líða fór á síðari hálfleik. Staðan var 50:60 þeg- ar um 10 mín. voru til leiks- loka en Grindvíkingum tókst að minnka muninn í 56:60. Þeim tókst þó ekki að jafna fyrr en tæplega mínúta var til leiksloka en þá jafnaði Stein- þór Helgason leikinn 68:68. Þegar 51 sek. var eftir var upp- kast og Grindvíkingar ná bolt- anum, Hjálmar Hallgrímsson reynir skot, hittir ekki en Grindvíkingar ná boltanum aftur og að þessu sinni var það Jón Páll Haraldsson sem reyn- ir skot, hittir, en því miður var tíminn útrunninn áður en hann tók skotið. Stigahæstir hjá Grindavík voru: Hjálmar Hallgrímsson 14, Steinþór Helgason 13 og Guðmundur Bragason 11. „Það var grátlegt að tapa þessum leik,“ sagði Rúnar Arnason eftir leikinn. „Mér fannst dómgæslan mjög léleg og setti visst strik í reikning- inn.“ Hjálmar Hallgrimsson, Grindvíkingur, skorar í leiknum gegn 1R. Ljósm.: G.H. ATV9NNA Vantar fólk í vinnu. Mikil vinna. - Upplýs- ingar í síma 13866. HAPPASÆLL SF. Reynissigur í nágrannaslag - Reynir vann UMFN 34:33 í 2. deild í handboltans Reynismenn unnu Njarðvík- inga í liörku spcnnandi og harðri viðureign í Sandgerði á þriðjudngskvöldið. I lokin skildi aðcins eitt mark á milli, 34:33. Reynir liafði vfir í lcikhlé, 23:20. Elvar Grétarsson, horna- maðurinn ungi, skoraði sigur- mark Reynismanna á elleftu stundu. Það var heitt í kolun- Pétur Ingi var atkvæðainestur Njarðvíkinga með 10 ntörk. Willum Þór Þórsson skoraði 11 mörk fyrir Reyni. hálfieik komust Njarðvíkingar yfir í fyrsta sinn 27:28 og loka- mínúturnar skiptust liðin á að Itafa forystu. Elvar Grétars- son skoraði svo sigurmark Reynis eins og áður er lýst og tryggði sínum mönnum góð stig. Willum þór og Stefán Arn- arsson voru atkvæðamestir Reynismanna, en Pétur Ingi og Arinbjörn hjá UMFN. Þetta varekta nágrannaleik- ur, mikill hraði, harka og mis- tök á báða bóga. UMFN er eftir þennan leik í 5. sæti með 18 stig í deildinni, en Reynis- menn í næsta sæti með 14 stig. Mörk Reynis: Willum Þór 11, Slefán 6, Sigurður Óli 6, Páll 6, Elvar 3 og Kristinn A. 2. Mörk UMFN: Pétur Ingi 10, Arinbjörn 9, Heimir 5, Pétur Á. 5, Snorri 2, ValtýrogGuðjón 1 hvor. um á lokamínútunum og Ólafur Tordersen, Njarðvík- ingur, fékk alvöru kælingu - rauða spjaldið. R e y n i s m e n n b y r j u ð u leikinn af fítonskrafti og kom- ust í 10:2, en Njarðvíkingar voru ekki á því að gefa sig. Með Pétur Inga í fararbroddi náðu þeir að minnka muninn í 3 mörk lyrir leikhlé. I seinni Njarðvíkingur I olympíuliðið Ungur Njarðvíkingur, Geir Sverrisson, hefur verið valinn til að keppa fyrir Is- lands hönd á Ölympíumóti fatlaðra í Seoul í október, sem er mánuði eftir Olymp- íuleikana. Geir á þegar Islandsmet í 100 metra og 50 metra sundi. Er metið í 100 metrunum 1,22:55 og hefur hann bætt það nú nýverið um 22 sek- úndur (í Malmö í Svíþjóð). Metið var áður en hann setti það 1,30:8. Stórsigur IBK Um sl. helgi kepptu í 1. deild kvenna Njarðvík og Kefiavík. Þeim leik lauk með stórsigri Kefiavíkurstúlkn- anna, 39:75. í hálfieik var 14:27 Kefiavík í vil. ÍBK er þá efst með 22 stig, en Njarðvík er í næst neðsta sætinu nteð 6 stig. Síðasta púttkvöldið Síðasta púttkvöld vetrar- ins hjá Golfklúbbi Suður- nesja verður í Golfskálanum í Leiru á morgun, föstudag. Félagar eru hvattir til að fjöl- menna á þetta síðasta pútt- kvöld og taka með sér gesti. UIVIFN AFRAM UMFN vann Breiðablik i fyrri leik liðanna í bikar- keppninni, 96:51 eftir að staðan í hálfieik hafði verið 47:27. Njarðvíkingar náðu góðu forskoti strax í byrjun, 21:13 og 30:19, oggáfu Blik- um aldrei færi á að jafna. I síðari hálfieik juku Njarðvíkingar enn á forskot sitt og stungu Blikana alveg af. Stigahæstir Njarðvíkinga voru: Valur Ingimundar 16, Teitur Örlygsson 14 og Árni Lárusson 12. Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í 4ra liða úrslitum í Bik- arkeppni KKI, er þeir sigr- uðu UMB í Digranesi á þriðjudagskvöld, eftir að hafa leitt í leikhlé, 36:32.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.