Víkurfréttir - 07.04.1988, Síða 5
Keflavík:
Fæðingadeildin
verður opin í sumar
Ákveðið hefur verið að
fæðingadeild Sjúkrahúss
Keflavíkurlæknishéraðs
verði opin í sumar þrátt
fyrir sumarleyfi starfs-
fólks. Sólveig Þórðardóttir
upplýsti á fundi stjórnar
SK nýverið, að hægt yrði
að manna deiidina án veru-
legrar aukavinnu.
Stjórn SK hefur hins
vegar samþykkt að skurð-
stofa sjúkrahússins verði
lokuð 17. júní til 1. ágúst.
íslenskir Aðalverktakar hf.:
Veittu eina milljón
til hjúkrunardeild-
ar Garðvangs
Fyrirhugað er að kaupa
búnað til sjúkra- og iðjuþjálf-
unar á hjúkrunardeild Garð-
vangs á næstunni. Af því til-
efni ritaði framkvæmdastjóri
dvalarheimilanna bréf til Is-
lenskra Aðalverktaka og fór
þess á leit við stjórnendur fyr-
irtækisins að þeir sæju sér fært
að veita einnar milljóna króna
styrk til málefnisins.
Hefur nú borist svar við
beiðni þessari frá Islenskum
Aðalverktökum hf. ásamt
1.000.000 kr. framlagi. Hefur
stjórn DS samþykkt þakkir
fyrir þetta rausnarlega fram-
lag.
Keflavík - Keflavíkurflugvöllur:
Langflestir nota
bílbelti og ökuljós
Dagana 14. til 18. mars
kannaði lögreglan að ósk Um-
ferðarráðs notkun bílbelta og
notkun ökuljósa að degi til.
Kom þá í ljós að á landsvísu
voru ljósin mest notuð í
Grindavík eða 98%. Á Kefla-
víkurflugvelli notuðu 96%
ljósin sem var í þriðja sæti yfir
landið, þá höfðu 98% bíla i ná-
grenni Keflavíkurljósin kveikt
þessa daga.
í hliðum Keflavíkurflug-
vallar voru sömu daga 97%
ökumanna í bílbeltum og 96%
farþega í framsætum. Virðast
Suðurnesjamenn því vera með
löghlýðnari mönnum, því víða
var útkoman slök.
Erill hjá lögreglu
um páskana
Nokkuð mikill erill var
hjá lögreglunni í Keflavík,
Njarðvík og Gullbringu-
sýslu yfir páskahátíðina að
sögn Karls Hermannsson-
ar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns. Var mikið um ölvun
á þessum tíma, bæði í
heimahúsum og úti við. En
alls var lögreglan kölluð út
78 sinnum, þar af 13 sinn-
um vegna heimilisófriðar.
Þá voru fimm ökumenn
teknir fyrir grun um
meinta ölvun við akstur og
umferðaróhöpp urðu jafn
mörg. Af óhöppunum
voru tvö leyst milli aðila án
afskipta lögreglu og í einu
tilfellanna var ekið á dreng
en hann slapp án teljandi
meiðsla.
Hið eilífa vandamál
varðandi ólögleg fjórhjól
kom upp um helgina er
hafa þurfti afskipti af slík-
um ökutækjum í Hafna-
hreppi.
Fimmtudagur 7. apríl 1988
Miðbryggjan utan skipulags
Bæjarráð Keflavíkur tók
fyrirá fundi sínum 22. marser-
indi frá Jóhanni Sveinssyni,
þar sem hann hvetur bæjar-
yfirvöld til aðgerða og lagfær-
inga á Miðbryggju (þ.e. sú
bryggja sent stendur við Hafn-
argötu neðan Kellavíkur hf.).
Bókun ráðsins um niáiið
varð svohljóðandi: ,,Þar sem
staðfest aðalskipulag dags.
7.9. ’83 gerir ekki ráð fyrir að
hafnarmannvirki séu staðsett
á umræddu svæði, getur bæjar-
ráð ekki orðið við umræddri
beiðni".
DYRAVÖRÐURINN
SEM ALDREI
SEFUR Á VERÐINUM
Þú þarft ekki lengur að taka úr þér hrollinn þegar heim
kemur eftir að Stanlev bílskúrshurðaropnarinn er kominn
í þjónustu þína. Þú ýtir á senditækið, það kviknar Ijós,
bílskúrshurðin opnast og þúekurinn íylinnog stígurþurr-
um fótum út úr heitum bílnum þínum.
ÞÚ FERÐ BETUR MEÐ BÍLINN ÞINN
Á morgnana losnar þú við að skafa ísinn af rúðunum, eða
þurrka snjóinn af og bíllinn fer strax í gang. Þetta er ekki
sagt út í bláinn, því að reynslan sýnir að það eru ótrúlega
/friargir sem nenna ekki að láta bílinn inn í bílskúr ef mikið
er fyrir því haft.
Opnarinn er samþykktur af Rafmagnseftirliti ríkisins og
Radíóeftirliti Landssímans.
1. Sterk og örugg færslubraut.
2. Við uppsetningu er óþarfi að fjarlægja mótorhlífina því
að það er hægt að stilla búnaðinn utan frá.
3. Öryggisljós kviknar í hvert sinn er hurðin opnast og
lokast, - logar í 31/2 mínútu - slokknar sjálfkrafa.
ALLAR STANLEY VÖRUR ERU
VIÐURKENNDAR FYRIR GÆÐI.
f stanley!
Járn & Skip
VA/ÍKURBRAUT - SÍMI 11505