Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 9
\)iKun
jUUU
Fimmtudagur 7. apríl 1988 9
Sundmiðstöðin:
Sex vikum á
eftir áætlun
Byggingarnel'nd sundmið-
stöðvar í Keflavík ræddi um
stöðu framkvæmda á lundi
sínum 22. mars sl. Þar kom
fram að staða verksins þann
dag var þannig að búið var að
steypa hluta af lofti yfir kjall-
ara og verið var að vinna við
uppslátt á sundlaugarveggjum
en gert var ráð fyrir að steypt
yrði í þá um síðustu mánaða-
mót.
Einnig kom fram að verkið
væri u.þ.b. sex vikum á eftir
verkáætlun sem gerð var síð-
asta sumar. Þá vará fundinum
bókuð ítrekun á fyrri sam-
þykkt frá 20. jan. 1988: ,,Því
Íjóst er að ef ætlunin er aðtaka
sundmiðstöðina í notkun um
mitt árið I990, verður á næstu
vikum að taka ákvörðun um
framhald verksins".
Kominn tími til
að úr sé bætt
íbúi við Mávabraut skrifar:
Oft hef ég viljað kvarta en
aldrei gert, en nú er það orðið
tímabært.
Við þessa ágætu og grónu
götu hafa 2 nýjar byggingar
verið í smíðurn. Þessi hús hafa
ekki verið girt af. Allskonar
slysagildrur hafa þar verið að-
gengilegar börnum. Sóða-
skapurinn hefur líka verið
mikill frá byggingum þessum.
Drullusvað í kringum þetta
sem að sjálfsögðu dregur börn-
in að.
Við Mávabraut er leikvöllur
sem ætlaður er fyrir börn og
hvernig er hann útlits? Spýtur,
járn og allskyns drasl er þar
úti. Mjög þægilegt ef börnin
detta um þetta og naglaspýtur
stingast í gegnum allt. Möl,
mold og grjót í haugum yfir
girðinguna, sem sjálfsagt er öll
mölbrotin þar undir, þetta
skagar langt inn á leikvöllinn.
En nú spyr ég: Hver ætlar að
koma inn í húsagarða okkar
og hreinsa einangrunarplast
sem liggur í smá bútum um allt
á lóðum og í innkeyrslum?
Þetta myndi ekki líðast ef
þetta væri við aðalgötu bæjar-
ins. Mérfinnst nú tími kominn
til að úr sé bætt og er ég ekki
ein unt það.
Já, og eitt enn, úr því að ég
er farin að kvarta. Oft er talað
um hraðahindrunaræði hér í
Keflavík, jú þær eru nauðsyn-
legar. Hvað með þærgötur þar
sem leikvellir eru? Þar sem
börn eru alltaf á hlaupum yfir
og líka hjólandi.
Talað er um að undirskrift
allra íbúa götunnar þurfi til að
hraðahindrun sésett upp. Mér
finnst að þar sem leikvöllur er
sé þetta engin spurning, þetta
á að vera til staðar, sjálfsagður
hlutur, til varnar börnunum.
Vel að nterkja, þarna við
þessa götu er ekki einu sinni
umferðarmerki sem sýnirleik-
svæði. Nú skora ég á viðkom-
andi aðila að bæta úr þessu.
Kaupfélagið
gleymir okkur
Grindvíkingum
Ég er rnjög sárreiður í garð
kaupfélagsins fyrir hönd okk-
ar Grindvíkinga, eftir lestur
fréttar í Víkurfréttum frá aðal-
fundi félagsins. Ekki það að
fréttaflutningurinn hafi verið
slæmur heldur hitt að aðal-
fundurinn virðist alveg hafa
gleymt tilvist okkar.
Þar á ég við úthlutun menn-
ingarverðlauna til ýmissa að-
ila en engra hér í Grindavík.
Þó er nærtækt t.d. I00 ára af-
mæli skólakennslunnar og
ferð nemenda til vinabæjar
Grindavíkur, Penistone. Það
rná ekki skilja þetta svo að ég
sjái ofsjónum yfir styrkveit-
ingurn til nemenda Holta-
skóla, þeir eiga þetta alveg
skilið, en það eiga grindvískir
nemendur líka.
Að lokum þetta: ErGrinda-
vík ekki líka á félagssvæði
kaupfélagsins?
Oánægður Grindvíkingur
Hringið eða skrifið
og leggið orð í belg!
Pósthólf 125 eða sími 15717
^mi^:
K
NÚER
RÉTTI
TÍMINN
FYRIR
o
INNI-
HURDIRNAR
SLÉTTAR HURDIR
FULNINGAHURDIR
SÉRSMlDAÐAR HURÐIR
LANDSINS
MESTA
ÚRVAL
BYGGINGAV0RUR
Iðavöllum 7 - Keflavík
Sími 14700
tlllil" k
TRÉ _\/