Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 07.04.1988, Blaðsíða 16
MÍKUK 16 Fimmtudagur 7. apríl 1988 ATVINNA Starfskraftur óskast í verslunina Kósý. Vinnutími frá kl. 1 - 6 og aðra hverja helgi. Upplýsingar í versluninni. KÓSÝ Hafnargötu 6 - Sími 14722 Fríhöfn, Kefla- víkurflugvelli óskar eftir starfsfólki til afleysinga ísumar, í verslun, skrifstofu, lager og við bifreiða- stjórn (meirapróf). Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Frí- hafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Aldurstakmark við vinnu í verslun 20 ár. Umsóknum sé skilað fyrir 13. þessa mán- aðar. ATVINNA Óskum eftir að ráða starfsfólk í rækju- vinnslu strax. Mikil vinna framundan. Akst- ur til og frá vinnu. Upplýsingar í síma 27049. SKELVER HF., Garði Lögreglu- starf Nokkra lögregluþjóna vantar til sumaraf- leysinga. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögreglu- þjóni er veitir allar frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k. Lögreglustjórinn í Keflavík, Grindavík, Njarðvík og Gullbringusýslu Starf útibússtjóra Laust er til umsóknar starf útibússtjóra umboðsskrifstofu Samvinnutrygginga GT í Keflavík. Hér er um að ræða starf sem felur m.a. í sér umsjón með rekstri um- boðsins og ábyrgð á því. Allar nánari uppl. veittar áaðalskrifstofu fé- lagsins hjá starfsmannahaldi, Ármúla 3, Reykjavík, sími 91-681411. SAMVINNUTRYGGINGAR GT Ragnarsbakarí óskar eftir '' að ráða - bakarasvein eða meistara - aðstoðarfólk við bakstur - aðstoðarfólk í pökkun - skrifstofustúlku. Upplýsingar í síma 12120 hjá Sigurði eða Guðrúnu. Ragnarsbakarí Fiskverkun Starfskraftur óskast hálfan eða allan dag- inn. Upplýsingar í síma 15081. Skrifstofustarf í Keflavík Óskum eftir að ráða til starfa nú þegar í starf skrifstofumanns. Hér er um framtíð- arstarf að ræða. Krafist er ensku- og vélrit- unarkunnáttu. Góð laun í boði fyrir hæfan starfsmann. Umsóknir leggist inn á skrifstofu Víkur- frétta fyrir 15. apríl, merkt ,,832“. Laus staða Staða rannsóknarmanns hjá Veðurstofu íslands á Keflavíkurflugvelli er laus til um- sóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfs- manna ríkisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist samgöngu- ráðuneytinu fyrir 23. apríl 1988. Veðurstofa íslands Skrifstofustarf Flugmálastjórnin á Keflavíkurflugvelli óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu flug- vallarstjóra í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áskilin er góð íslensku- og enskukunnátta. Ennfremur góð vélritunarkunnátta. Æski- legt er að viðkomandi hafi bifreið til um- ráða. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar um starfið, kaup og kjör, eru veittar á skrifstofu flugvallarstjóra og skal senda skriflegar umsóknir þang- að. Umsóknum skal skilað fyrir 16. apríl 1988. Flugvallarstjórinn á Keflavíkurflugvelli jutUt Fjögur ný hlutafélög Hlutafélagaskrá hefur bor- ist fjórar nýskráningar yfir fyrirtæki á Suðurnesjum sem ekki hafa áður verið kynnt hér í blaðinu. Um er að ræða út- gerðar-, fiskvinnslu-, verk- taka- og smásölufyrirtæki, staðsett í Garði, Keflavík og Njarðvík. Skelver h.f., Garði, er fyrir- tæki á sviði fisk- og rækju- vinnslu, stofnað af Ottó Þorm- ar, Sandgerði, og aðilum í Reykjavík. Þ. Guðjónsson h.f., Keflavík, er verktakafyrirtæki í bygg- ingariðnaði, stofnað af Þór- halli Guðjónssyni, Steinunni Þorleifsdóttur, Lárusi Þór- hallssyni og Guðjóni Þórhalls- syni, öllum í Keflavík. H-Borg h.f., Innri-Njarðvík, er smásölu- og heildsölufyrir- tæki, stofnað af Antoni Krist- inssyni, Kristjönu S. Vilhelms- dóttur, Jens Kristinssyni, Magneu Garðarsdóttur og Kristni Antonssyni, öllum í Njarðvík. Reykjanes h.f., Gerða- hreppi, er útgerðar- og fisk- verkunarfyrirtæki, stofnað af Hilmari Magnússyni og Oddi Sæmundssyni, báðum í Kefla- vík, Magnúsi Guðmundssyni, Höllu Þórhallsdóttur og Birgi Guðmundssyni, öllum í Garði. Fyrirtæki þetta er eigandi að nýsmíðuðum 9,9 tonna stál- báti frá Olsen, sem senn verð- ur sjósettur. Veð- heimild hafnað Stjórn Iþróttabandalags Keflavíkur hefur óskað eftir veðheimild bæjarsjóðs Kefla- víkur í Hringbraut 108, Keflavík, þ.e. íþróttavallar- húsinu. Hefur bæjarráð Kefla- víkur hafnað erindinu þar sem þess er getið í gjafabréfi til IBK að óheimilt sé að veðsetja við- komandi húseign. Steinborg I stað Steinsmíði Stofnað hefur verið í Njarð- vík nýtt verktakafyrirtæki er ber nafnið Steinborg h.f. og hefur það yfirtekið rekstur þann sem Steinsmíði annaðist áður. Stofnendur eru Torfi Smári Traustason, Sigfríður Sigur- geirsdóttir, Trausti Már Traustason, Trausti Einars- son og Erla Kristín Jónsdóttir, öll til heimilis í Njarðvík. Lausn á myndagátu Annars staðar í blaðinu birt- ist myndgáta sem unnin er úr fréttum blaðsins. Lausn gát- unnar er svohljóðandi: Ung- ntennafélag Grindavíkur er gott í körfunni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.