Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1988, Síða 7

Víkurfréttir - 14.04.1988, Síða 7
mun jutU% Flugvellin- um lokað Hert eftirlit hefur nýlega verið tekið upp í hliðum Kefla- víkurflugvallar. Kemst nú enginn inn á völlinn nema hann geti framvísað fullgildu vegabréfi (vallarpassa), út- gefnu af lögreglustjóranum á Keflavíkurflugvelli. Er þetta einn liðurinn í að- skilnaði almennrar flugum- ferðar og starfsemi varnarliðs- ins á Keflavíkurflugvelli. En með þessum aðskilnaði eru all- ar íslensku þjónustustofnan- irnar, sem fólk þurfti að sækja upp á völl, komnar út fyrir girðingu, þ.e.a.s. ráðningar- skrifstofa utanríkisráðuneytis- ins, Landsbankinn og aðrar skrifstofur er voru í gömlu flugstöðinni. Vertíðin að mestu brugðist Vetrarvertíð hér á Suð- urnesjum hefur að mestu brugðist nú annað árið í röð. j Keflavík telst þaðt.d. gott ef þrír bátar landa meira en 10 tonnum eftir daginn. Helst var það Staf- nesið sem einhverjum afla landaði í síðustu viku en þar var um ufsaafla að ræða. Litlu bátarnir hafa þó margir gert það gott og þá sérstaklega þeir allra minnstu. Hefur Auðhumla boríð þar af en hún hefur, eins og flestir þeirra litlu, verið með netin út á ytri höfninni, út af Vogastapa, Keflavíkinni eða á Stakks- firðinum. En á þessum stað hal'a einnig Hafnfírðingar og ýmsir aðrir lagt netin sín síðustu dagana. Fimmtudagur 14. apríl 1988 7 Finnbogi Björnsson, stjórnarformaður Hitavcitunnar, í ræðupúlti við upphaf aðalfundarins. Ljósm.: hbb. Aðalfundur Hitaveitunnar: Jóhann út - Karl inn Aðalfundur Hitaveitu Suð- urnesja var haldinn á Glóðinni í Keflavík síðasta föstudag. Var fundurinn mjög vel sóttur af sveitarstjórnarmönnum, þó voru engir fulltrúar frá meiri- hlutum bæjarstjórnarmanna í Njarðvík og Grindavík, aðeins minnihlutafulltrúarnir og bæj- arstjórarnir. Fundarstjóri var kosinn Stefán Jón Bjarnason, sveitarstjóri Miðneshrepps, og fundarritari Eiríkur Alexand- ersson, framkvæmdastjóri SSS. Annars staðar í blaðinu er getið ýmislegs fréttnæms frá fundinum en helst bar til tíð- inda varðandi fundarstörf að ríkið, sem á 20% í fyrirtækinu og tvo stjórnarmenn á móti 7 fulltrúum sveitarfélaganna, breytti um fulltrúa. Iðnaðar- ráðuneytið skipaði Olaf G. Einarsson í stað Jóhanns Ein- varðssonar sem setið hefur í stjórninni í 9 ár. Varamaður Olafs er Eiríkur Alexanders- son. Þá skipaði fjármálaráð- herra Karl Steinar Guðnason í •stjórnina í stað Ólafs G., sem áður hafði verið fulltrúi þess ráðuneytis. Varamaður Karls Steinars er Sigurbjörn Björns- són. Fulltrúar sveitarfélag- anna sitja allir áfram enda skipaðir í fyrra til fjögurra ára. - FATAKAUP VIKUNNAR Jogging-galli barna, 6-16 ....... Herra jogging-galli, stærðir M-XL .. Herrajakki, stærðir S-XXL ....... Panther-skór, stærðir 35-41 ..... Herra-nærbuxur .................. Kven-nærbuxur.................... Telpna-nærbuxur ...........i.... + telpna-bolur ................ Drengja-nærbuxur ................ + drengja-bolur .........J..... 149 TILBOÐ VIKUNNAR: - Ritz-kex .................... 10% afsl. Kellogg’s korn-flakes ........... 147 Kellogg’s Coco Pops ............. 112 Kiki shampoo ...................... 59 Kiki næring ....................... 99 Man shampoo ....................... 54 Man shampoo ....................... 62 Man shampoo ....................... 61 Man shampoo ....................... 76 Man shampoo, 1 Itr................ 157 Leni WC, 4 rúllur ................. 84 SAMKAUP 1495 2490 1990 595 79 75 75 149 75

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.