Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.04.1988, Qupperneq 15

Víkurfréttir - 14.04.1988, Qupperneq 15
\IÍKUR jutU* Fimmtudagur 14. apríl 1988 15 Karl Steinar Guðnason, alþingísmaður: Kvartar við útvarpsráð Karl Steinar Guðnason al- þingismaður hefur sent útvarps- ráði athugasemdir, umkvörtun og tillögu varðandi þjónustu ríkisútvarpsins á Suðurnesjum. Er tilefnið m.a. sú lélega frétta- þjónusta útvarpsins á nýliðinni Menningarvöku. Fer bréf Karls Steinars hér á eftir: Ríkisútvarpið - útvarpsráð, Efstaleiti 1, Reykjavík. Ég hefi ákveðið að senda vðurat- hugasemdir, umkvörtun og tillögu um þjónustu ríkisútvarpsins við Suðurnesjamenn. Kunnugt er sjálfsagt að á Suður- nesjum búa um 14.500 manns. A því svæði er fréttaþjónusta i algeru lág- marki. A Akureyri búa um 14 þús. manns. Austfjörðum rúml. 13 þús- und og Vestfjörðum rúntl. 10 þús. manns. Ríkisútvarpið og sjónvarp hefur sinnt þessum landshlutum sí- fellt betur. Daglega heyrast fréttir að norð- an. Fréttaþjónusta þaðan cr mjög góð. A Suðurnesjum hefursamstarf og samvinna þeirra sveitarfélaga er þar eru til staðar vaxið mjög á sið- ustu árum. Hér er sameiginlegur vinnumarkaður, þjónustufyrirtæki sveitarfélaganna lúta samciginlcgri stjórn og á sviði menningar og lista cru Suðurnesin ein heild. Hér starfa og fvrirtæki, sem þjóna öllu landinu. Utgerð og fisk- vinnsla er þrátt fyrir samdrátt fyrri ára með því mesta á landinu. Fél- ags-og íþróttalif erhérfjölskrúðugt og mitt á meðal byggðanna hér er eini alþjóðaflugvöllur landsins að ógleymdri varnarstöð Atlantshafs- handalagsins. I Suðurnesjabyggðum gerast daglega fréttnæmir atburðir, sem eiga erindi víðar en til Suðurnesja- manna. Þróun fjölmiðlunar hér á landi hefur verið ör síðustu árin. Útvarp og sjónvarp hafa leitast við að sinna betur skyldum sínuni við lands- byggðina. Það hefur sífellt komið betur í Ijós að málefni hins iðandi mannlifs, sem þrífst á landsbvggð- inni á fuilt erindi til allra lands- manna. Þrátt fyrir þessa staðrevnd hefur okkur á Suðurnesjum sífellt meir sviðið sú staðreynd að ríkisútvarpið /sjónvarp sinnir alls ekki eða afar takmarkað sjálfsagðri fréttaþjón- ustu af Suðurnesjum. Fúslega skal það þó viðurkennt að gerist eitthvað neikvætt, svo sem voðaverk eða slys þá gerir útvarp/sjónvarp undan- tekningu. Nú um páskana efndu Suður- nesjamcnn til mjög veigamikillar menningarvöku, sem stóð í hálfan mánuð. Þar var öllu til tjaldað í menningu og listum fólksins hér syðra. Forseti Islands og menntamála- ráðherra sáu ástæðu til að heiðra þetta framtak. Þá komu þúsundir manna til að njóta fjölmargra list- sýninga, leiksýninga, tónlistar, bókmcnntakynningar o.fl. Sjónvarpið sá hinsvegar ekki að mcnningarvakan væri fréttaefni. Útvarpið gerði opnunarhátíðinni skil, - þökk sé Ævari Kjartanssyni. Ekki skorti á að forráðamenn vök- unnar reyndu að vekja athygli áður- greindra fjölntiðla á þessum menn- ingarviðburði. Undirtektir voru já- kvæðar og vinsamlegar. Niðurstað- an varð hinsvegar sú að þetta fram- tak var gersamlega hundsað. Ég skrifa þetta bréf til að vekja athvgli útvarpsráðs á þessum „mis- tökurn", sem valdið hafa mikilli gremju hér syðra. Mér er Ijóst að úr þessu verður ekki bætt. Hinsvegar má forða því að slíkt endurtaki sig. Ég skora á útvarpsráð að koma þvi til leiðar að fréttaþjónusta á Suðurnesjum verði bætt. Það er til- laga mín að hér verði staðsettur fréttamaður er sinni málefnum Suðurnesja sérstaklega bæði hvað varðar sjónvarp og útvarp. Þannig yrðu Suðurnes ekki afskipt svo sem verið hefur. Ég og vafalaust Suður- nesjamenn allir telja að mannlif hér syðra sé engu ómerkara en norðan heiða a.m.k.ekki svo að menningar- legir viðburðir séu þagaðir í hel. Með vinsemd, Karl Steinar Guðnason Bílaleigan Geysir: Verslunar- mannafélag Suðurnesja Allsherjaratkvæðagreiðsla Stjórn og trúnaðarmannaráð Verslunar- mannafélags Suðurnesja hefur ákveðið að viðhafa-allherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs fyrirstarfs- árið 1988. Kosið er um formann, þrjá menn í stjórn og þrjá til vara, sjö menn ítrúnaðar- mannaráð og 7 til vara. Framboðslistum skal skilað til formanns kjörstjórnar, Þórarins Péturssonar, Fífu- móa 1b, Njarðvík, eigi síðar en kl. 20, mánudaginn 18. apríl 1988. Athugið að öðrum listum en lista stjórnarog trúnaðar- mannaráðs skulu fylgja meðmæli. Kjörstjórn HRUNÐ Hárgreidslustofa áður Kópavogi, hefirfluttstarfsemi sína að Hólmgarði 2, Keflavík og opnar laugardaginn 16. apríl. - Verið velkomin. - Bjarnveig Guðmundsdóttir hárgreiðslumeistari Sími 15677 Opnar útibú í Njarðvík Bílaleigan Geysir hefur nú opnað útibú að Holtsgötu 56 í Njarðvík (við hliðina á Hótel Kristínu). Er útibú þetta það níunda á iandsbyggðinni. Um- boðsmaður hér syðra er Hilm- ar R. Sölvason. Hefur fyrirtækið á að skipa 25 tegundum bifreiða en heild- arfjöldinn er um 130 bifreiðir. Um er að ræða bifreiðir allt frá fólksbifreiðum og jeppabif- reiðum af mörgum gerðum og upp í 15 manna ferðabíla (Mini-bus). Steinsmfði enn í fullu fjöri Sú meinlega misritun varð í síðasta blaði að sagt var að Steinsmíði h.f. hefði verið breytt í Steinborg h.f. Hér er um rangfærslu að ræða sem við biðjumst velvirðingar á. Hið rétta eí að Steinverk s.f. var breytt í Steinborg h.f. Er Steinsmíði h.f. því fyrirtæki sem rekið er áfram eins og hingað til með mikilli reisn í Njarðvík. Frá Teppahreinsun Suðurnesja Tökum að okkur almenna teppahreinsun, hreinsun húsgagna, bílaáklæða, hreingern- ingar í heimahúsum og stofnunum. Gerum föst verðtilboð ef óskað er. Menn með langa reynslu. Ath.: Nýr eigandi að Teppahreinsun Suóurnesja Hilmar R. Sölvason Heiðarbrún 4, Keflavík Skrifstofa: Holtsgötu 56 Njarðvik Símar: 14143, 15566 Heimasími: 12341

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.