Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.1988, Blaðsíða 2

Víkurfréttir - 20.10.1988, Blaðsíða 2
\>iKun 2 Fimmtudagur 20. október 1988 ítum Boltinn hjá Ef sveitarfélögin eru ekki virk, er vart hægt að ætlast til þess að þingmennirnir séu það. Þessi orð komu frá einum af þingmönnum okkar er blaðið ræddi við hann um togaramál- ið. Síðan sagði annar: Hvað ætlar bæjarstjórn Keflavíkur, sem á 20% eignarhlut, að gera? Meðan þetta er ekki ljóst er vart hægt að ætla að viðgerum eitthvað, ekki eigum við hlut í fyrirtækinu. Þó bæjarstjórnin hafi opin- berlega a.m.k. ekki haft sam- band við þingmenn kjördæm- isins, er vitað um einstaklinga, s.s. stjórnarmenn í Eldey, sem hafa haft samband við þá og lýst yfir áhyggjum með þróun mála. Aðsögn þingmannanna er það í skoðun hjá þeim, hvort hjálpa megi einstaklingum til að kaupa skipin. Síðasta föstudag var hald- inn fundur, sem þeir Jón Norðfjörð, Þorsteinn Arna- son og Halldór Ibsen boðuðu til með þingmönnunum Karli Steinari Guðnasyni, Matthíasi Mathiesen og Steingrími Her- mannssyni. I framhaldi af því er vitað um að'þingmenn hafi, sumir hverjir a.m.k., haft sam- TOGARAMÁLIN: bæjarstjórninni band við bæjarstjórnarmenn og stjórnarmenn Hraðfrysti- hússins. Vor þeir sem blaðið ræddi við á einu máli um að vilja í lengstu lög sporna við sölu skipa og kvóta út af svæðinu. En í þessu máli væri þó erfið- En þetta mál væri þó erfiðara viðfangs en oft áður þar sem ekkert hefði enn heyrst frá bæjarstjórn Keflavíkur. Því væri spurningin hvort rétt væri fyrir þingmenn eða aðra áhugaaðila að standa í slíkum málum. Bergvík og Aðalvik í höfn í Njarðvík. Ljósm.: epj. Mikil aflaskip í gegnum árin hafa togar- ar Hraðfrystihúss Keflavík- ur verið með aflahæstu ís- fiskstogurum suðvestan lands og annar þeirra þó hærri. Nóg af kaupendum Mörgum finnst það furðu- legt að heimamönnum skuli ekki hafa verið boðið að kaupa togara þessa, en vitað er um all nokkra áhugasama á Suðurnesjum sem gætu hugsað sér að bæta við öðr- um togaranum. Þarna eru t.a.m. aðilar eins og Eldey, Sandgerðingar og Grindvík- ingar. Öfugu megin við þilið Þegar Drangey, sem HK menn vilja nú fá í skiptum, var í lengingu í Þýskalandi varð sú skipasmíðastöð gjaldþrota og tókst þá naumlega að ná skipinu aft- ur út. Var skipið lengt þar um 6 metra en öfugu megin við þilið og því kom lenging- in öll fram í vélarrúminu en lestin stækkaði ekkert. Hvar er stefnan? Eitt af aðalstefnumálum kratanna í Keflavík fyrir síð- ustu bæjarstjórnarkosning- ar var að efla fiskiðnað í bæj- arfélaginu. Því spyrja menn nú, eftir að kratarnir fengu hreinan meirihluta í Kefla- vík, hvort þetta sé rétt túlk- un á þeirri stefnu? Þingmennirnir Hvar hefði svona verið á döfinni annars staðar úti á landi án þess að þingmenn- irnir væru komnir á fullt í málið? Þegar hefur einn þingmanna þeirra Sauð- krækinga sést koma tvisvar og skoða togara HK en þing- menn okkar hafa hvergi sést, eða eigum við enga? Sumir þeirra hafa a.m.k. orðið móðgaðir að til þeirra skuli hafa verið leitað. Stöðvum þróunina Nú þegarhafa20fiskverk- unarfyrirtæki lokað á nokkr- um misserum á Suðurnesj- um, níu skip hafa verið sela frá Grindavík og til stendur að selja tvo togara af Suður- nesjum og fá í staðinn einn óheppilegan. Því er spurn hvort ekki sé tími fyrir hina ýmsu ráðamenn að fara að rumska? Harkan sex Þó lítið hafi farið fyrir skoðunum ráðamanna fram að þessu hafa þeir ekki feng- ið með öllu frið fyrir ötulum baráttumönnum, sem vilja halda skipunum innan svæð- isins. Hafa þegar verið haldnir fundir um málið vítt og breytt og þar hefur ekki gilt önnur regla en harkan sex. Er nú verið að kanna að fullu ýmsar leiðir til lausnar málinu. Sofandi bæjarstjórn? Sefur bæjarstjórn Kefla- víkur þyrnirósusvefni í tog- aramálinu? Hvað á annað að halda eftir síðasta fund hennar nú á þriðjudag? Eng- in umræða var um málið og hvar er sá maður sem, hér áð- ur fyrr, gagnrýndi einna mest að Kefiavíkurbær skyldi kaupa hlut í hrað- frystihúsinu? Sá er að vísu sestur eða er að setjast í stól framkvæmdastjóra HK. MIÐLARNIR - aldrei betri! Föstudagskvöld: „Við sjáum um að halda uppi stanslausu diskófjöri frá kl. 22- 03.“ NONNI og ALLI. P.S. Þú þarft að vera orðinn 18 ára. SKEMMTISTAÐUR - miðla ykkur góðri músik frá 22-03. Nonni sér um að hleypa þeim í kaffi og þú kemur snyrtilega klæddur. P.S. Þú verður að vera orðinn 20 ára. Lífeyrissjóður Iðnaðarmannafélags Suðurnesja: Allir hafi sama rétt til lífeyris Á aðalfundi Lífeyrissjóðs Iðnaðarmannafélags Suður- nesja, sem haldinn varó. októ- ber 1988, var gerð svofelld ályktun, sem send hefur verið Steingrími Hermannssyni, forsætisráðherra: „Aðalfundur Lífeyrissjóðs Iðnaðarmannafélags Suður- nesja, haldinn 6. október 1988, skorar á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því, að allir lands- menn njóti sama réttar til allra lífeyrissjóða og tryggingabóta, sem stofnað hefur verið til eða kann að verða stofnað til vegna aðgerða ríkisstjórnar- innar og Alþingis, þar sem slíkar bætur eru að miklu og oft öllu leyti kostaðar af al- mannafé. Fundurinn lýsir jafnframt yfir stuðningi við allsherjar- lífeyrissjóð fyrir alla lands- menn og skorar á ríkisstjórn- ina að hraða framkvæmd þess máls, því að í áratugi hafa rík- isstjórnir haft þau mál að stefnumarkmiði, því brýnt er að allir landsmenn sitji við sama borð með tilliti til lífeyr- issjóðaréttinda.“ Greinargerð: Á undanförnum árum hefur Alþingi æ ofan í æ samþykkt lög og gert samninga, sem hafa verið flutt og gerð af ríkis- stjórnum eða fyrir atbeina þeirra, þar sem vissum félags- hópum í þjóðfélaginu hafa verið sköpuð ákveðin forrétt- indi á sviði lífeyrissjóðsbóta, almannatrygginga og ýmis konar annarrar fyrirgreiðslu af hálfu opinberra aðila. Má þar m.a. nefna lög um at- vinnuleysistryggingar og lög um lán frá Húsnæðisstofnun m.a. fyrir sjóðsfélaga lífeyris- sjóða. Aðalfundurinn telur að ekki komi lengur til greina að almenningur í landinu eða rík- issjóður greiði niður vexti hús- næðislána, að húsnæðisstyrki verði að leysa með öðrum hætti. Með tilliti til þess, að þær lífeyrissjóða- og trygg- ingabætur og sú fyrirgreiðsla, sem veitt er með íögum þess- um er að verulegu leyti kostuð af almannafé, verður að teljast afar hæpið að binda hana ein- göngu við félagsmenn í ákveðnum samtökum. Fram- angreindum lögum þarf að breyta á þann veg, að þau nái ti! allra landsmanna án tillits til þess hvort þeir eru félags- bundnir í einhverjum ákveðn- um samtökum, eða starfs- menn ákveðinna stofnana sem eru kostaðar af almannafé, þar sem mikill fjöldi manna mun alltaf búa við þær aðstæður að eiga þess ekki kost að gerast starfsmenn eða félagsmenn í þeim félagssamtökum og eða stofnunum sem lögin taka nú til. Fundurinn telur að stjórn- völd verði að grípa til aðgerða í þá átt að allir landsmenn sitji við sama borð með tilliti til allra lífeyrissjóðaréttinda. Allt tal sem hrellir landsmenn með því að stór hluti lífeyrissjóð- anna verði gjaldþrota á sama tíma og aðrar stéttir eigi að fá verðtryggðar lífeyrissjóðabæt- ur á kostnað skattgreiðenda í landinu. Það er álit aðalfund- arins að slíkt óréttlæti getur ekki staðist lengur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.