Víkurfréttir - 20.10.1988, Blaðsíða 15
VlÍKUR
juiUt
Fimmtudagur 20. október 1988 15
Halldór Már Sverrisson mundar kjuðann. Ljósm.: pket.
Opið mánaðarmót í snóker:
Halldór Már
sigurvegari
Halldór Már Sverrisson, 16
ára Keflvíkingur, sigraði á
opna mánaðarmótinu í snók-
er, sem haldið var á Knatt-
borðsstofu Suðurnesja um
síðustu helgi. Halldór hafði
betur í úrslitaviðureign gegn
Björgvini Björgvinssyni, 3:0.
Fyrir sigurinn hlaut Halldór
17 þúsund krónur í verðlaun
en Björgvin fékk í sinn hlut 10
þúsund. Hörkubarátta varum
3ja sætið en þar sigraði Guð-
björn Gunnarsson Jón Olaf
Jónsson með þremur vinning-
um gegn einum og fékk 7 þús-
und krónur fyrir vikið. í 5.-8.
sæti lentu þeir Kjartan Már
Kjartansson, Grímur Sigfús-
son, Þórhallur Garðarsson og
Jón Örvar Arason.
Þátttakendur voru 34 og var
fyrst leikið í fjórum riðlum.
Upp úr hverjum riðli komust
tveir keppendur sem léku með
útsláttarfyrirkomulagi þar til
tveir voru eftir.
Uppskeruhátíð Víðis:
Gfslí Eyjólfsson
leikmaður ársins
Gísli Eyjólfsson, gamla
kempan í Víðisliðinu, var kjör-
inn knattspyrnumaður ársins
á uppskeruhátíð er Víðismenn
héldu í samkomuhúsinu í
Garði sl. föstudagskvöld. Gísli
Heiðarsson, markvörðurinn
knái, varð í öðru sæti og Sæv-
ar Leifsson í því þriðja.
í öðrum Áokki var Karl
Finnbogason körinn leikmað-
ur ársins, Hlynur Jóhannsson
í öðru og Atli Vilhelmsson í
því þriðja.
Tómas Guðbjörnsson var
besti leikmaður 6. flokks,
Guðmundur Unnarsson varð
annar og félagarnir Arngrím-
ur Ingimundarson og Jóhann-
es Sigurðsson urðu báðir í
þriðja sæti í kjöri leikmanna.
„Strákarnir hafa
stutt mig
frábærlega'
- segir Albert Öskarsson, nýliði hjá IBK
Albert Óskarsson, nýliði hjá
IBK, hefur komið skemmti-
lega á óvart í fyrstu leikjum
Flugleiðadeildarinnar, skorað
grimmt og átt mjög góða leiki.
Albert lék hins vegar ekki mik-
ið með ÍBK í yngri flokkunum
og má segja að þetta sé í raun
fyrsta árið sem hann kemur
af alvöru inn í körfuknattleik-
inn. En hvernig skyldi það
hafa gengið að koma svona
seint inn?
„Þetta hefur gengið alveg
meiriháttar vel og strákarnir í
liðinu hafa stutt frábærlega við
bakið á mér og þjálfarinn líka.
Eg er búinn að leika allt í allt
12 leiki með meistaraflokki ef
Reykjanesmótið er talið með
og það gengur betur með
hverjum leik.“
Albert skorar hér í leiknum gegn KR
Hvenær komst þú inn í liðið?
„Það var núna eftir síðustu
áramót, ’88. Ég byrjaði að
dútla með fyrir jól og fékk síð-
an smá sénsa á síðasta tíma-
bili.“
Hvernig leggst Flugleiða-
deildin í þig?
„Bara mjög vel. Ég tel að
fyrirkomulagið á deildinni geri
þetta skemmtilegra bæði fyrir
leikmenn og áhorfendur og
það kemur til með að reyna
mikið á úthaldið. Ég tel að við
eigum mikla möguleika á því
að komast langt í ár og jafnvel
vinna deildina.”
Ertu ánægður með Lee Nob-
er?
á dögunum. Ljósm.: hbb.
„Já, hann er mjög góður og
tvímælalaust maðurinn sem
við þurftum á að halda. Hann
er mjög harður og það á vel við
mig að vinna undir hans
stjórn. Ég hef trú á að hann
eigi eftir að gera góða hluti.“
Hvað finnst þér svo um þenn-
an leik gegn KR?
„Þetta var náttúrulega gíf-
urleg keyrsla en eftir fyrri hálf-
leikinn var ég aldrei smeykur
um að við myndum ekki sigra.
Ég hafði ekki trú á að við fær-
um að missa þetta niður á síð-
ustu mínútunum. KR-ingarnir
voru erfiðir og þetta var minn
erfiðasti leikur til þessa þó svo
að ég hafi reyndar ekki ennþá
spilað á móti öllum liðunum
sem við komum til með að
mæta.“
Hvað með framþaldið?
„Við stefnúm að sjálfsögðu
að sigri. Ég er mjög ánægður
með þetta, það sem af er og við
ætlum bara að reyna að halda
þessu áfram,“ sagði Albert
Óskarsson, sem átt hefur mjög
góða leiki riieð ÍBK þar sem af
er leiktímabilinu.
Rúnar næsti
formaður?
Rúnar Lúðvíksson, lögreglu-
maður, hefur verið orðaður sem
næsti formaður í „nýju" knatt-
spyrnuráði ÍBK. Samkvæmt
heimildum blaðsins mun Rúnar
vera tilbúinn að taka starfið að
sér með þeim skilyrðum að nýja
ráðið byrji á núlli, þ.e. að allar
skuldir og kvaðir síðasta ráðs
verði hinni nýju óviðkomandi.
Blóðtaka hjá ÍBK
Það stefnir í meiriháttar blóð-
töku hjá 1. deildarliði ÍBK í
knattspyrnunni. Garðmennirn-
ir Grétar og Daníel Einarssynir
eru báðir á leið „til síns heima",
þ.e. í Víði, og Ragnar Margeirs-
son er mjög líklega á leið til
Þýskalands í atvinnumennsku.
Þá hefur heyrst að Guðmundur
Sighvatsson, Einar Asbjörn Ol-
afsson og Oli Þór Magnússon
ætli ekki að leika með IBK næsta
sumar.
Axel með 100 leiki
Axel Nikulásson, körfubolta-
maðurinn snjalli, lék sinn 100.
leik með IBK gegn KR í sl. viku.
Leikurinn varð sögulegur fyrir
Axel fyrir þær sakir að hann
meiddist í byrjun hans og var
síðan á bekknum það sem eftir
var. Þetta er einn af örfáum
leikjum sem Axel hefur ekki
skorað stig í en í 100 leikjum
hafði hann skorað 1192 stig,
tekið 412 vítaskot, hitt 258 sinn-
um eða 62,6%.
Fyrsti sigur ÍBK
Keflvíkingar unnu öruggan
sigur á ÍH, 26:15, í 2. deild hand-
boltans sl. laugardag í Hafnar-
firði. ÍBK hafði mikla yfirburði
allan tímann og leiddi 12:6 í leik-
hléi. Hafsteinn Ingibergsson var
markahæstur ÍBK-manna með9
mörk, Gísli Jóhannsson skoraði
8 mörk.
Bíll í verðlaun?
Ríkissjónvarpið ætlar ekki að
láta sitt eftir liggja í snókernum.
Innan skamms verður stórmót
RUV og Gleraugnaverslunarinn-
ar í Keflavík haldið á Knattborðs-
stofu Suðurnesja, þarsem úrslita-
leikurinn verður sýndur í beinni
útsendingu í „íslenska" sjónvarp-
inu. Glæsileg verðlaun verða í
boði og heyrst hefur að bíll verði í
verðlaun fyrir þann sem nær að
„breika“ yfir 100 stig.
Börkur í
baráttunni
Börkur Birgisson er í 4ða sæti á
stigalistanum eftir tvö stigamót
hjá Billiardsambandi Islands.
Börkur Ienti í 3ja sæti í öðru en í
5.-8. sæti j hinu. Ef fram fer sem
horfir er~ekki langt í að Suður-
nesjameiin eignist landsliðsmahn
í billiard 1 fyrsta skipti.
Billiardinn
á uppleið
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Knattborðsstofu Suður-
nesja. Mótum hefur verið fjölgað
og aðsókn hefur aukist mikið..
og aðsókn hefur aukist mikið.
Þann 6. nóvember n.k. verða leik-
in 8 manna úrslit í einu af stóru
stigamótunum, þar sem allir
bestu spilarar landsins etja kappi.
Úrslitaleikurinn í því móti fer síð-
an fram á Stöð 2 í beinni útsend-
ingu.
Krakkar fá frítt
Enn meira um billiardinn.
Knattborðsstofa Suðurnesja hef-
ur ákveðið að bjóða krökkum á
aldrinum 12-14 ára að spila frítt á
laugardögum frá kl. 11-14 í þeim
tilgangi að auka áhuga yngri kyn-
slóðarinnar á íþróttinni.
Heilbrigðisráð-
herra í heimsókn
Guðmundur Bjarnason kom í
heimsókn á Knattborðsstofu Suð-
urnesja sl. sunnudag. Þó ekki til
að fylgjast með mótinu sem þar
var heidur til að Iita á myndir eft-
ir hinn fræga listamann, Gunnar
Orn, en myndir eftir hann eru til
sýnis á billiardstofunni, scm
prýðir verk fjölda kunnra lista-
manna.
Næstu leikir
í körfunni
í kvöld leika ÍBK og Þór í úr-
valsdeildinni í körfuknattleik.
Leikurinn fer fram í Keflavik og
hefst kl. 20.
Njarðvíkingar fá hins vegar
sinn gamla félaga, Val Ingimund-
arson, og lærisveina í heimsókn á
sunnudag í ljónagryfjuna. Þar
hefst leikurinn einnig kl. 20.