Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.1988, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 20.10.1988, Qupperneq 20
AFGREIÐSLA BLAÐSINS er að Vallargötu 15. - .Símar 14717, 15717. SPURÐU SPARISJÓÐINN Áhaldahús Keflavíkur- bæjar: Frjálslega skrifaðir reikningar Fyrir fund stjórnar Bruna- varna Suðurnesja nú nýverið voru lagðirfram reikningarfrá áhaldahúsi Keflavíkurbæjar að upphæð kr. 28.828 vegna umhirðu lóðar við slökkvi- stöðina nú í sumar. Kom fram á fundinum að stjórn BS þótti reikningarnir frjálslega skrif- aðir og hafnaði því greiðslum að svo komnu máli. Að sögn Jóhannesar Sig- urðssonar, aðstoðarslökkvi- liðsstjóra, er hér um að ræða reikninga fyrir sláttur á grasi og þykir mönnum sem reikn- ingarnir séu of margir, þ.e. rukkað sé fyrir fleiri skipti en komið var. Er málið kom fyrir bæjar- stjórn Keflavíkur nú á þriðju- dag urðu umræður um málið og gerður var fyrirvari um samþykkt þess. I máli Guð- finns Sigurvinssonar, bæjar- stjóra, kom m.a. fram að ef menn ætla að bregðast svona við, þá gætu þeir annast þessi verk sjálfir í framtíðinni og þar átti hann við stjórn Bruna- varna Suðurnesja. \>íkuk -írjálst, óháð og án allra opinberra styrkja. Gangstéttarlagning við Hafnargötu, KEFLAVlK: Malbikunar- og gangstéttafram- kvæmdir í gangi Þó farið sé að hausta standa yfir malbikunar- og gang- stéttaframkvæmdir i Keflavík. Að sögn Guðfinns Sigurvins- sonar, bæjarstjóra, er nýbúið að malbika Mávabrautina og var þar malbikað alveg út í lóðamörk en ekki skilin eftir malarrönd eins og áður. Sagði hann þetta til mikilla bóta. Þá verður sett nýtt slitlag á Hafnargötu, frá Víkurbraut að Flugvallarvegi, og er búið að fræsa þá kafla sem slæmir voru á þeim hluta. Er beðið eftir hagstæðu veðri svo ljúka megi því verki. Jafnhliða þessu er verið að leggja nýja gangstétt á Hafnar- götu, frá Heiðarvegi og upp að Faxabraut, en gangstéttin var orðin mjög léleg á þessum kafla. Er það Garðaþjónusta Suðurnesja sem er verktakinn í gangstéttaframkvæmdunum en Hlaðbær/Colas sem sér um malbikunina. RAGGI BRATTUR OG BJARTSÝNN ÞRATT FYRIR LANGAN SKULDAHALA Ragnar Eðvaldsson, fyrr- um eigandi Ragnarsbakajís og núverandi eigandi Ár- baks, ræðir unt gjaldþrot þess fyrrnefnda í opnuviðtali í dag. Þar segir Ragnar m.a. að hann sé með langan skuldahala á eftir sér úr þrotabúi þessu, en þar sem hann hafi séð fram á at- vinnumissi starfsfólksins hafi hann tekið þátt í endur- reisn fyrirtækisins á síðasta ári. Þessi mál og önnur þeim tengd eru rakin í viðtalinu við Ragnar, svo og fjár- mögnun hans á hinu nýja fyrirtæki og ýmislegt annað. Jlllii'il - 1 m i TRÉ TRÉ-X byggingavörur Iðavöllum 7 - Keflavík - Sími 14700 Bátasölur frá Grindavfk Hraðfrystihús Grindavík- ur hefur selt bát sinn Mána GK 36 til Tálknafjarðar. Er söluverðið um 37 milljónir króna. Mun fyrirtækið vera að leita að stærri bát, sem henta myndi fyrirtækinu betur. Máni er 72 tonn að stærð, smíðaður úr eik 1959. Þá hafa borist fregnir af því að svo geti farið að fleiri bátar verði seldir burt nú á næstunni. En nánar um það síðar. Innbrot í nýbyggingu Brotist var inn í nýbyggingu við Bragavelli í Keflavík um síðustu helgi og stolið þaðan verkfærum s.s. hjólsög og bor- vél, Danfoss krönum o.fl. að verðmæti um 200 þúsund krónum. Er málið nú í rann- sókn hjá rannsóknarlögregl- unni í Keflavík. Tekinn á 128 km hraða við Fitjar Lögreglan í Keflavík stöðv- aði á þriðjudagsmorgun öku- mann sem ók helst til greitt á Fitjum í Njarðvík. Kom bíllinn á 128 km hraða inn á radar lögreglunar, sem brást strax við og stöðvaði kauða. Er það eitthvað nýtt að þeir fari frjálslega með reikninga . . . ?

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.