Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.1988, Side 6

Víkurfréttir - 20.10.1988, Side 6
 6 Fimmtudagur 20. október 1988 Theodór Guðlaugsson, smali: llla staðið að fjárgirðingu Nokkur umræða hefur orðið um framkvæmdir við land- græðslugirðinguna sem liggur frá Vatnsleysuströnd og þvert yfir nesið til Grindavíkur. Að- allega hefur umræðan snúist um nýtt beitarhólf á Vatns- leysuströnd. Fram að þessu hefur verið rætt við ýmsa ráðamenn en sjónarmið smala okkar Suður- nesjamanna, Theodórs Guð- laugssonar, hafa enn ekki komið fram hér í blaðinu. Því heimsóttum við hann í gæslu- skúrinn við Vogaafleggjara og fórum síðan með honum í skoðunarferð með girðingum þeim sem um er rætt í grein þessari. Gefum smalanum orðið: „Eg er óánægður út í þessi girðingamál, sem verið er að framkvæma á Vatnsleysu- strönd. Þar fer girðingin alveg niður í sjó við Asláksstaði og álít ég að þær framkvæmdir virki þannig að Vogabúar fái allt féð yfir sig. Ástæðan er sú j. Theodór bendir okkur á skerjagarðinn neðan við Ásláksstaði, þar sem girða þarf 1000 metra til að komast út fyrir fjöruborð. Eftir kamhinum hér kemst féð auðveldlega framhjá girðingunni í Grindavík. Ljósmyndir: epj. að girðingin sem er við Voga er ónýt og um það vita ráðamenn eins vel og ég. Hefði ég því vilj- að að Vogamenn kynntu sér þessi mál betur áður en fram- kvæmdum við hólfið á Strönd- inni lýkur. í dag gengur sjórinn á girð- inguna rétt innan við Voga og er hún því ekki fjárheld þar, auk þess sem hún nær ekki alveg út í fjöruborð, því neðan við girðingarendann kemur 6 metra sandspilda sem stendur upp úr á fjörunni og þar kom- ast kindurnar framhjá girðing- unni. Frá því að blaðaskrifin hóf- ust um þessi mál hef ég vart haft undan því að svara fólki um það hvers vegna ég sé óánægður. Vilhjálmur Gríms- son fer aftur svo vel með sitt mál að fólk getur ekki lesið þar úr neina óánægju. Hann minn- ist aðeins á þetta hólf en slepp- ir alveg að segja frá vitleysunni í því sambandi sem þeir eru að láta framkvæma. Eg veit hinsvegar að Sveinn Runólfs- son, landgræðslustjóri, og Greipur Sigurðsson, sem er verktakinn við þessar fram- kvæmdir, eru á móti þeim, en samt er málið knúið ifram. I vor, þegar ég endurnýjaði samninginn við SSS, sagði Ei- rikur Alexandersson að nú yrði léttara í haust hjá mér vegna nýju girðingarinnar en það er öðru nær, það hefur aldrei ver- ið meira að gera en nú í sumar. Ef ég væri ekki vakandi yfir þessu við að reka féð frá Reykjanesbrautinni, væri búið að aka yfir margar rollurnar. Nú, eftir að girt var niður fyrir gamla Keflavíkurveginn, hefur féð farið ítrekað niður fyrir girðingarendann og þannig inn í Voga. Ekki er það betra við innri girðinguna, þessa nýju. Það sem maður sér þar hefði ég aldrei trúað að mönnum dytti í hug að láta framkvæma. Að ætla sér að girða þar út í sjó, þar sem skerjagarður er fyrir, er ótrúlegt. Þarna eru a.m.k. 1000 metrar sem girða þarf til að komast út fyrir fjöruborð, svo girðingin verði fjárheld. Þó þarf ekki nema brim eftir norðanáttina svona tvisvar, þá verður allt farið þarna. Svo á þetta að halda fénu þarna yfir veturinn." Grindavík „Þá er ekki síður vandamál uppi í Grindavík. Varðandi það hef ég staðið harður í þrefi síðan 1. ágúst, en annað hólfið er þó enn opið, þannig að kindurnar komast auðveld- lega framhjá girðingunni. Er því ekki nema annað hólfið í Grindavík fjárhelt, það sem er opið kallast Nesið og er fyrir neðan Hóp. Eg hef margsagt mönnum eins og Sigurði Ágústssyni, lögregluvarðstjóra, að ég hafi ekkert að gera þangað, því ekki sé hægt að halda fénu inn- an girðinga sem eru opnar. En þeir gera ekkert í þessum mál- um í Grindavík, þó þessi mál eigi að vera í lagi.“ Sandgerði „I Sandgerði eru tvö hólf. Annað, þetta hjá þeim Bæjar- skersmönnum, er til svo mik- ils sóma að þeir eiga heiður skilið fyrir. En hólfið þeirra Ragnars og Svavars er varla fjárhelt ennþá og því ættu þeir að taka þá Bæjarskersmenn sér til fyrirmyndar." Hólfin „Menn mega ekki taka þetta svo að ég sé á móti þess- um hólfum, það er ég ekki. En þau þurfa að vera þannig úr garði gerð að kindurnar verði þar í friði og íbúarnir fái frið fyrir fé sem annars væri inni á lóðum þeirra. En til þess þarf allt að vera í góðu lagi.“ Lögreglan í Keflavík „Að endingu vil ég taka það sérstaklega fram að allt sam- starf við lögregluna í Keflavík er eins gott og það getur verið. Þurfi ég á hjálp að halda eru þeir alltaf tilbúnir til að hjálpa mér og hjá þeim fæ ég alveg sérstaka þjónustu. Enda væri ekki standandi í þessu ef sam- starfið milli lögreglunnar og smalans væri ekki eins gott og það er hér,“ sagði Theodór að lokum. Þó enn vanti tvo tíma í háfjöru, þegar þessi mynd er tekin, er girð- ingarendinn kominn á þurrt. Eiga kindurnar því auðvelda leið hér inn í Voga. Keflavíkurkirkja Laugardagur 22. október: Skátaguðsþjónusta kl. 14. St. Georgsskátar íjölmenna til kirkju í upphafi fundarhalda í Keflavík. Björn Stefánsson ávarpar skátana í kirkjunni. Sunnudagur 23. október: Dagur eldri borgara á Suður- nesjum. Sunnudagaskóli kl. 11. Munið skólabílinn. Messa kl. 14 (altarisganga). Einsöngur og kórsöngur. Systrafélagið býður til kaffi- drykkju í Kirkjulundi eftir messu. Sóknarprestur Ytri Njarðvíkurkirkja Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.00. Organisti Oddný Þor- steinsdóttir. Sóknarprestur i a O0 Innri Njarðvíkurkirkja Barnastarf kl. 11.00 í safnað- arheimilinu. Messa kl. 14.00. Fundur verður með foreldrum fermingarbarna að lokinni messu. Sóknarprestur Útskálakirkja: Sunnudagaskólinn verður í kirkjunni kl. 14. Hjörtur Magni Jóhannsson Hvalsneskirkja: Sunnudagaskólinn verður I grunnskólanum Sandgerði kl. 11. Hjörtur Magni Jóhannsson

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.