Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.1988, Síða 8

Víkurfréttir - 20.10.1988, Síða 8
viKun 8 Fimmtudagur 20. október 1988 jUOU molar XJmsjón: Emil Páll Jóhannes og Jóhannes Þó rangt málfar og prent- villur séu sjaldan til þess fallnar að gera að þeim grín, er erfitt að horfa fram hjá kafla einum er birtist í nýj- asta hefti Slökkviliðsmanns- ins, sem er blað Landssam- bands slökkviliðsmanna. Þar er grein um þáttaskil í sögu Brunavarna Suður- nesja er sett var þar upp fastalið. Þar er rakið hverjir skipa nú fastaliðið og þar stendur þetta: „....Jóhannes Sigurðsson aðstoðarslökkvi- liðsstjóri, sem hefur einnig starfað í mörg ár sem yfir- maður eldvarnareftirlitsins, en starfaði áðursem eldvarn- areftirlitsmaður ásamt Jó- hannesi." Eða með öðrum orðum, Jóhannes starfaði áður með sjálfum sér... Fimm velta Hið slæma efnahags- ástand, sem nú varir, er þeg- ar farið að höggva skarð í raðir smáfyrirtækja sem stærri. Þau smáfyrirtæki sem nú virðast ýmist vera stöðv- uð eða eru að stöðva eru t.d. fimm talsins í miðbæ Kefia- víkur. Eru þetta tískuversl- unin Tipp-Topp, Tommi og Jenni, sem áður hét Fata- land og Rekstrarvörubúðin, X-port og Quellebúðin. Þá hefur Smurbrauðsstofan verið auglýst til sölu. Reynir til vara í nýja sjóðnum Þá er hinn nýi atvinnu- tryggingasjóður kominn á laggirnar. Ekki fóru leikar svo að Suðurnesjamenn fengju aðalfulltrúa í stjórn hans, en þó næstum því. Suð- urnesjamenn eiga einn vara- fulltrúa, sem raunar sat fyrsta fund stjórnarinnar. Sá aðili er Reynir Ólafsson, við- skiptafræðingur. Er hann til- nefndur í stjórnina af við- skiptaráðherra sem vara- maður Péturs Sigurðssonar á Isafirði. Vonandi tekst Reyni að stýra einhverju fjármagni hingað á svæðið. Bláa lónið í Krísuvík Fréttamenn ríkisútvarps- ins eru illa að sér í landafræð- inni. í kvöldfréttum útvarps fyrir skömmu voru þeir að fjalla um Bláa lónið í Krísu- vík. Hvernig þeim tókst að hafa uppi á þessari staðsetn- ingu á lóninu vitum við ekki, en eitt er víst að Krísuvík er á Stór-Reykjavíkursvæðinu en Bláa lónið er enn rétt utan við Grindavík. Suðurnesja- menn sætta sig aldrei við að verða hluti af Stór-Reykja- víkursvæðinu, sama hvað ríkisútvarpið segir... Ef ein belja pissar, þá pissa allar Ein mesta perlan í ferða- mannaiðnaði okkar Suður- nesjamanna er Bláa lónið við orkuverið í Svartsengi. Lón- ið hefur fært okkur töluverð- ar tekjur af ferðamönnum, auk þess sem það er rómað fyrir lækningamátt sinn. Nú hefur Borg Davíðs séð sér leik á borði og áætlar nú að koma upp bláu lóni við orkuverið á Nesjavöllum, nálægt Þingvöllum. Það er ekki nóg með að Reykvíking- ar ætli sér að koma upp lóni, því það verður gervilón, þar sem bæta þarf aukaefnum í vatnið til þess að gera það „raunverulegt". Þettaervíst þannig hjá Reykvíkingum, að ef lítill ferðamannaiðnað- ur blómstrar úti á landi og hægt er að græða peninga, þá þurfa þeir að eignast svoleið- is líka, þó svo það sé gervi. Ekkert sældarlíf Það var sko ekkert sældarlíf að leika „týnt fólk“ á samæf- ingunni, sem björgunarsveit- in Stakkur og Hjálparsveit skáta í Njarðvík stóðu fyrir um síðustu helgi. A.m.k. var ekki öfundsvert fyrir stúlk- urnar sem „týndust" í hrauninu í námunda við orkuverið í Svartsengi. Vegna misskilnings voru stúlkurnar sendar út í hraun rétt fyrir kl. níu á föstudags- kvöldið en fyrstu leitarflokk- ar komu ekki fyrr en um kl. eitt um nóttina. Stúlkurnar komu aftur á móti í hús kl. fjögur, en þá hafði enginn fundið þær. Svæðisstjóri týndist Ein raunveruleg „minni- háttar" leit var framkvæmd við torfæruaksturssvæði Stakks á föstudagskvöldið. Bíll, ásamt ökumanni, sem reyndist vera svæðisstjóri, hafði horfið og ekkert til þeirra spurst. Farið var að grennslast fyrir um öku- mann og bíl og ekkert fannst í fyrstu. Menn voru orðnir nokkuð áhyggjufullir þegar ökumaður og bíllinn, sem reyndist vera Subaru, fund- ust. Voru þeir komnir það langt af leið að björgunar- sveitarbíll ætlaði varla að komast á staðinn, þar sem Subaruinn var niðurkominn, þvílík var ófæran. Leitað í lóninu Það var kominn tími til að sérstök æfing færi fram í og við Bláa lónið. Einn smá- vægilegur galli var hins vegar á gjöf Njarðar, sá að björg- unarsveitir utan af landi og af Reykjavíkursvæðinu voru látnar leita í lóninu í stað þess að leggja meiri áherslu á Suðurnesjasveitirnar. Bláa lónið er jú á Suðurnesjum. Eigum við kannski að fá sveitir af Akranesi til að leita ef eitthvað fer úrskeiðis og maður týnist i lóninu? Kjötrör í Stapanum Björgunar- og hjálpar- sveitafólki var boðið til mat- ar í félagsheimilinu Stapa á laugardaginn. Eitthvað var um að björgunarfólk kæmi ekki á „réttum tíma“ í mat vegna verkefna sem verið var að leysa. Þegar flestir höfðu matast og voru að halda til hvílu í Holtaskóla, kallaði einn þátttakandi til stjórn- stöðvar: „Við höfum lokið við verkefni og erum að fara í steik.“ Þá laumaði einhver björgunarsveitarmaður þessu í talstöðina: „Þetta er ekki steik sem boðið er upp á, heldur kjötrör." Það voru víst bjúgu í matinn í Stapan- um. Radíóamatörar í frí Og meira um fjarskipti. Þeir tóku sér flestir frí um helgina, „radíóamatörarn- ir“ á Suðurnesjum. Frá því að æfingin hófst á föstudags- kvöldið og fram á seinnipart laugardagsins stoppuðu ekki talstöðvarnar hjá sveitunum. Þvílík alda af „skilaboðum" um loftin blá skall á „ama- törunum“ að þeir slökktu á græjunum og fóru í frí um þessa helgi. Því miður var allt of mikið um óþarfar sendingar í gegnum talstöðv- ar, sem frekar hefðu átt heima í sendingum á milli farsíma. Hver talaði ofan í annan og enginn skildi neitt. Bílaþjónustan GLJÁI Brekkustíg 38, Njarðvík, sími 14299 Laugardag kl. 10-17 og sunnudag kl. 13-17. Sýnum NIZZAN og SUBARU árg. ’89. Heitt á könnunni. Verið velkomin. Höfum tekið að okkur Suðurnesja- umboð fyrir Ingvar Helgason hf. NIZZAN og SUBARU bíla INGVAR HELGASON HF. Á SUÐURNESJUM! IiML-WJI NISSAN

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.