Víkurfréttir - 20.10.1988, Page 12
12 Fimmtudagur 20. október 1988
mun
jUUU
Þessi umhverfísspjöll eru rétt neðan við bæinn..
. . . og eru ekki til fyrirmyndar.
Ljósmyndir: epj.
Utvegsmenn
Suðurnesjum
Utvegsmannafélag Suðurnesja held-
ur aðalfund sunnudaginn 23. okt-
óber næstkomandi í félagsheimilinu
Festi, Grindavík.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Kristján Ragnarsson, formaður
r
L.I.U., kemur á fundinn.
Stjórnin
Vonandi einsdæmi á Suðurnesjum, í kringum 20 bílar eða bílflök heima í hlaði á Skipholti.
Vatnsleysuströnd:
Umhverfisspjöll
við Skipholt
Þó víða megi finna uppsöfn-
un á bílhræjum eru sennilega
fáir staðir á Suðurnesjum verri
að þessu leyti en umhverfi
Skipholts á Vatnsleysuströnd.
Heima í hlaði má finna um
tuttugu bílhræ í mismunandi
ástandi.
Rétt neðan við bæinn má
síðan finna tvo bílakirkju-
garða, þar sem 10 til 15 bílar
eru til viðbótar.Eru því þarna
mikil umhverfisspjöll.
Vegna þessa hafði blaðið
samband við Heilbrigðiseftir-
lit Suðurnesja og þar varð Jó-
hann Sveinsson fyrir svörum:
„Að okkar beiðni var tekið
til þarna á sínum tíma en síð-
an er þetta eins og því miður
víða, að þar sem menn eru að
rífa bíla, trassa þeir að fara
með þá í Sorpeyðingarstöðina
og því verða úr þessu haugar
hér og þar.
Hefur þetta mál frekar vax-
ið en hitt, almennt séð, þó
margir verði við óskum okkar
um að fara með bílflökin upp í
Sorpeyðingarstöð.“
- NÝ FYRIRTÆKI -
Firmaskrá Keflavíkur hefur
borist tilkynning um stofn-
setningu sameignarfyrirtækis
er nefnist VíkurtréS.f. ogertil-
gangur þess almenn trésmíða-
vinna. Stofnendur eru Sveinn
Vopnfjörð Björgvinsson og
Lárus Þór Guðmundsson,
báðir í Keflavík.
Hafdís Friðriksdóttir,
Sandgerði, hefur sett á stofn
verslunarfyrirtæki að Hafnar-
götu 32 í Keflavík er ber nafnið
Verslun Hafdísar Friðriksdótt-
Rekstrarformi Trésmiðju
Héðins hefur verið breytt
þannig að Héðinn Skarphéð-
insson, Keflavík, og Asgeir
Ingimundarson, Njarðvík,
hafa stofnað sameignarfélag í
Njarðvík er ber nafnið Tré-
smiðja Héðins og Ásgeirs s.f.
Jafnframt hefur Trésmiðja
Héðins verið afmáð úr firma-
skrá.
Vetrarskoðun
• Stilltir ventlar
• Stilltur blöndungur
• Skipt um kerti
• Skipt um platínur
• Stillt kveikja
• Athuguð viftureim
og stillt
• Athugaö frostþol á
kælikerfi
• Athugaðar þurrkur
og settur ísvari
Athugaður stýrisbúnaður
Athugaðar og stilltar
hjólalegur
Mælt millibil á
framhjólum
Athugaðir bremsuborðar
Skoðaður undirvagn
Borið silicon á þéttikanta
Athuguö öll Ijós og
stillt ef þarf.
Mæld hleösla
í rúðusprautu
• Önnumst einnig alla smurþjónustu fyi;ir NISSAN,
SUBARU, DAIHATSU, MAZDA og HONDA
Bíla- og vélaverkstæði
KRISTÓFERS ÞORGRÍMSSONAR
Iðavöllum 4b - Keflavík - Sími 11266
Verð m/kertum, platínum, ísvara,
Ijósaskoðun og söluskatti fyrir
flestar gerðir 4ra cyl. bíla
kr. 5.866.- '
i Erum einnig með viðgerðar-
j þjónustu fyrir Mazda, Nissan,
Datsun, Subaru, Daihatsu,
Volvo og Honda bifreiðir.
Þá hefur Guðmundur Sigur-
bergsson og Guðmundur Mar-
geirsson stofnsett fyrirtækið
Nettverk s.f. Tilgangur þess er
tækjaleiga og verktakastarf-
semi.
ARSHATIÐ
Iðnaðarmanna-
félags Suðurnesja
verður haldin 4. nóv. n.k. í Stapa og
hefst kl. 19:30. Húsið opnað kl.
19:00. Hljómsveit Birgis Gunnlaugs-
sonar leikur fyrir dansi. Miðasala fer
fram í húsi félagsins að Tjarnargötu 3
laugardaginn 29. okt. frá kl. 14 til 16.
Skemmtinefnd
rafiðnaðarmanna
Kvenfélag Keflavíkur
OG
Kvenfélagið Njarðvík
efna til leikhúsferðar fimmtudaginn
27. okt. í Iðnó að sjá Sveitasinfóníu
eftir Ragnar Arnalds. Upplýsingar í
Keflavík í símum 11625 (Guðmunda)
og 11198 (Anney), Njarðvíkum í sím-
um 12134 (Sigríður) og 12753
(Hanna).