Víkurfréttir - 20.10.1988, Qupperneq 13
\)iKurt
jtiUU
Fimmtudagur 20. október 1988 13
ALiAN^f
SðlARHRiNGINN
kComca
U-BIX
Ljósritunar-
vélar
frá kr. 59.800.-
HE^SÓK
Hafnargötu 54 - Sími 13066
Margrét Ágústsdóttir utan við Aðalstöðina.
Mynd og texti: hbb.
„Hræðist ekki karl-
mrninÍHQ^ ~ segir Margrét Ágústs-
IlldllllllCl dóttir, framkvæmda-
stjóri Aðalstöðvarinnar
Aðalstöðin hefur alla tíð
verið mikið karlaveldi og karl-
menn þar í æðstu valdastöð-
um. Nú kann svo að vera að
karlaveldið sé liðið undir lok,
því nú hefur 32ja_ára Keflvík-
ingur, Margrét Ágústsdóttir,
tekið við stöðu framkvæmda-
stjóra stöðvarinnar, en áður
hafa þrír karlar sinnt því starfi
í 40 ára sögu Aðalstöðvarinn-
ar.
Svo skemmtilega vill til að
hinn nýráðni framkvæmda-
stjóri hefur starfað með öllum
fyrirrennurum sínum, fyrst
sem skrifstofustúlka þegar
Haukur Magnússon var í
framkvæmdastjórastólnum og
síðan með þeim Ögmundi
Guðmundssyni og síðast
Ingólfi Falssyni, sem nú hefur
tekið við stöðu framkvæmda-
stjóra Hraðfrystihúss Kefla-
víkur. Hver er Margrét
Ágústsdóttir? Til þessa að
kynnast því, tóku Víkurfréttir
hana í viðtal og hér er árang-
urinn.
Af símanum í fram-
kvæmdastjóra-
stólinn
Margrét Ágústsdóttir er gift
Árna Ásmundssyni og á einn
tólf ára son. Þegar hún var
spurð um menntun, sagðist
hún hafa gagnfræðapróf, auk
menntunar í bókhaldi og ýmsu
fleiru. „Það má segja að ég hafi
starfað hjá Aðalstöðinni frá
upphafi," sagði Margrét, þeg-
ar hún var spurð hvað hún hafi
starfað um ævina. „Ég byrjaði
á símanum í október 1974 og
var þar fram í ágúst 1975, þeg-
ar ég byrjaði á skrifstofunni
sem skrifstofustúlka, en síðar
varð ég skrifstofustjóri, svo
aðstoðarframkvæmdastjóri og
nú framkvæmdastjóri."
-Nú er framkvæmdastjóra-
starfið umfangsmikið starf og
reksturinn mikill hjá fyrirtæk-
inu. I hverju er starfið fólgið?
„Framkvæmdastjórastarfið
er aðallega fólgið í að halda ut-
an um alla stöðina og hafa
yfirumsjón með rekstrinum.
Einnig kem ég til með að hafa
yfirumsjón með tölvum fyrir-
tækisins og þar með bókhaldi.
Ég annast allan daglegan
rekstur, fjármál og fram-
kvæmdir.“
-Hvernig hefur reksturinn
gengið?
„Reksturinn hefur gengið
þokkalega. Haustmánuðirnir
eru slappastir en á vormánuð-
um gengur vel. Fólk virðist
hafa úr mikið meiri peningum
að spila þá, heldur en á öðrum
árstímum. En það eru ekki
miklar sviptingar í rekstrin-
um.“
Gengið
stórslysalaust
-Hvernig er það fyrir hús-
móður að gegna svona starfi?
„Þetta hefur allt gengið
stórslysalaust. Ég hef alla tíð
unnið mikið hér, þannig að
framkvæmdastjórastarfið er
engin stórbreyting á vinnu-
tíma. Þá er strákurinn orðinn
það gamall, að starfið raskar
ekki heimilislífinu.“
-Nú hlýtur framkvæmda-
stjórinn að eiga frístundir eins
og aðrir. Hver eru áhugamál-
in?
„Það hefur verið ósköp lítill
tími hjá mér til þess að stunda
áhugamálin, þar sem ég hef
verið með annan rekstur líka.
Ég hef lítið getað sinnt áhuga-
málunum, sem helst eru ferða-
lög og eitthvað svoleiðis.“
-Nú er Aðalstöðin mikil
karlaveldi og þú hefur marga
karla undir þinni stjórn. Vilja
þeir engu ráða?
„Karlarnir hafa allir tekið
mér mjög vel og ég hræðist
karlmennina ekkert. Annars
hefur allt starfsfólkið, sama
hvort það er karl eða kona,
tekið mér vel í þessu starfi. Það
er æðislega gaman að gegna
þessari stöðu og vera kona.“
Stríðið milli
stöðvanna
-Hvað finnst þér um hið ára-
langa „stríð“ sem háð hefur
verið á milli Aðalstöðvarinnar
og Ökuleiða?
„Ég hef ósköp lítið sett mig
inn í það mál. Ég held að þaðsé
aðallega á milli bílstjóranna
persónulega."
-Hvor aðilinn hefur betur?
„Maður verður að halda
með sínu fyrirtæki.“
Breytingar
-Þau tímamót verða hjá
Aðalstöðinni í næsta mánuði
að hún verður 40 ára. Er að
vænta einhverra breytinga í
rekstri stöðvarinnar?
„Breytingar verða ósköp
litlar til að byrja með. Það er
aldrei að vita hvað framtíðin
ber í skauti sér. En gamla Að-
alstöðin verður fyrsta breyt-
ingin.“
-Að lokum, hvernig tilfinn-
ing er það að vera komin í
framkvæmdastjórastól Aðal-
stöðvarinnar?
„Það er ekkert nýtt fyrir mig
að takast á við þetta starf. Síð-
astliðin tólf ár hef ég leyst af
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins, þegar hann hefur verið í
sumarleyfum, þannig að við-
brigðin eru ekki mikil,“ sagði
Margrét Ágústsdóttir, nýráð-
in framkvæmdastýra Aðal-
stöðvarinnar, að lokum.
VEÐDEILD
SPARISJÓÐSINS
í KEFLAVÍK
HEFUR TIL SÖLU:
Verðtryggð spariskírteini
ríkissjóðs,
verðtryggð skuldabréf
útgefin af veðdeildinni.
Einnig tökum við verðbréf
í umboðssölu.
Önnumst kaup og sölu
á veðskuldabréfum.
Innleysum spariskírteini
ríkissjóðs samdægurs.
Leitið upplýsinga hjá
Veðdeild Sparisjóðsins
í Keflavík, við Suðurgötu,
sími 15800.