Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.10.1988, Side 17

Víkurfréttir - 20.10.1988, Side 17
Vinna við Hvalvíkina lá niðri í Njarðvíknrhöfn vegna aðgerða skipverja. Ljósm.: hbb Skipverjar komu í veg fyrir uppskipun Er heQa átti uppskipun á salti úr m.s. Hvalvík í Njarð- víkurhöfn á föstudag komu skipverjar í veg fyrir að verkið gæti hafist. Voru þeir með þessum aðgerðum að þrýsta á útborgun vangoldinna launa sem þeir telja að nemi á fimmtu milljón króna. M.s. Hvalvík er í eigu skipa- félagsins Víkur h.f. sem er systurfyrirtæki Saltsölunnar í Keflavík, en skipið var einmitt með salt til þess fyrirtækis. Vegna aðgerða skipverja var skipið kyrrsett í Njarðvíkur- höfn fram á þriðjudag. Lionsklúbbur Sandgerðis: Lífleg umræða um Marokkóskipin Fimmtudagur 20. október 1988 17 BRIDS Sl. mánudag var landství- menningurinn þar sem spiluð voru sömu spil um allt land. Keppni þessi er til styrktar húsbyggingarsjópi Bridssam- bands Islands. Urslit á lands- vísu liggja ekki fyrir en efstu pör hjá Bridsfélagi Suður- nesja urðu: 1. Arnór Ragnarsson - Björn Blöndal ........... 104 2. Pétur Júlíusson - Eiríkur Ellertsson ........ 92 3. Jóhannes Ellertsson - Jóhannes Sigurðsson ... 90 4. Heiðar Agnarsson - Hafsteinn Ögmunds .... 89 5. Eysteinn Eyjólfsson - Ragnar Örn Jónsson ... 83 Næstkomandi mánudag verður eins kvölds tvímenn- ingur og því tilvalið fyrir nýja spilara að mæta og kynna sér starfsemi Bridsfélags Suður- nesja. Allir eru velkomnir. Mánudaginn 31. okt. hefstsíð- an minningarmótið um Guð- mund Ingólfsson sem er ný keppni. Fyrirkomulagið er sveitakeppni með 14 spila leikjum og verða spilaðir tveir leikir á hverju mánudags- kvöldi, allir við alla. Spilað er í Golfskálanum í Leiru eins og venjulega og hefst spila- mennska stundvíslega kl. 20:00. Stjórnin Háseti óskast til línuveiða á Búrfell KE 140 sem fer síðar á netaveiðar. Upplýsingar í síma 11815 og 985-22246. Sorpkassar Eigum fyrirliggjandi sorpkassa úr trefjaplasti fyrir heimili, einfalda og tvöfalda. Viðhaldsfríir. Plastverk h.f. Strandgötu 23, 245 Sandgerði. Sími 37702 Smíði tíu togara fyrir Mar- okkómenn var rædd á fundi sem Lionsmenn í Sandgerði héldu ásamt stjórnarformanni skipasmíðastöðvarinnar Stál- víkur hf. á veitingastaðnum Vitanum á fimmtudagskvöld. Kom fram hjá stjórnarfor- manni Stálvíkur, Júlíusi Sól- nes, að hann var mjög óánægð- ur með þá ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að setja rautt ljós á togarasmíðina. Taldi Júlíus smíðina vera mikla lyftistöng fyrir skipasmíðaiðn- aðinn hér á landi. Snerist fund- ur Lionsmanna eingöngu um togarasmíðina fyrir Marokkó- menn og sköpuðust mjög líf- legar og skemmtilegar umræð- ur um málið, að sögn for- manns Lionsklúbbs Sandgerð- is, Jónasar Gestssonar. Frá fundi Lionsmanna i Sandgerði. Júlíus Sólnes i ræðustól. Ljósm.: hbb. Arsfrestur á Fjölbraut Ríkið hefur frestað því um eitt ár að yfirtaka rekstur Fjöl- brautaskóla Suðurnesja. Kom þetta fram í umræðum á fundi bæjarstjórnar Keflavíkur síð- asta þriðjudag. Munu sveitar- félögin á Suðurnesjum því fjármagna reksturinn áfram með sama hætti og áður. Þessir sjálfsögðu hlutir... Rafmagn og hiti er snar þáttur í lífi okkar, þó við veitum því varla athygli. Heimilið gengur nánast fyrir rafmagni,- sjónvarp- ið, þvottavélin, eldavélin og ekki viljum við vera í myrkri. Nota- legt, heitt bað og fullir ofnar af heitu vatni þykja einnig sjálf- sagðir hlutir. Allri þessari ,,sjálfsögðu“ orku er dreift til okkar af Hitaveitu Suðurnesja, sem leggur metnað sinn í stöðuga og hnökralausa dreifingu til neytenda. Til að tryggja að einn daginn verði ekki svarta myrkur í húsinu og aðeins kalt vatn í baðinu er vissara að láta orkureikninginn hafa forgang. Ogreiddir reikningar hlaða á sig háum vaxta- kostnaði sem veldur því að orkan er nær þriðjungi dýrari hjá þeim skuldseigustu,- þar til þeir vakna upp við vondan draum og allt lokað.... HITAVEITA SUÐURNESJA - Innheimtudeild

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.