Víkurfréttir - 20.10.1988, Blaðsíða 19
w.miHuu
Fimmtudagur 20. október 1988 19
Afmælisæfing Stakks og HSN:
Rúmlega 200 þátttak-
endur í vitlausu veðri
Snarvitlaust veður var á
Suðurnesjum þegar rúmlega
200 björgunarsveitamenn og
konur komu saman hér á
skaganum til þess að æfa
björgun, frá hafsbotni til
fjallatoppa.
Æfingin hófst um kl. níu á
föstudagskvöldið og fengu
björgunarsveitir strax einhver
verkefni að vinna að, þegar
þær mættu til þátttöku í æfing-
unni. Sæmilegasta veður var
þegar æfingin hófst, en þegar
líða tók á föstudagskvöldið og
aðfaranótt laugardagsins þá
fór heldur betur að blása og
ekki hundi út sigandi, hvað þá
björgunarsveitafólki.
Strax og æfingin hófst voru
27 verkefni i gangi, mest leit að
fólki um fjöll og firnindi, en
einnig voru sett á svið „skyndi-
slys“, þar sem látið var reyna á
viðbrögð björgunarfólks við
hinar ýmsu aðstæður.
Björgunarbát
hvolfdi
Slöngubát frá slysavarna-
sveitinni Stefni hvolfdi, er
hann var við leitarstörf ásamt
tveimur öðrum bátum í Osa-
SILVER REED
Ritvélar
frá kr. 13. 930.“
IIEHÓK
Hafnargötu 54 - Sínti 13066
omRon
PENINGA-
KASSAR
frá kr. 19.800.“
IIEHÓK
Hafnargötu 54 - Sími 13066
botnum við Hafnir. Fékk bát-
urinn á sig brotsjó með fyrr-
greindum afleiðingum.
Vel heppnuð
sjóslysaæfíng
Þrátt fyrir að veður hafi ekki
verið eins og best hefði verið á
kosið, en samt rétta veðrið til
þess að halda björgunaræf-
ingu í, þar sem slysin verða nú
oftast í bandbrjáluðu veðri,
tókst sjóbjörgunaræfingin eins
og til var ætlast, enda eigum
við Suðurnesjamenn sjóbjörg-
unarsveitir sem eru vel tækjum
búnar, þó svo alltaf megi bæta
tækjakostinn. Meðal þess sem
æft var á sjó var meðferð og
björgun með fluglínutækjum.
Var skipverjum bjargað úr
Búrfellinu KE, sem hafði
„strandað" í Helguvík á laug-
ardeginum. Þá voru einnig
fleiri sjóbjörgunarverkefni í
gangi.
Boðið til matar
Á laugardeginum var þátt-
takendum í æfingunni boðið til
matar í félagsheimilinu Stapa í
Njarðvík, sem margir þáðu
með þökkum, enda búnir að
fara um fjöll og eyðilönd í leit
að „týndu“ fólki, sem skátar
úr Keflavík, Njarðvík og
Hafnarfirði léku.
Farþegaþota
með 104 farþega
ferst
Æfingunni lauk síðan á
laugardagskvöldinu með stór-
slysaæfingu á skotæfingasvæði
hersins, en þar átti að hafa far-
ist farþegaþota með 104 far-
þega innanborðs. Var æfingin
öllum að óvörum, þar sem bú-
ið var að tilkynna að hún ætti
að vera að morgni sunnudags-
ins. Voru björgunar- og hjálp-
arsveitir á leiðinni út í Garðog
Sandgerði í smáverkefni, þeg-
ar kall kom um að flugslys
hefði orðið á skotæfingasvæði
hersins við veginn upp í Stapa-
fell.
Svæðisstjórn
tókst vel
Þegar komið var á slysstað
Hver á afmæli?
Hver á afmæli á morgun?
-Árni Björgvinsson.
Hvað er hann gamall?
-35 ára, aðeins.
Hvar verður hann á morgun?
-í vinnunni í Sparisjóðnum
auðvitað.
Næsta takmark?
-Verða 40 ára og safna
nokkrum gráum fyrir ofan
eyru. Það er í tísku.
Uppáhaldsbíll?
-Þreyttur og ógangfær Gal-
ant.
Uppáhaldsmatur?
-Vel steikt slátur með bern-
aise.
Uppáhaldsdrykkur?
-Svart kaffi, rótsterkt.
Uppáhaldseftirréttur?
-Sígaretta.
Fleiri upplýsingar um afmæl-
isbarnið ekki gefnar upp fyrr
en á fertugsafmælinu.
Með kveðju,
aðdáendaklúbbur Árna.
var þegar sett á svæðisstjórn,
sem sá um að skipuleggja
björgunaraðgerðir, sem tókust
mjög vel, og voru slasaðir
fluttir í greiningarstöð á Patt-
erson-flugvelli, þarsem æfing-
unni lauk.
Þegar þú kaupir föt!
OPIÐ
Mánud. - Fimmtud. 10-18
Föstudaga 10-19
Laugardaga 10-12
PERSÓNA
Hafnargötu 61 Simi 15099
-þegar þú kaupir föt!
Eigum ennþá
örfáa bílskúrs-
hurðaopnara frá
STANLEY
hlægilegu verði
kr. 18.900
staðgreitt
Járn & Skip
v/Víkurbraut Sími 15405