Víkurfréttir - 09.03.1989, Side 5
viKtin
Fimmtudagur 9. mars 1989 5
juiUt
Ky vindur Ólat'sson, bílasali, helur nú opnað bilasölu í Gróllnni og er umboðsaðili fyrir Svein Kgils-
son-l}ílaborf> hf. l.iósm.: hbh.
Bílasaala Suðurnesja:
Ný bílasala í B.G.-húsinu
Hlaut höf-
uðmeiðsliá
dansleik
Maður einn, sem var á
laugardagskvöldið í Glaum-
bergi, datt og hlaut af því
höfuðmeiðsli. Voru bæði
lögregla og sjúkrabíll kölluð
á staðinn en hinn slasaði var
fluttur undir læknishendur.
Úskar Jóns-
son gefur
Njarðvíkur-
bæ listaverk
Óskar Jónsson hefur gefið
Njarðvíkurbæ listaverk eftir
sjálfan sig. Listaverkið, sem
er af ráðhúsi Njarðvíkurbæj-
ar og nánasta umhverfi, er
unnið úr áli. Hefur bæjarráð
þakkað listamanninum
höfðinglega gjöf og falið bæj-
arstjóra að finna verkinu við-
eigandi stað.
Ný bílasala, Bílasala Suð-
urnesja, opnaði um síðustu
helgi í B.G.-húsinu, Gróf-
inni 8 í Keflavík. Það er Ey-
vindur Ólafsson sem rekur
bílasöluna en áður starfaði
hann við bílasöluna Bílanes í
Njarðvík.
Bílasala Suðurnesja er
umboðsaðili á Suðurnesjum
fyrir Svein Egilsson-Bíla-
borg hf. og er þetta fyrsta
sameiginlega umboð þessara
fyrirtækja fyrir utan Reykja-
vík, en reyndar hefur sam-
einingin ekki átt sér fullkom-
lega stað hjá aðulumboðun-
um.
Á boðstólum hjá hinni
nýju bílasölu verða meðal
annars merki eins ogMazda,
Ford, Suzuki, Fiat, Lancia,
Hyundai (Hondæ) og Kor-
ando.
Að sögn Eyvindar er hægt
að fá nýja bíla á mjöggóðum
kjörum, 25% út og rest á allt
að 30 mánuðum. Þá vantar
einnig alla nýlega bíla á sölu-
skrá.
Staðgreiðsla skatta:
Sveiflur í atvinnumálum koma fram strax
Töluverður samdráttur
varð í staðgreiðslu skatta í
gegnum Gjaldheimtu Suður-
nesja nú í febrúar, að sögn
Stefáns Jóns Bjarnasonar,
formanns SSS. Sagði hann
samdrátt þennan vigta rúm
30% miðað við endaðan febr-
úar í samanburði við janúar-
lok.
Ekki er þó hægt að taka
tölu þessa og telja hana alla
vegna samdráttar, því þegar
þessir tveir mánuðir eru
bornir saman koma þrjú til-
vik sem skoða þarf nánar.
Það er hækkun á persónuaf-
slætti, en launin stóðu í stað,
sem þýðir minni skatt-
heimta. Þá er alltaf mikjll
fjöldi fólks sem greiðir í jan-
úar vanskil frá fyrra ári og
síðan eru það atvinnumálin
og sveiflur í þeim sem skila
sér strax í innheimtunni.
Sagði Stefán Jón því að
það væri fyrst í marslok sem
hægt væri í raun að sjá hvað
samdráttur þessi vigtaði
stórt hjá gjaldheimtunni og
kæmi þar með niður á sýeit-
arfélögunum og ríkinu.
TJARNARGÖTU 31 KEFLAVÍK SÍMI 13977
Slökkvi-
liðið
gabbað
Slökkvilið Brunavarna
Suðurnesja var á mánudags-
morgun kallað að íbúðar-
húsi einu í Garði. Erslökkvi-
lið kom á vettvang reyndist
um gabb að ræða en ekki er
vitað hverjir þar voru að
verki.
1. flokks restaurant og bar
Hraðflugsmatseðiil
í hádeginu
Léttur réttur
ávallt í hádeginu
Fullbókað
í mat
föstudags-
og laugar-
dagskvöld.
Barinn aðeins
opinn fyrir
MATARGESTI
Þar sem vinir og
kunningjar hittast
Hafnargötu 57, Keflavik,
Sími 15222