Víkurfréttir - 09.03.1989, Page 12
ví scni u|>p ú vorður hoöið á basarnuni á lauj>-
I'ólajjar úr kór Vtri-Njarðvíkurkirkju mcð sýnishorn al’ þ
ardaj;. I>ar vcrða m.a. konlckl, kökur, páskaskraut op llcira
muii
juUit
12 Fimmtudagur 9. mars 19Ö9
Miðvikudagsbíó á 50 kr.
Sýnum n.k. miðvikudagskvöld
kl. 21 grínmyndina
„HENTU MÖMMU AF LESTINNI“
Aðgangseyrir 50 kr.
Greiðslukortaþjónusta
VÍKURFRÉTTIR
Auglýsing frá
Sálarrannsóknar-
félagi Suðurnesja
Enski skyggnilýsingamiðillinnZena Davies
mun starfa á vegum félagsins á næstunni.
Miðasala á einkafundi verður á sunnudag-
inn 12. mars kl. 14-18 í húsi félagsins að
Túngötu 22, Keflavík.
Stjórnin
Kraarstemning
í Vitanum
föstudags- og laugardagskvöld til kl. 03
OVÆN I AR IJrPAKOMlJR.
SÍÐU'STU Hlil.Cil VAR
STHMNINUIN MlilRI
HÁTTAR - OCi NÚ
HNDUR Í ÖKUM VIÐ
iiANA. GÍI AR1NN Á SÍN-
UM STAÐ í SALNUM.
MATARGLSTIR - PANTIÐ
BORÐ 'I'ÍMANLLGA.
20 ÁRA ALDURS-
TAKMARK.
HITTUMST HRLSS.
Ath: Höluni opnao altur a srmnudögum
Irá 11.30-21.00. - Opið alla virka daga
frá kl. 9.30-20.00.
Tökum að okkur allar gcrðir af veislum.
Cj’ctum cnn liætt við okkur vinsælu köldu
fcrmingarborðuiium.
Sandgerði - Simi 37755
Ytri-Njarðvíkurkirkja:
Páskabasar á laugardag
Kór Ytri-Njarðvíkur-
kirkju syngur af miklum
krafti um þessar mundir.
Æft er fyrir fermingar og
páskamessur og í apríl verð-
ur haldið upp á lOára vígslu-
afmæli kirkjunnar. En kór-
inn gerir meira en að syngja
sálma og eitt kvöldið í vik-
unni voru nokkrir félagar
samankomnir í safnaðarsal
kirkjunnar og gerðu kon-
fektrúllur og fleira.
Á laugardaginn heldur
kórinn basar og verður þar
til sölu konfekt, kökur,
páskaskraut, servíettur og
kerti. Þetta er eina íjáröflun-
arleið kórsins og hvetja fél-
agar hans Suðurnesjafólk til
að kíkja við og versla til
páskanna.
Basarinn hefst kl. 14:00
laugardaginn 11. mars í safn-
aðarsal Ytri-Njarðvíkur-
kirkju.
Vaknaðu.
Hjörtur!
Bæjarritari Keflavíkur
gerist pennaglaður í síðasta
tölublaði. Hvað ollli þeim
skrifum veit ég ekki, nema
ástæðan sé sú að blessaður
maðurinn hafi verið að
vakna af löngum svefni.
Mun ég hér benda á rök mín
því til staðfestingar. Fyrst
ætla ég þó að taka fyrir
áhyggjur hans af ákveðnum
Mola.
Þar talar hann urfrað hann
vilji skýringar á því hvar
Keflvíkingar hafi hunsað
heimamenn. Hér hefurhann
verið sofandi þegar hann
skrifaði þessa spurningu, því
hvergi í umræddum Mola er
talað um Keflavíkurbæ. En
fyrst hann tekur þetta svona
alvarlega til sín er allt í lagi
að fletta upp í minni hans og
benda honum á tvö nýleg
dæmi. Bæði þessi dæmi snú-
ast um bækling sem gefinn
verður út af bænum vegna 40
ára afmælisins í næsta mán-
uði.
I fyrsta lagi sá Keflavíkur-
bær ekki ástæðu til að fá
neinn úr hópi skattgreiðenda
til að skrifa bæklinginn um-
rædda og það ekki þó vitað
væri að menn vildu skoða
það dæmi, heldur var verkið
einhliða boðið brottfluttum
Keflvíkingi á silfurfati. í
annan stað, þegar kom að
prentun verksins, þá átti
prentsmiðja í Hafnarfirði
lægsta tilboð. Því var tekið
en ekki rætt við prentsmiðj-
urnar í Keflavík og Njarð-
vík um það hvort þær gætu
lækkað sig. Ekki voru málin
heldur skoðuð ofan í kjölinn
og kannað hvort ekki væri
hagkvæmara fyrir bæjarfél-
agið að versla heima.
Um það mál sem virðist
aðallega valda bæjarritaran-
um hugarangri, er rétt að
geta þess að umræddar tölur
um skuldastöðu Keflavíkur-
bæjar um áramót voru lagð-
ar fram á stjórnarfundi SSS
af Guðjóni Guðmundssyni
framkvæmdastjóra þann 16.
febrúar s.l. Þessar tölur voru
síðan birtar hér í blaðinu að
beiðni fulltrúa Keflavíkur-
bæjar í stjórn SSS. Er því við
hann að sakast ef tölur þess-
ar eru r.ngar en ekki -'ið
blaðið.
Að lokum Hjörtur: Vertu
vakandi næst þegar þú skrif-
ar og lestu betur heima.
Emil Páll Jónsson
JLfc.