Víkurfréttir - 09.03.1989, Qupperneq 19
\>iKun
f/ump
Fimmtudagur 9. mars 1989 19
STJORNUSKANDALL
Övenjuleg útsending Stjörnunnar frá Fegurðarsamkeppni
Suðurnesja. - Útvarpsmaðurinn drukkinn?
„Ég hef' hringt í útvarps-
stjóra Stjörnunnar, Þorgeir
Ástvaldsson, og óskað eftir
afriti af útsendingu héðan á
laugardaginn. {framhaldi af
því mun ég íhuga mitt mál.
Hvort um málshöfðun
verður að ræða get ég ekki
sagt á þessari stundu“, sagði
Ragnar Öm Pétursson, veit-
ingamaður í Glaumbergi,
um vægast sagt óvenjulega
útsendingu útvarpsstöðvar-
innar Stjörnunnar frá Feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja
si. laugardag.
Jón Axel Ólafsson hafði
undirbúið útsendingu frá
Glaumbergi, en hún varð
styttri en gert var ráð fyrir.
Að því er blaðið hefur hermt,
þá kom Jón Axel ,,í loftið"
rétt eftir klukkan 20 og sagði
þá að hann væri staddur á
Fegurðarsamkeppni Suður-
nesja í Glaumbergi. Út-
varpsmaðurinn sagði síðan
eitthvað á þá leið, að skipu-
lagning og framkvæmd
keppninnar væri viðvanings-
lega unnin og illa að
henni staðið, en þátttakend-
urnir gullfallegir. Var síðan
,,klippt“ á útsendinguna. Er
talið að útvarpsmaðurinn
hafi verið talsvert undir
áhrifum áfengis og hafa
margir staðfest það við
blaðið, er sáu hann þetta
kvöld.
Blaðið hafði samband við
Þorgeir Ástvaldsson, út-
varpsstjóra, um þetta mál.
Vildi hann ekki tjá sig um
það að svo stöddu, þar sem
hann sagðist ekki hafa haft
tíma tjl að hlusta á afrit af út-
sendingunni, vegna anna.
Sigurður
vann
bræðraslaginn.
Sigurður
Gísli
Sigurður Magnússon vann
bræðraslaginn og sló þar
með Gunnar bróður sinn út
úr getraunaleiknum. Sigurð-
ur fékk 6 rétta en Gunnar 5
og hefur hann skorað á Gísla
Eiríksson, rafmagnstækni-
fræðing með meiru og starfs-
mann hjá Geisla hf. í Kefla-
vík. Gísli tippar af og til og
hefur meira að segja fengið
12 rétta einu sinni, þegar
hann var við dvöl í Dan-
mörku. „Ég helt ég hefði
bjargað námslánunum en
svo fór nú ekki. Það voru
hundruðir ef ekki þúsundir
manna með 12rétta, þannig
að vinningurinn varð eng-
inn“ sagði Gísli, sem er „púl-
ari“ eins og Sigurður.
Staðan á toppnum er
þannig að Júlíus Baldvins-
son er sem fyrr efstur, með 7
skipti. Jón Halldórsson er
með 4 skipti (ekki þrjú) og
síðan koma með þrjú skipti,
Haraldur Á. Haraldsson,
Gunnar Magnússon og eftir
þessa viku er Sigurður
Magnússon kominn með 3
skipti.
Fjórir efstu kapparnir
munu síðan heyja úrslita-
keppni um heila helgarferð
og miða á bikarúrslitaleikinn
í enska boltanum, með Sam-
vinnuferðum-Landsvn.
&
K3ÓTSEL
ef þú vilt gæði
og gott verð
S. G.
Arsenal-Nott.For.
Charlton-Southampton
Derby-Tottenham
Everton-Sheff.Wed.
Luton-Millwall
Middlesbro-Liverpool
Newcastle-Q.P.R.
Norwich-Wimbledon
West Ham-Coventry
Chelsea-Watford
Leeds-Ipswich
Oxford-W.B.A.
I
1
X
1
1
2
2
1
2
1
X
2
Ritstjóra-
afmælis-moli
Emil Páll Jónsson, stórrit-
stjóri, molahöfundur og
pennavinur fjölda bæjarbúa, á
afmxli á morgun. Já, ritstjór-
inn er fertugur og eins og
sönnum Suðurnesjamanni
sæmir, sem alist hefur upp í
sjávarþorpi á Suðurnesjum,
er hann fiskur. En ritstjórinn
ætlar samt ekki að láta veiða
sig á afmælisdaginn. Einhver
stórhöfðingi úti á landi hefur
boðið honum í ,,mola“-kaffi
til að ræða heimsmálin, og því
verður hann ekki heima við.
Sendum þér okkar bestu af-
mxliskveðjur og vonum að þú
dýfir þessum afmælis-mola í
afmæliskaffíð.
Pennavinir
'(
)Y
\)
UTSALA I DUUS
Rýmingarsala dagana 10. til 18. mars
á útlitsgölluðum húsgögnum eða á
meðan birgðir endast.
Einnig ýmis hús-
gögn á tilboðsverði
Kjör við
allra hæfi
Opið laugardag
til kl. 16 1 r(fA
\
r • •
DUUS-HUSGOGN Hafnargötu 90 - Sími 12009
y