Víkurfréttir


Víkurfréttir - 18.05.1989, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 18.05.1989, Blaðsíða 9
\Mmii juiUt Fimmtudagur 18. maí 1989 9 Kef lavík u rkau pstaðu r Keflavík, maí 1989 KEFLVIKINGAR Lóðahreinsun vorið 1989 Eigendur og umráðamenn lóða og landssvæða eru hvatt- ir til að gera rækilega hreinsun lóða sinna í kaupstaðnum á þessu vori. Forráðamönnum fyrirtækja, stofnana og húsbygginga ber einnig að hreinsa lóðir sínar og bygg- ingasvæði og fjarlægja allt rusl af þeim nú þegar. Allt rusl og þessháttar skal fara með í Sorpeyðingarstöð Suður- nesja, sem er opin sem hér segir: Mánudaga-föstudaga kl. 8-22; laugardaga kl. 8-16; sunnudaga lokað. Algjörlega er óheimilt að losa rusl á opnum svæðum í landi Keflavíkur- kaupstaðar. Bifreiðahræog annan málmúrgang, sem fólk þarf að losa sig við, skal fara með í Sorpeyðingarstöðina. Stefnterað því að lóðahreinsuninni verði lokiðaðfullu 15. júní nk. Til þess að auðvelda fólki í íbúðahverfum bæjar- ins að losna við rusl af lóðum sínum, mun bærinn að venju leggja fram bifreiðir og vinnuflokka, er fara um bæinn og taka rusl til brottflutnings. Vinnuflokkar þessir munu þó aðeins fjarlægja rusl sem sett hefur verið í poka eða bund- ið saman i knippi og safnað saman í tæka tíð á einn stað, út við götu, við hverja lóð. Rusl sem er ekki frágengið í pokum eða knippum ber umráðamanni lóðar sjálfum að fjariægja. Vinnuflokkar bæjarins munu ekki hreinsa sjálf- ar lóðirnar nema til slíkra aðgerða þurfi að koma og þá á kostnað umráðamanns lóðar. Umráðamönnum lóða er bent á að þáð er algeriega óheimilt að flytja lausan jarðveg út fyrir lóðamörk, þar sem vinnuflokkar bæjarins munu undir engum kringumstæðum fjaríægja slíkan jarðveg. Fólk er vinsamlegast beðið að f lokka rusl sem hér segir: 1. timbur, 2. málmar, 3. netariðill, dekk og fiskikassar, 4. ann- að brennanlegt rusl, s.s. sorp, bréfarusl og bólstruð hús- gögn. ATH. við Áhaldahús Keflavíkurbæjar hefur verið komið fyrir tveim gámum, sem hægt er að losa rusl í, utan opnunartíma Sorpeyðingarstöðvarinnar. Skólagarðar Skólagarðar Keflavíkur verða starfrækt- ir í sumar, eins og undanfarin sumur, fyrir börn á aldrinum 8-12 ára. Innritun fer fram í Áhaldahúsi Keflavíkurbæjar, Vesturbraut 10a, sími 11552, föstudag- inn 26. maí kl. 13-17. Starfsemin hefst fimmtudaginn 1. júní. Unglingavinna Starfsvöllur Starfsvöllur verður starfræktur í sumar, eins og undanfarin sumur, á svæði Skólagarða Keflavíkur. Starfsemin hefst í byrjun júní. Innritun auglýst nánar í næsta blaði. Tilkynning til aldraðra Keflavíkurbær mun starfrækja unglinga- vinnu í sumar fyrir unglinga fædda 1974, 1975 og 1976. Vinna verður með líku sniði og undanfarin ár. Skráning fer fram föstu- daginn 26. maí frá kl. 10-12 og 13-17 í Áhaldahúsi Keflavíkurbæjar. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðumaður á staðn- um. Unglingavinnan í Keflavík veitir aðstoð við um hirðu lóða hjá þeim bæjarbúum sem vegna aldurs eða fötlunar geta ekki sinnt því sjálfir. Þessi þjónusta er ókeypis. Nánari upplýsingar veita forstöðumenn unglinga- vinnunnar í Áhaldahúsi Keflavíkurbæjar við Vesturbraut, sími 11137. HREINN BÆR — OKKUR KÆR Dagana 26. maí til 15. júní n.k. hefur verið ákveðið að gera sérstakt átak í hreinsun og snyrtingu bæjarins, með því að hreinsa rusl af lóðum og lenþum, mála og lagfæra hús, girðingar o.fl. Bæjarbúar eru hér með hvattir til að taka þátt í verkefni þessu og notfæra sér þjónustu sem veitt er frá Áhaldahúsi Keflavíkurbæjar, sími 11152. - Keflvíkingar! Fegrum umhverfið! Þökkum bæjarbúum öllum góða samvinnu á undanförnum árum við hreinsun og fegrun bæjarins. BÆJARSTJÓRINN í KEFLAVÍK V

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.