Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 26.05.1989, Blaðsíða 9
Vikur jutUi Það tókst aldrei neinum að eignast hana Keflavík A A oil/'wrinoii i Innrlinci Keflvíkingurinn GUNNAR EYJÓLFSSON, leikari og skáta- höfðingi, ræðir um bæjarlífið áður fyrr, pólitíkina, trúna og margt fleira . . . Að lokinni leikæfingu í Jónshúsi féllst hann á að eiga við mig spjall um lífið og tilveruna í Keflavík. Rifja upp gamalt leikhúsverk sem aðeins hefur verið leikið einu sinni og verður ekki endurtekið nema í hugans ranni. Gunnar Eyjólfsson ergamall Keflvík- ingur og man bæinn eins og hann var fyrir stríð. Breytingar eru alltaf ljósar fyrir þeim sem ekki fljóta með átt- haga sínum í gegnum tímans tönn. Langt er síðan Gunnar bjó í Keflavík og því liggur beint við að spyrja, „Gunnar, ertu ennþá Keflvíkingur?" „Já, ef ég er nokkuð þá er ég það. Eg verð aldrei Reykvíkingur að ég held, en mér hefur liðið ákaflega vel í Reykjavík. Sama á sennilega við um fólks sem flyst utan af landi til Kefla- víkur, því líður vel í Keflavík þó það segi sig ekki vera Keflvíkinga. En ég er Keflvíkingur og sennilega vegna þess að mótunarárin eru í Keflavík og að vísu líka í Reykjavík þegar ég var þar í Verslunarskólanum.“ -Hvað höfðu börn fyrir stafni í Keflavík dags daglega á þínum ungl- ingsárum? „Það var eins og í öllum sjávar- þorpum, ekkert frábrugðið. Við urð- um að sjá fyrir okkur alveg sjálf með allar tómstundir. En það var ákaflega mikið haldið til í fjörunni. Eg átti nú heima þarna rétt fyrir ofan bakkann og maður þurfti ekki annað en að ganga niður Klapparstíginn, þá var maður kominn niður í, fjöru. Fjaran var tiltölulega ómenguð nema undir bakkanum, þar«ém menn skvettu úr kamarfötunum, en sjórinn hreinsaði það nú fljótt. Við áttum okkar lón sem við gátum leikið okkur í og þar var sprettfiskur undir hverjum steini. Við þvældumst út á Berg og inn á Vatnsneskletta og fórum í gegnum Vatnsneshellinn hvað eftir annað, og við pössuðum okkur að verða ekki það feitir að festast í honum. Það var martröð sem sótti stundum á mig eft- ir að ég var búinn að skríða í gegnum Vatnshellinn á fjöru, sú martröð að ég væri orðinn svo feitur að ég myndi festast í litla opinu á hellinum og drukkna þarna niðri þegarþað flæddi að. Fjörulífið var mikið og svo heiðar- lífið. Þá var maður kominn upp í heiði um leið og komið var upp fyrir bakarístúnið sem hún Guðrún í baka- ríinu átti. Bakarístúnið var það langt fyrir utan bæinn að þar var lítið sælu- hús sem vinnufólk notaði þegar tún- ið var heyjað. Svo var upp á heiðinni bæði ber og kría, og á haustin fengum við að smala með körlunum og það var mjög gaman. Ég man eftir þessu fram að stríði. Þá var smalað upp á Háaleiti og smalað í Asarétt sem var upp af ás- unum fyrir ofan Fitjar. Þaðan var féð síðan rekið heim til Keflavíkur og þá var réttað á Suðurgötunni í lítilli rétt sem Magnús Jónsson átti.“ -V'ar húskapur mjög almennur í Keflavík? „Já, það voru nokkrir sem áttu beljur og nokkrir áttu kindur. Þetta var sjálfsbjargarviðleitni hjá fólki og mér finnst, þegar ég horfi til baka, að það hafi alltaf verið duglegt fólk í Keflavík. Það átti sína kartöflu- og
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.