Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 26.05.1989, Blaðsíða 20
KEFLAVÍK 40 ÁRA \>iKun Mjög góður verslunar- og þjónustukjarni hefur risið við Hafnargötu 21-23 í „Færseth- höllinni“, sem margir vilja nefna eftir eigendunum, sem eru þau Hallgrimur Færseth, Óskar Færseth og Pálína Fær- seth. Þau keyptu húsið við Hafnargötu 23, sem i nokkur ár hafði staðið autt og i niður- niðslu. I desember 1987, að- eins nokkrum mánuðum eftir að hinir nýju cigendur tóku við húsinu, fluttu fyrstu fyrir- tækin inn i húsið, Sportbúð Óskars og Hárgreiðslustofa Pálu. A siðasta ári var lokið við viðbyggingu við húsið, sem stendur við Hafnargötu 21, en þar eru nú þrjú fyrir- tæki staðsett, Ungbarnafata- verslunin Andrea, Verslunin Draumaland og Nýja video- leigan. Sportbúð Óskars er sem fyrr á jarðhæð Hafnar- götu 23, en á 2. hæðinni Hár- greiðslustofa Pálu og Likants- rækt Óskars. VERSLUN OG ÞJÓNUSTA HAFNARGÖTU 21-23 Líkamsrækt ÓSKARS Likamsrækt Óskars opn- aði sumarið 1988 og bauð upp á algera nýjung í heilsurækt, svokallað „Flott form“. Þetta „Flotta form“ býður upp á 7 mis- munandi bekki sem styrkja og grenna fólk. Hver bekkur er 7-8 mínút- ur að í senn og samtals tek- ur ,,hringurinn“ um klukkustund. Óskar Færseth sagði að árangurinn af bekkjunum væri mjög góður. „Fólk á öllum aldri sækir i bekk- ina, bæði íþróttafólk og þeir sem ekki stunda neitt sport. Bekkirnir hafa góð áhrif á likamsstarfsemina, koma blóðrásinni af stað og vinna vel á vöðvabólgu. Svo geturðu auðveldlega misst mörg kíló.“ Verslunin DRAUMALAND „Þetta er alveg svakalega skemmtilegt og svo gengur bara mjög vel,“ sagði Nanna Jónsdóttir,eigandi verslunarinn- ar Draumalands, þegar við spurðum hana hvernig það væri að reka iitla sérverslun i Keflavík. Nanna tók ásamt eiginmanni sínum, Birni Vífli Þor- leifssyni, við rekstri Draumalands í febrúar 1987, en þá var þúðin staðsett að Hafnargötu 37. „Þegar okkur bauðst pláss hérna í gamla Víkurbæjarhúsinu þá ákváð- um við að slá til og sjáum ekki eftir þvi. Þetta er miklu rúmbetra og hentugra á allan hátt, svo og betra glugga- pláss,“ sagði Nanna en það var 1. des. 1988 sem verslunin flutti á nýja staðinn. I Draumalandi er lögð áhersla á alls kyns heimilisvör- ur. Þar er að finna gardínuefni í metratali og Nanna sagði að hún væri að auka áhersluna á það. Vinsældir rimla- gardina hafa aukist mikið og þær eru til í stöðluðum stærðum á mjög góðu verði. Þá er að finna mjög gott úr- val af sængurverasettum og sængum, einnig baðslopp- um á alla fjölskylduna, baðmottum, baðsettum og stök- um gólfmottum. Loks má geta úrvals af ýmis konar gjafa- vöru, hentugri til tækifærisgjafa. Nanna sagði að einn þáttur i þjónustu Draumalands væri að sérsauma fyrir viðskiptavini, s.s. gardínur, dúka, kodda og fleira. Einnig sagðist hún sauma talsvert til sölu í versluninni. En er hún bjartsýn á framhaldið? „Já, ég hef alltaf verið bjartsýn og verð það áfram,“ sagði Nanna Jónsdóttir. Nýja videoleigan er yngsta fyrirtækið hér í verslunar- og þjónustukjarnanum að Hafnargötu 21-23. Hún er aðeins tveggja ára og flutti á Hafnargötu 21 3. des. 1988 en hafði ver- ið i eitt ár í Ungóhúsinu. Eigendur Nýju videoleigunnar eru þau Guðrún Adolfsdóttir og Óskar Ffaraldsson. „ Við reynum að gera öllum til hæfis og leggjum áherslu á að hafa efnið sem fjölbreyttast,“sögðu þau aðspurð um mynd- efnið sem boðið er upp á í dag. „Spennumyndir og gaman- myndir eru vinsælastar en svo er alltaf mikil eftirspurn eftir góðu barnaefni. Við höfum lagt áherslu á að vera með gott úr- val af því og fáum t.d. allar teiknimyndirfrá Walt Disney sem eru geysivinsælar, enda ekki sýndar í sjónvarpinu.“ En horfa Suðurnesjamenn mikið á video? „Já,það eróhætt að segja það. Útleiga hefur aukist jafnt og þétt frá þvi við byrjuðum. Bæði hefur sjónvarpsdagskránni hrakað, og þá sérstaklega Stöð 2, en einnig má rekja þessa aukningu til þess að nú orðið líður stuttur tírni frá því stórmyndir eru sýndar i bíói þar til þær eru komnar á mvndbönd.“ Nýja videoleigan er einnig með söluumboð fyrir Ofna- smiðju Norðurlands en Óskar er einniitt pípulagningamaður og getur því veitt faglegar ráðleggingar í þeim efnum. NÝJA VIDEOLEIGAN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.