Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Blaðsíða 43

Víkurfréttir - 26.05.1989, Blaðsíða 43
Sparisjóðurinn í 80 ár Stiklað á stóru í sögu Sparisjóðsins í Keflavík Aðdragandi Á ofanverðri 19. öld var hér á landi mikil vakning á öllum sviðum menn- ingar- og atvinnulífs sem og annars staðar í hinum vestræna heimi. Á þessari tíð voru það oft prestar, sem áhugasanrastir voru um framfarir og hagsæld alþýðunnar. Verslað í heimabyggð Notkun peninga í viðskiptum var á þessum tíma löngu orðin gamalkunn um allan hinn siðmenntaða heim. Hér á landi eimdi þó enn eftir af forn- eskjulegum viðskiptaháttum, sem fólust einkum í vöruskiptaverslun. Með slíkri verslun gátu kaupmenn Þorgrímur Þórðarson læknir og alþingismaður tryggt sér viðskipti heimamanna, sem voru upp á þá komnir með atvinnu og sölu afurða. Lítið var því um peninga í umferð. Þingeyingar fyrstir Talið er, að fyrsti sparisjóður á Is- landi sé Sparnaðarsjóður búlausra í Skútustaðahreppi, sem hóf starfsemi sína árið 1858, en var lagður niður ár- ið 1864. Suðurnesjamenn koma fyrst við sögu sparisjóða með stofnun Sparisjóðs Reykjavíkur hins fyrri, en hann var stofnaður árið 1872, og voru Suðurnes áþjónustusvæði hans. Þessi sparisjóður var sameinaður Lands- banka íslands árið 1887. Kristinn Daníelsson prestur og alþingismaður Prestur og læknir Árið 1883 flutti á Suðurnes Þórður Thoroddsen læknir. Þrem árum seinna flyst að Utskálum sér Jens Pálsson. Saman stóðuþeirað stofnun Sparisjóðsins á Rosmhvalanesi, en hann er talinn stofnaður 1. júlí 1889, og eru því á þessu ári liðin 100 ár frá stofnun hans. Þessi sparisjóður átti erfitt uppdráttar og var hann lagður niður árið 1892. Það sama ár flutti Skúli Thoroddsen, bróðir Þórðar læknis, frumvarp á Alþingi um að banna verslunum að greiða laun öðruvísi en með gjaldgengum pening- um. Frumvarpið mætti harðri and- stöðu og náði ekki fram að ganga. Mennt er máttur Undir aldamótin, eða árið 1899, er sett á stofn fyrsta verslunin i Kefla- vík, sem greiðir fyrir vöru og þjón- ustu með beinhörðum peningum. Þetta er verslunin Edinborg. Árið 1904 flyst Þórður læknir Thorodd- sen til Reykjavíkur og gerist gjald- keri við nýstofnaðan íslandsbanka, en í hans stað er skipaður Þorgrímur Þórðarson, læknir og alþingismaður. Árið áður hafði komið að Utskálum nýr prestur, séra Kristinn Daníelsson alþingismaður. Nú er tíminn fullnað- ur og Sparisjóðurinn í Keflavík í nánd. Og enn eru það presturinn og læknirinn, sem hafa forgöngu um stofnun sparisjóðs, í Keflavík þann 7. nóvember 1907. Fyrstu skrefin Séra Kristinn Daníelsson var for- maður stjórnar Sparisjóðsins en Þor- grímur Þórðarson, læknir, var gjald- keri. Fyrsta árið er sjóðurinn opinn til viðskipta einu sinni í viku, frá 12-1 á mánudögum, og var sjóðurinn til húsa á lækningastofu Þorgríms. Sá háttur var síðan hafður á allt til 1933 er Þorgrímur Iét af störfum sem gjaldkeri. Grunnurinn að Sparisjóðn- um er því ekki lagður í sérsmíðuðum og hátimbruðum peningahöllum, heldur innan um lyf og læknatól. ÖNNUR KYNSLÓÐ Á aðalfundi í maí árið 1933 kom inn í stjórn Sparisjóðsins Lúðvík Þor- grímsson, sonur Þorgríms læknis. Þorgrímur var þá orðinn aldraður og vænti sér góðs af aðstoð sonar síns. En mánuði síðar lést Þorgrímur og Lúðvík tók við störfum hans. Þá kom inn í stjórnina Þorgrímur St. Eyjólfs- son, fóstursonur Þorgríms læknis. Lúðvíks naut ekki lengi við til starfa hjá Sparisjóðnum, því hann lést af slysförum um mitt næsta ár, það er árið 1934. Við starfi gjaldkera tók þá Stefán Björnsson húsgagnasmiður, fóstursonur Þorgríms læknis. Þá flutti Sparisjóðurinn af læknastof- unni, sem hafði hlúð að honum eins og besta fæðingadeild, og settist að í húsi Stefáns Björnssonar, þar sem nú er Vallargata 17. Vll'illdiutíU I cngst til hægri er Norðfjörðshús, nú þekkt sem UMFK-hús. 1 þessu húsi bjó Þorgrímur Þórðar- son þegar Sparisjóðurinn í Keflavík var stofnaður, og þar var fyrsta aðsetur sjóðsins. TÆKNIVÆÐING OG STRÍÐ Þáttaskil verða í sögu Sparisjóðs- ins árið 1939, en þá var samþykkt á aðalfundi að heimila gjaldkera kaup á reiknivél og ritvél. Á næstu árum juk- ust umsvif Sparisjóðsins margfald- lega og árið 1941 fær gjaldkeri í fyrsta sinn heimild til að kaupa aðstoð við ársuppgjör, en slíkt hafði ekki áður gerst. Árið 1944 er svo Guðmundur Guðmundsson ráðinn aðstoðarmað- ur gjaldkera í hlutastarfi, en hann var þá einnig skólastjóri barnaskólans. Seinna á þessu sama ári lést Stefán Björnsson gjaldkerfi og á stjórnar- fundi í Sparisjóðnum 18. september 1944 verður Guðmundur Guð- mundsson, skólastjóri, gjaldkeri sjóðsins. Ári síðar var hann ráðinn í fullt starf sem sparisjóðsstjóri. Nýbygging Árið 1955, þann 17. júní, var tekið í notkun nýtt hús Sparisjóðsins að Suðurgötu 6. Fyrir löngu var þá orð- ið allt of þröngt um Sparisjóðinn að Vallargötu 17, og hafði verið hafist handa árið 1953 við að reisa þessa myndarlegu byggingu. Farsæl uppbygging Næsta hálfan annan áratug stjóm- aði Guðmundur Guðmundsson Sparisjóðnum af festu og röggsemi. Árið 1968 var heilsu Guðmundar þó farið að hraka og flutti hann þá til- lögu á aðalfundi um að hugað yrði að eftirmanni hans. Fundarmenn lögðu til að Jón P. Guðmundsson, sonur Guðmundar, yrði eftirmaður föður síns. Var svo gert og var hann spari- sjóðsstjóri frá 1969 til ársins 1973, en þá tók við í eitt ár settur sparisjóðs- stjóri, Geirmundur Kristinsson. Fjölgar í forystu Þann 1. maí 1974 tóku til starfa tveir nýráðnir sparisjóðsstjórar, þeir Páll Jónsson og Tómas Tómasson. Báðir hafa þeir verið um árabil ötulir og framsýnir félagsmálamenn, hvor á sínum væng stjórnmálanna, í bæjar- stjórn, ýmsum nefndum og félaga- samtökum. I framhaldi af þessu juk- ust umsvif Sparisjóðsins gífurlega, samfara því róti sem var á þjóðfélag- inu öllu með verðbólgu, aukinni þjónustu bankastofnana og afskipt- um ríkisvaldsins. Á þessum árum batnar einnig hagur Sparisjóðsins og markaðshlutdeild hans á Suðurnesj- um eykst stórlega. Fjölþætt starfsemi Aukinn viðskiptamannafjöldi og peningastreymi kallaði á úrlausnir og árið 1974 stofna bankarnir Reikni- stofu bankanna, en Sparisjóðurinn í Keflavík ákvað að fara aðrar leiðir og festi kaup á eigin tölvu árið 1975. Hefur verið rekin tölvudeild við sjóðinn síðan, sem sér um mest alla vélvinnslu bókhaldsins. Auk þess hefur Sparisjóðurinn séð lengi um allt bókhald Lífeyrissjóðs verkalýðsfél- aga á Suðurnesjum auk fleiri lífeyris- sjóða. Sparisjóðurinn stofnaði árið KEFLAVÍK 40 ÁRA Páll Jónsson sparisjóðsstjóri Tómas Tómasson sparisjóðsstjóri Fyrsti peningakassi Sparisjóðsins í Keflavík, nú í vörslu Byggðasafnsins á Vatnsnesi. legu og flóknu þáttum, sem sam- tvinnast í slíkri stofnun. Það er því langur vegur frá upphafsárum Spari- sjóðsins, þegar hann var allur saman- kominn í Iitlum peningakassa á lækn- isstofunni hér í bænum. Nokkrar nefndir starfa þess vegna reglulega við að halda því flókna og fíngerða úr- verki gangandi, sem við köllum Sparisjóðinn í Keflavík, já, halda gangandi Sparisjóðnum, sem er orð- inn stórveldi hér á Suðurnesjum og hefur verið íbúunum til hagsældar og framfara um áttatíu ár og mun von- andi verða enn um sinn. 1977, fyrstu sparisjóða á landinu, útibú, og er það staðsett í Njarðvík. Síðan hafa verið sett á stofn útibú í Garði og Grindavík. Nefnd er máttur Það gefur auga leið, að svo fjöl- breytt starfsemi sem rekin er í Spari- sjóðnum, þarfnast mikillar um- hyggju. I nútíma bankastofnun er enginn möguleiki fyrir einn mann að henda reiður á öllum þeim Hátíðarræða Tómasar Tómas- sonar, sparisjóðs- stjóra og fyrrv. for- seta bæjarstjórnar, á 40 ára afmælishátíð Keflavíkur. Sameiginlegar rætur og Forseti íslands, frú Vigdis Finnbogadóttir. Forseti bæjar- stjórnar, bæjarfulltrúar, bæjar- stjóri. Ráðherrar, alþingismenn. Agætu samborgarar. í tilefni þessa merkisafntælis bæjarins okkar hefur stjórn Spari- sjóðsins í Keflavík falið mér að flytja hér bæjarfélaginu hinar bestu árnaðaróskir, íbúum bæjar- ins óskir um að hagur þeirra megi ætíð blómgast, bæði efnalega og ntenningarlega, og stjórnendum bæjarins í nútið og framtíð óskii um það, að þeint ntegi ávallt auðnast að ráða málefnum hans til farsælla lykta, og þakkir til þeirra sem gengnir eru. stjóra og forseta. Núverandi sparisjóðsstjórar hafa báðir átt sæti í bæjarstjórn og annar þeirra verið i forsæti hennar í 16 ár. Og loks er núverandi skrifstofustjóri sparisjóðsins 'einn bæjarfulltrú- anna. Starfssagan hefur því svo sann- arlega verið ærið samtvinnuð og böndin því orðið býsna sterk. Á stundunt sem þessari er ofur eðlilegt að margt leiti á hugann, og margs er að minnast. Hér hefur auðvitað margt þegar verið tíund- að og ntargt á eftir að segja enn á þessunt hátíðisdegi. Miglangarþó aðeins að stikla á stóru og nefna rétt í svip þær framkvæmdir, sem helst hafa sett svip á sveitarfélagið okkar og mannlífið, án frekari untfjöllunar þó, svona rétt til upp- rifjunar á þvi, sem íbúar þessa sveitarfélags, fyrst hrepps og síð- an kaupstaðar, hafa verið að fást við. í tíð hreppsins frá 1908 til 1949. Fyrsti vélbáturinn 1908. Barnaskólinn við Skólavegbyggð- ur og tekinn i notkun 1911. Kirkj- an 1914 - vígð 14. febrúar. Hafnar- gerð við Vatnsnes hófst árið 1932 á vegunt einstaklings, Óskars Halldórssonar. Sundlaugin 1939 að frumkvæði Ungmennafélags Keflavíkur. Vatns- og holræsa- gerð hófst 1942-1943. Rafmagn frá Sogsvirkjun 1945; fyrstu raf- ljósin þaðan tendruð hér 23. des. 1945. Sjúkrahúsið - hafinbygging 1944. Nýr barnaskóli, nú Myllu- Sameiginlegar rætur Þó að Keflavíkurbær fagni nú 40 ára afmæli bæjarréttinda, er saga Keflavíkur sent sjálfstæðs sveitarfélags rétt helmingi eldri, því með bréfi stjórnarráðsins dag- settu 15. júní 1908 er Keflavíkur- hreppur stofnaður. En það vill einmitt svo til, að Sparisjóðurinn í Keflavík var stofnaður aðeins hálfu ári fyrr, og það er ekki nokkur vafi á því, að þessar tvær meginstofnanir í sam- félagi okkar hér á þessu svæði eiga sameiginlegar rætur að rekja til þeirra hræringa i þjóðlífinu um síðustu aldamót, þegar ferskur andblær nýrra félagsmálahreyf- inga fer eldi bjartsýni og framfara- hugar um landið. Aldamótakyn- slóðin var að brjótast frant og hún var að hrista af þjóðinni klafa áþjánar og fátæktar. Í þessunt jarðvegi standa rætur hins nýja hrepps, Keflavíkurhrepps, og Sparisjóðsins. Frá öndverðu og fram á þennan dag hefur saga sveitaríélagsins okkar og saga Sparisjóðsins verið santofin sterk- um og traustum böndum, og söniu menn hafa markað hvað dýpstu sporin í þróunarsögu beggja. Eg nefni sem dæmi, að meðal þeirra, sem voru kjörnir í fyrstu hreppsnefndina í Keflavík, voru þeir merku menn Þorgrímur Þórðarson, héraðslæknir, en hann var einn aðalhvatamaður að stofn- un Sparisjóðsins og forstöðumað- ur hans fyrstu 26 árin, og Þor- steinn Þorsteinsson, kaupmaður og oddviti hreppsnefndarinnar um langt árabil, en hann sat í stjórn Sparisjóðsins í 18 ár. Guð- mundur Guðmundsson, fyrrum skólastjóri hér, sat í hreppsnefnd- inni frá 1929, að einu kjörtímabili frátöldu, og var oddviti hennar i 9 ár. Auk þess sat hann svo tvö kjör- tímabil i bæjarstjórn og var í for- sæti hennar urn skeið, en hann var sparísjóðsstjóri óslitið frá 1944 til 1969. Þeir Þorgríntur St. Eyjólfs- son, forstjóri, Alfreð Gíslason. bæjaríógeti, og Marteinn J. Árna- son, bóksali, hafa allir átt sæti í stjórn sparisjóðsins, Þorgríntur sent formaður í 33 ár, en þeir hafa allir átt sæti í bæjarstjórn unt lengri eða skemmri tíma, og Alfreð gegnt starfi oddvita, bæjar- . . . „Frá öndverðu og fram á þennan dag hefur saga sveitarfélagsinsokkar og Spari- sjóðsins verið samofin sterkum og traust- um böndum . . . “ samtvinnuð starfssaga bakkaskóli, - hafin bygging 1948. Fyrsti togarinn 1948. I tíð kaupstaðarins 1949 til þessa dags. Áframhaldandi upp- bygging í menntamálum; Lokið við barnaskólann og síðan hefur verið verulega byggt við hann tvisvar sinnum. Gagnfræðaskól- inn, iðnskólahúsið, semsíðarvarð stofninn í Fjölbrautaskólahúsinu nieð stækkun og nú nýgerðri við- byggingu. íþróttamannvirki: Malarvöllur, grasvöllur, æfinga- grasvöllur. Fullkomið íþróttahús með nýrri viðbyggingu. Aðstaða fyrir hestaíþróttir á Mánagrund. Golfvöllur í Leiru. Gatnakerfi bæjarins nánast allt lagt bundnu slitlagi á síðustu 35 árum. Hita- veita í öll hús. Sjúkrahúsið full- gert og starfsemi hafin, síðar við- bygging og heilsugæslustöð reist. Elliheimili og íbúðir fyrir aldraða. Dagvistunarstofnanir, dagheimili og leikvellir. Umhveríi og fegrun bæjarins. Hér mætti lengi halda áfram, en eg læt staðar numið. Við erum stolt af bænum okkar, sem hefur vaxið úr litlu þorpi, þó áreiðan- lega vinalegu, þar sem bjuggu 380 wanns þegar hreppurinn var stofnaður,! það að vera nú fimmti stærsti kaupstaður landsins með yfir 7300 íbúa. Allt fram til ársins 1930 eru Suðurnesjantenn aðeins 2,5% heildaríbúafjölda landsins en síð- an hafa þau umskipti orðið að nú erum við 6% þjóðarinnar. Á vetrarvertíðinni 1948 voru25 bátar gerðir út frá Keflavikur- hreppi, en 54 af Suðurnesjum, og öfluðu þeir 12. hluta allra útflutn- ingsverðmæta þjóðarinnar, eða 8,4%. Árið 1987 var aflaverðmæti Suðurnesjabáta 10,5% af heildar- útflutningsverðmætum þjóðar- innar. Eg get þó ekki lokið þessu stikli án þess að geta þess kafla ! sögu sveitarstjórnarmála hér á Suður- nesjum, sent ég tel tvlmælalaust hvað merkastan, en það er hið margháttaða og unt margt ein- staka samstarf, sent sveitarfélögin hér hafa borið gæfu til að ná sam- stöðu um, á fjölmörgum sviðum. Hafa þau þannig í santstarfi lyft mörgu Grettistakinu, íbúum svæðisins til ómælds hagræðis. Hér nefni ég aðeins Hitaveituna, Fjölbrautaskólann, sem flutti nám ungmenna og menntunina heim, og öldrunarmái. Bæjarstjórn Keflavíkur hefur átt ekki hvað sístan þátt ! þessu mikilvæga samstarfi, en það hefur verið að þróast og aukast nánast allan þann tíma, sem Keflavík hef- ur haft bæjarréttindi, þv! fyrsti vísirinn var við byggingu sjúkra- hússins. En hvað urn framti'ðina? Engu skal ég spá, en svæðið býr yfir ótæmandi möguleikum. Orku- ríkt svæði - við bestu ntögulegar santgöngur, á landi I útjaðri þétt- býlisins á höfuðborgarsvæðinu - á sjó við einhver gjöfulustu fiskimið hér við land - og I lofti við alþjóð- lega flugvöllinn, loftbrúna milli tveggja eða þriggja heima. En eins og ávallt, þá blður framtíðin si'ns ti'ma og sinna manna. Eins og ég hefi áður sagt, hafa sterk bönd og sömu rætur tengt sveitarfélagið okkar og þá stofn- un, sem ég mæli hér fyrir hönd, Sparisjóðinn I Keflavík. En þess utan hefur sveitarsjóður, fyrst hrepps- og si'ðan bæjarsjóður, ver- ið frá öndverðu I viðskiptunt við Sparisjóðinn, hinum ágætustu viðskiptum, þar sem gagnkvæmt traust hefur ávallt setið ! fyrir- rúmi. Fyrir öll þessi margslungnu samskipti og ánægjuleg viðskipti allt frá fyrstu ti'ð þakkar stjórn Sparisjóðsins nú á þessum hátíðis- degi, og sem vott þess þakklætis færir hún hér bænum að gjöf mál- verk eftir Eirlk Smith, málverk sem listamaðurinn málaði fyrirall löngu eða árið 1966, og við vonum að eigi eftir að prýða Listasafn Keflavíkur. En þv! varð málverk eftir þennan ágæta listantann fyrir valinu, að hann hefur um mörg ár komið mjög við sögu menningar og lista hér! bænum, en hann hef- ur verið ! fararbroddi þeirra sem leiðbeint hafa keflvísku listafólki I störfum þeirra I Baðstofunni. Hópur þeirra sýnir einmitt nú verk si'n i húsakynnum Fjöl- brautaskólans sem þátt ! þessari afmælishátíð. Og um leið og ég i'treka bestu árnaðaróskir til stjórnenda bæjar- ins nú og síðar, til íbúa bæjarins og til bæjarfélagsins, og bið þann sem öllu ræðuraðblessasamfélagokk- ar ! núti'ð og framtíð - og um leið og ég færi Keflvíkingum nn'nar persónulegu heillaóskir og þakkir fyrir ánægjuleg samskipti öll þau ár, sem ég tók þátt I stjórn mál- efna bæjarins, þá bið ég nú forseta bæjarstjórnar að koma hingað og veita þessari gjöf frá Sparisjóðn- um móttöku. VISSIR ÞÚ... ... að á haustmánuðum 1958, nánar tiltekið 5. september, var formlega stofnað Kaupmanna- félag Keflavíkur og nágrennis og voru stofnfélagar 21. Stjórn félagsins skipuðu Jóhann Pét- ursson, formaður, Ingimundur Jónsson, Sölvi Ólafsson, Kristín Guðmundsdóttir og Þórunn Ólafsdóttir. í ráði var hjá félag- inu að halda námskeið fyrir verslunarfólk í Keflavík. VISSIR ÞÚ... ... að hundahald var bannað í Keflavík árið 1958 samkvœmt 70. gr. lögreglusamþykktar Keflavíkur, nema með sérstöku leyfi lögreglustjórans í Kefla- vík. VISSIR ÞÚ... ... aðsumarið 19571étKeflavík- urbœr girða af bæjarlandið fyrir ágangi búfjár, sem til þess tíma hafði fengið að leika laus- um hala í húsgörðum almenn- ings og eyðilagt trjá- og blóma- reiti. . . . „Við erum stolt af bænum okkar, sem hefur vaxið úr litlu þorpi, þó áreiðanlega vinalegu, þar sem bjuggu 380 manns, í það að vera nú fimmti stærsti kaupstaður lands- ins með 7.300 íbúa . . . “
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.