Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Page 12

Víkurfréttir - 26.05.1989, Page 12
KEFLAVÍK 40 ÁRA \>iKun futUt Kapp er best með forsjá - en hlutirnir hafa bara gengið svona vel Þeir láta sér fátt fyrir brjósti brenna feðgarnir Jón W. Magnússon og Steinþór Jónsson, enda reka þeir tvö fjölskyldufyrirtæki: hótel og stærstu ofnasmiðju á landinu. Það voru ekki margir sem voru bjartsýnir á að hótelrekstur ætti eftir að bera sig hér i Keflavík. Því néru svartsýnismenn handabökin í von um frekari tíðindi þegar framtakssamir einstaklingar hófu hótelrekstur hér í bæ. En ekkert hefur heyrst um upp- gjöf frá þessum bæjardyrum og því lék okkur forvitni á að kynnast þess- um málum nánar. Lítil furða þó vel gangi Um þennan rekstur sjá þeir feðg- arnir Jón William Magnússon og Steinþór Jónsson. Vegna þessara skrifa varð ég að gera mér nokkrar ferðir á hótelið og alltaf var það sama sagan sem endurtók sig. Hótelgestir bönkuðu upp á skrifstofu þeirra feðga, buðu góðan dag, kvöddu eða þá að þeir tilkynntu komu sína eftir vel heppnaðan dag úti í íslenskri nátt- úrufegurð. Þá settust þeir feðgar oft inn í matsalinn, þar sem málin voru rædd við hótelgesti og áætlanirnæsta dags ræddar yfir kaffibolla. Einhver vandkvæði voru með nokkra menn að komast í Bláa lónið seinna þennan dag. Þeir voru ekki vissir hvar lónið væri, auk þess sem þeirvorubíllausir. En slíkir hlutir eru ekki vandkvæði á Hótel Keflavík. Framkvæmdastjór- inn fór með allan mannskapinn í skemmtireisu um Reykjanesið og svo fóru allir í Bláa lónið. Þegar svona hluti ber oft við augu þykir lítil furða þó að vel gangi. I hlý- legum og vinalegum innganginum vekja strax athygli ýmsar mynd- skreytingar. Þetta eru viðurkenning- ar frá ánægðum hótelgestum sem greinilega hafa kappkostað að gera viðurkenninguna sem veglegasta. Þarna eru viðurkenningar m.a. frá Royal Air Force í Englandi, ABC sjónvarpsstöðinni, einkaflugmönn- um Gorbatsjov auk fjölda skjala frá einkaaðilum, sem hafa sent línu í þakklætisskyni er heim var komið. Svo er ekkert óalgengt að póstkort berist hótelinu frá ánægðum gestum sem þakka sælar minningar frá Is- landi. Persónulegt viðmót starfs- fólks og góð þjónusta virðast því hafa skilað sér til fulls. Við hótelið er líka rekin bílaleiga. Fullkomið tölvukerfi, sem var útlitshannað af hótelstjóran- um, hefur nú verið selt til 10 hótela hér á Islandi. En þarna er ekki bara hótel. Undir hótelinu er stærsta ofnasmiðja lands- ins í fullum rekstri. Það hefur ekki borið mikið á þessum mönnum í dag- legu lífi Keflavíkurbæjar. Því var ákveðið að taka þá tali og grennslast frekar fyrir um hagi þeirra. Byrjaði 19 ára Fyrstan tók ég tali Steinþór Jóns- son, hótelstjóra og forstjóra ofna- smiðjunnar. Hann er aðeins 25 ára en hefur þó að mestu leyti tekið þátt í hinni miklu uppbyggingu síðustu ár. Hvencer hófust afskipti þín af rekstrinum? „Ég var 19 ára þegar ég byrjaði fyrst í rekstrinum en áður hafði ég unnið við ofnasmiðjuna. Það fyrsta sem ég fékk að glíma við var að undir- búa tölvukerfi fyrir ofnasmiðjuna og svo tók ég smám sman við á skrifstof- unni.“ Höföu menn vantrú á þér svona ungum i þessu? „Jú, ég var oft litinn hornauga en ég varð að standa og falla með mínum hugmyndum og þeim mun skemmti- legra var þegar hlutirnir gengu upp.“ En hvernig stendur ofnasmiðjan í dag? „Það er mikil lægð í byggingariðn- aðinum í dag en samt erum við að vinna á í markaðshlutfallinu. Við er- um með um 80-90 prósent af rúntyl markaðnum og um 34-45 prósent af panyl markaðnum. Þar kemur til að það eru margar ofnasmiðjur og inn- flytjendur. Nýlega fengum við svo framleiðsluleyfi á nýrri ofnagerð sem við munum kalla vor-yl. Vor-yl ofn- inn kemur í staðinn fyrir pan-ylofn- inn sem við framleiðum núna, auk þess munum við flytja inn vor-yl ofna fyrir þá sem vilja það frekar. Helsti kosturinn við innfluttu ofnana er sá að þeir koma full lakkaðir og inn- pakkaðir til landsins og auk þess eru þeir á góðu verði. Þetta er alveg dæmigert og sýnir skilningsleysi stjórnvalda gagnvart íslenskum iðn- aði, að fyrirtækin sjá sér hag í því að hefja innflutning því að hann er marg- falt áhættuminni en stór fyrirtækis- rekstur með marga starfsmenn.“ Gömul hugmynd Þá liggur beint við að spyrja hvers vegna þið fóruð út á svo gjörólíka braut að byggja hótel? „Við höfðum alltaf möguleika á þessu húsnæði. Hugmyndin var nokkuð gömul því að pabbi hafði lát- ið teikna húsið fyrir mörgum árum. Síðan fóru hjólin allt í einu að snúast og í febrúar 1986 var byrjað að byggja og í maí sama ár var hótelið tilbúið, þannig að byggingarhraðinn var mik- ill. Nýtingin var strax nokkuð góð og við höfum eignast marga fastagesti sem eru mjög ánægðir.“ Nú hafði þið tekið Hótel Kristínu á leigu, er það ekki tákn um að þið þurf- ið að fara að stcekka hótelið ykkar? „Hótel Kristína var tekið á leigu vegna þess að við vorum komnir í vandræði með pláss og það er full- bókað út leigusamningstímabilið. Á Hótel Kristínu erum við með 80 manna sal, þar sem við höfum haldið fermingarveislur og góðir möguleik- ar eru á ýmiskonar mannfagnaði þar og auk þess er þetta góður fundarsal- ur. En varðandi framtíðina hér er í bí- gerð að stækka hótelið um helming þegar fjármagn leyfir. Þá höfum við möguleika á stórri bílageymslu þar sem ofnasmiðjan er núna, en hún mun flytjast í nýtt húsnæði. Við ætl- um líka að bjóða upp á þjónustu eins og þreksal, sólböð, nuddstofu og ým- islegt annað. Við erum með pláss fyrir tvo stóra veitingasali. Samt verðum við að fara hægt í sakirnar, því að kapp er best með forsjá, eins og þar segir. Við gátum byggt hótelið upp og bætt það í rólegheitum og það að vera í eigin húsnæði í dag hefur mikið að segja.“ Ég þakkaði Steina fyrir fræðandi spjall enda mátti hann ekkert vera að svona hangsi. Handsmíðaðir ofnar Næst ætlaði ég að ná tali af Jóni William. Hann er einn af þessum mönnum sem brosir alltaf á móti til- verunni, sama hversu öfugsnúin hún kann að vera. Jón lætur mannlega þáttinn sig sérstaklega varða enda var hann að ræða við nokkra af fastagest- um hótelsins þegar mig bar að garði. Fyrr en varir er Jón búinn að gera mig að trúnaðarmanni sínum og fer að ræða málin af mikilli alvöru. Eftir nokkra stund sláum við á léttari strengi og ég spurði Jón hvað hefði fengið Ólafsfirðing eins og hann til að flytjast til Keflavíkur. „Það er aðeins eitt sem getur feng- ið Ólafsfirðing til að flytjast á brott og það er góð kona“ segir Jón og er greinilega skemmt. En hvernig tók Keflavík á móti Jóni?

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.