Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.05.1989, Qupperneq 28

Víkurfréttir - 26.05.1989, Qupperneq 28
\>iKun KEFLAVÍK 40 ÁRA forsætisráðherra, Steingrím Hermannsson, skera sér bita. Keflavíkurreví- an sló í gegn Leikfélag Keflavíkur flutti sér- staka Keflavíkurrevíu í tilefní afmælisins, er nefndist „Við kynntumst fyrst í Keflavík". Höfundur verksins er Ómar Jóhannsson, „keflvískur Garð- maður", en leikstjóri var Hulda Ólafsdóttir. Því er skemmst frá að segja að reví- an sló all hressilega í gegn og vanð að halda margar auka- sýningar í Félagsbíói. Alls sáu um 2000 manns revíuna. Afmælisbarn Keflavíkur Lítil dama fæddist á afmælis- dag Keflavíkur, 1. apríl 1989. Hún leit dagsins ljós í morg- unbýtið og var 54 cm á lengd og 15 merkur. Foreldramir koma úr sitt hvorri víkinni, móðirin, Hulda Örlygsdóttir, úr Njarðvík, en faðirinn, Elvar Gottskálksson, borinn og barnfæddur Keflvíkingur. Litla daman hefur verið skíið og heitir Eyrún Ósk. Eyrún Ósk er hér með mömmu sinni og eldri bróður, Agnari Má Gunnarssyni, á sjúkrahúsinu í Keflavík. {titu* mun jtitUt KEFLAVÍK 40 ÁRA WJerH C ; ”T0Y0TA EB Pfyryrylfl'r|r]c]iAi(-5 mætti að sjálfsögðu og lék á afmælistónleikum. Stjömurnar sýndu allar sínar bestu hliðar en 2000 mSHIlS mættu á afmælishátíð, sem haldin var í íþrótiahúsi Keflavíkur 1. apríl og hlýddu á 'auk þess komu ungir tónlistarmenn fram á sjónarsviðið við þetta tækifæri.Á myndinni hér að „ , ,. j > . i ij i-ís , v ,, ,, t olbreytta atmænsaagsKra. ofan ma sja þennan tnða hop saman kominn, popplandshðið ur Keflavik. KEFLAVIK 40 ARA Mj ög góð þátttaka var við hátíðarhöld í tilefni 40 ára af mælis Keflavíkurkaupstaðar í aprílmánuði. A afmælisdaginn var hátíðarfundur bæjarstjórnar á Flug Hóteli, en eftir hádegi var hátíðardagskrá í íþróttahúsi Keflavíkur. Þá var einnig af- hjúpaður minnisvarði um Stjána bláa, sem forseti Islands, frú Vigdís Finnbogadóttir, gerði. Síðarí afmælismánuðinum fóru fram tónleikar með skærustu stjörnum Keflavíkur og þá var m.a. listsýning 19 keflvískra listamanna, sem reyndar hófst hálfum mánuði fyrir afmælisdaginn. Einnig voru íþróttamót, kennaratónleikar og Leikfélag Keflavíkur flutti sérstaka Keflavíkurrevíu, „Við kynntumst fyrst í Keflavík", við frábærar undirtektir, og fleira og fleira. Allt lukkaðist þetta mjög vel og er óhætt að segja að það hafi verið mjög vel að afmælishaldinu staðið. Valtýr Guðjónsson annar heiðursborgari Keflavíkur Á hátíðarfundi bæjarstjómar Keflavíkur á Flug Hóteli að morgni 1. apríl var Valtýr Guðjónsson kjörinn heiðursborgari Kefla- víkur. Valtýr var m.a. fyrsti forseti bæjar- stjómar og bæjarstjóri á eftir Ragnari Guð- leifssyni, fyrsta bæjarstjóra og einnig heiðursborgara Keflavíkur. Góðar gjafir Bæjarfélaginu bámst margar gjafir í tilefni afmælisins. Á myndinni er Anna Margrét Guðmundsdóttir að taka við einni þeirra, úr hendi Guðmundar Áma Stefánssonar, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, sem færði Kefla- víkurbæ málverk að gjöf. Stjáni blái a.f hjúpa.ðu.r. Forseti íslands, frúVigdís Finnbogadóttir, afhjúpaði minnisvarða af Stjána bláa, sem Keflvíkingurinn Erlingur Jónsson gerði. Með henni á mynd- inni eru m.a. þeir Guðfinnur Sigurvinsson, bæjarstjóri, og Karl Steinar Guðnason, alþingismaður, en hann er dóttursonur Stjána bláa. Heillaði forsetann Já, hún Ólöf Einarsdótt- ir Júlíussonar ætlar að feta í fótspor föður síns, en hún vann hug og hjörtu afmælis- gesta er hún söng nokkur lög með pabba sínum og einnig ein. Forsetinn okkar, frú Vig- dís Finnbogadóttir, hreifst mjög af stelpunni og hún sést hér á tali við þau feðgin. Fallegur bær Keflavíkurbær hefur breyst mikið á 40 ámm. Mikið hefur verið unnið að fegrun og snyrtingu á þessum tíma.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.