Víkurfréttir - 02.08.1989, Qupperneq 1
4000 skot til höf-
uðs vargfugli
Tveir menn hér suður með
sjó hafa þann starfa um þess-
ar mundir að skjóta vargfugl
á vegum Veiðistjóra.
Veitti Samband sveitarfél-
aga á Suðurnesjum eitt
hundrað þúsund krónum til
verksins og að sögn veiði-
stjóra dugar það fyrir kaup-
unt á 4000 skotum.
Sagði hann að verkið gengi
vel en þó mætti eyða meiri
tíma og meiri mannskap við
þetta verkefni. Enn sem
koniið er liggur ekki ljóst
fyrir hvort öll upphæðin
verður notuð nú í sumar.
Verður ferðaskrifstofa
stofnuð fyrir Suðurnes?
Upp hafa komið hug-
myndir um stofnun sérstakr-
ar ferðaskrifstofu fyrir Suð-
urnes sem gæti haft aðsetur í
væntanlegri umferðarmið-
stöð í tengslum við aðal-
stöðvar SBK að Hafnargötu
12 í Keflavík.
Kemur til greina að sveit-
arfélögin á svæðinu verði að-
ilar að málinu, hótelin, SBK
og ýmsir aðrir hagsmunaað-
ilar í ferðamálum á svæðinu.
Frá skrifstofu þessari yrði
hægt að skipuleggja hótel-
nýtingu svo og leiðsögu um
svæðið þ.á.m. akstur með
SBK o.fl. í þá veru.
Stálu geisla-
diskum í Garði
V0GAR:
Róbert Pétursson gerir hér heiðarlega tilraun til að gefa þrastarunganum ánamaðk. Ljósm.: hbb.
Þrastarungi í heimsókn
Einn starfsmanna Víkur-
frétta fékk óvæntan gest í
síðustu viku, þegar þrastar-
ungi kom í heimsókn. Hafði
unginn flogið á eldhúsglugg-
ann og við það meitt sig á
væng. Var unganum bjargað
inn í hús, þar sem kettirnir í
götunni sýndu honum mik-
inn áhuga þar sem fuglinn
var undir glugganum.
Er þrastarunginn mjög
gæfur og trítlar fram og aftur
um axlirnar á heimilisfólk-
inu og hefur gaman af því að
sitja á kollinum á yngsta fjöl-
skyldumeðliminum.
„Eg er ekkert hræddur við
þrastarungann. Eg var svo-
lítið hræddur við að taka
hann upp fyrst en nú er allt í
lagi,“ sagði sá yngsti í fjöl-
skyldunni, Róbert Péturs-
son, og í þann mund trítlaði
þrösturinn af öxlinni og aft-
ur á bak. Er unginn allur að
braggast og borðar vel af
ánamöðkum sem týndir eru
sérstaklega handa honum.
Bjuggust „fóstrur" ungans
við því að hann gæti aftur
farið að fljúga í þessari viku.
31. tbl. 10. arg. Miðvikudagur
Landsbókasafn
Safnahúsinu
Hverfisgötu
Reykjavík
Stöðvaðir á Reykjanesbraut
Fisktorg slegið Arna
Gíslasyni á uppboði
Oft vill það nú verða þann-
ig að loknum dansleik, að
fólk safnast saman í heima-
húsi og heldur áfram að
skemmta sér. Það eru ekki
allir sem fá hljómsveitina af
dansleiknum í heimsókn
líka, en það átti sér stað í húsi
einu í Garði um þarsíðustu
helgi.
Var það ekki þannig að
hljómsveitin hafí komið til
að spila, heldur komu þeir í
ránsferð og höfðu á brott
með sér sautján geisladiska.
Þar sem húsráðandi hafði
vitneskju um hverjir þarna
voru á ferð hafði hann sam-
band við lögreglu og til-
kynnti um þjófnaðinn og á
hvernig ökutæki þjófarnir
voru á.
Skömmu síðar stöðvaði
lögreglan í Keflavík hljóm-
sveitarmeðlimina á Reykja-
nesbraut og fann geisladisk-
ana sautján í fórum þeirra.
Á nauðungaruppboði,
hinu þriðja og síðasta, er
fram fór á eign Fisktorgs,
Iðndal 10 í Vogum, í síðustu
viku var eignin slegin Árna
Gíslasyni, fyrrum skipstjóra
og útge’rðarmanni, m.a. í
Danmörku, á 24,3 milljónir
króna. Alls voru 16 kröfu-
hafar í eign þessa sem er hin
sama og Ismat h.f. átti hér í
eina tíð. Umræddur Arniátti
einnig hæsta boð er boðið var
upp í annað skipti.
Sama dag var húsnæði það
er hýsti hér í eina tíð veit-
ingastaðinn Brekkuna í
Keflavík slegið Sparisjóði
Hafnarfjarðar á 3,7 milljón-
ir og m.b. Fagranes GK 171
sleginn Landsbanka Islands
á 10 milljónir.
Þessu til viðbótar voru
seldar eignir í Grindavík, við
Fitjabraut í Njarðvík, Víkur-
braut í Keflavík, auk tveggja
íbúða í Keflavík.
Kaupir Njarðvíkurbær
Grænásblokkirnar?
Kaupir Njarðvíkurbær þessi hús til að gæta hagsmuna íbúanna sem þar búa? Ljósm.: epj.
í vetur fékk fjármálaráð-
herra heimild til að selja fjöl-
býlishúsin í Grænásnum,
sem manna í millunt eru
nefndar „Grænásblokk-
irnar". Hefur hann nú
ákveðið að nýta sér heimild
þessa. í framhaldi af því
skrifaði bæjarstjóri Njarð-
víkur, samkvæmt ósk bæjar-
ráðs, ráðherra bréf, þar sem
hann óskaði eftir vitneskju
um gang mála með það fyrir
augum að gæta hagsmuna
þeirra scnt þarna búaA
Hefur ráðherra nú lagt
fram fyrirspurn þess efnis
hvort Njarðvíkurbær vilji
kaupar eignir þessar af ríkis-
sjóði. Að sögn Odds Einars-
sonar, bæjarstjóra í Njarð-
vík, hafa átt sér stað óform-
legar samningaviðræður um
málið en ákvarðanir hafa
enn ekki verið teknar.