Víkurfréttir - 02.08.1989, Síða 2
mun
2 Miðvikudagur 2. ágúst 1989
Bifreið tjónvaldsins (t.v.) er trúlega ónýt, hin er cinnig nokkuð skcmmd.
Ljósm.: epj.
| jUtiU
Njarðvík:
Mjög harður árekstur
Mjög harður árekstur varð
milli tveggja bifreiða á
gatnamótum Víknavegar og
Borgarvegar í Njarðvík á
sunnudagskvöldið. Orsök
árekstursins er sú að bifreið
var ekið á mikilli ferð austur
Borgarveg og yfir gatnamót
Víknavegar, án þess aðsinna
aðalbrautarréttinum á síðar-
nefndu götunni. En norður
þá götu kom bifreið sem hin
lenti á.
Við áreksturinn slasaðist
ökumaður bifreiðarinnar er
kom Víknaveginn smávægi-
lega og vanfær kona, sem var
farþegi í framsæti bíls tjón-
valdsins, var í öryggisskyni
flutt á sjúkrahús en mun ekki
hafa meiðst alvarlega.
Báðir bílarnir skemmdust
mikið og trúlega er bifreið
tjónvaldsins ónýt.
Lokað vegna breytinga
Verslunin verður lokuð vegna breytingafrá
4. ágúst til 9. ágúst. Opnum fimmtudaginn
10. ágúst.
Hringbraut 92.
Dvalarheimili aldraðra
Suðurnesjum - Hlévangur
Óskað er eftir leiðbeinanda við föndur- og
félagsstörf frá 1. september nk. Reynsla
æskileg. Upplýsingar veitir forstöðumaður
félagsstarfs, Edda Karlsdóttir, í vinnusíma
27151 eða heimasíma 27123.
ÚTBOÐ
Hitaveita Suðurnesja óskar eftir til-
boðum í endureinangrun og frágang
álkápu á um 600m kafla Grindavík-
uræðar.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg36,
Njarðvík, gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu
Hitaveitu Suðurnesja, fimmtudaginn
10. ágúst kl. 11.00.
Hitaveita Suðurnesja
SUÐURNESJAMENN
Vegna sumarleyfa er afgreiðsla og ritstjórn
blaðsins í fríi til 14. ágúst. Næsta tölublað
kemur síðan út fimmtudaginn 17. ágúst.
VÍKURFRÉTTIR - frétta- og
auglýsingamiðill Suðurnesja
Svona var aðkoman er slökkviliðið kom á vettvang. Ljósm.: epj.
Eldur í ruslagámi
Slökkvilið Brunavarna
Suðurnesja og lögreglan í
Keflavík fengu á föstudags-
kvöldið tilkynningu um laus-
an eld í sorpgámi bak við bif-
reiðaverkstæði Keflavíkur-
bæjar við Vesturbraut í
Keflavík. Voru það starfs-
menn skemmtistaðarins
Glaumbergs sem veittu því
athygli að svartan reyk lagði
frá gáminum og létu um-
rædda aðila vita.
Hafnar eru framkvæmdir
við uppsetningu nýrra gang-
brautarljósa á Hafnargötu
gegnt Sjálfstæðishúsinu. Að
sögn Jóhanns Bergmanns,
bæjarverkfræðings, er hér
um nýjar útfærslur að ræða,
frábrugðnar þeim sem eru á
Hringbrautinni. Eru því nú
settir upp tveirstaurarhvoru
megin.
Þá er nú unnið að smíðum
á hraðaaðvörunarljósum
sem sett verða upp rétt norð-
an við Skiptingu, við inn-
aksturinn í Keflavík frá
Sandgerði og Garði. Verða
Gámurinn, sem eldurinn
kom upp í, er einn af þeim
gámum sem Keflavíkurbær
leigir af Njarðtaki svo bæjar-
búar geti losað sig við rusl á
hvaða tíma sólarhrings sem
er. Þó reykur hafi verið mik-
ill var eldurinn fremur lítill
og því slapp gámurinn frá
miklum skemmdum, nema
hvað málning sviðnaði.
Gekk slökkvistarfið mjög
skjótt.
ljós þessi, nánar tiltekið,
staðsett þar sem nú er hraða-
akstursmerkið. Mun ljósið
gefa til kynna ef bílar koma á
of miklum hraða inn í bæjar-
félagið.
Einnig er nú í smíðum veg-
vísir fyrir innakstur í bæinn
af Reykjanesbraut og niður
Aðalgötu. Þá eru í gangi á
vegum bæjarins ýmsar fram-
kvæmdir s.s. viðgerðir á
gangstéttum og rýmkun á
beygjuakrein af Hafnargötu
og inn á Vatnsnesveg við
Vatnsnestorg.
Þriggja bíla árekstur
Þriggja bíla árekstur varð
á föstudagskvöldið skömmu
fyrir miðnætti, á Hafnargötu
við Víkurbraut. Fyrr þann
sama dag eða skömmu fyrir
kl. 14 varð harður árekstur á
Reykjanesbraut, við
Ramma. Sá árekstur varð
milli tveggja ökutækja og
varð að flytja annað þeirra á
brott með dráttarbifreið.
Stálfélagið fær
bílflökin
Samningar hafa tekist
milli Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja og Stálfélagsins
við Hafnarfjörð um að síðar-
nefndi aðilinn taki að sér að
fjarlægja alla járnahaugana,
sem nú eru á lóð Sorpeyðing-
arstöðvarinnar við Hafna-
veg.
Er samið um fast verð á
hvert tonn og þykir það mjög
hagstætt fyrir stöðina. Mun
verkið hefjast fljótlega og
ljúka um mitt næsta ár þ.e. á
því sem nú er á lóðinni.
Jafnframt mun Stálfélagið
í framtiðinni taka við öllum
þeim bílflökum er falla til á
Suðurnesjum svo og öðru
járni.
messur - messur
Keflavíkurkirkja
Messa sunnudag kl. 11. Kirkju-
kórar Njarðvíkur syngja. Organ-
isti Gróa Hreinsdóttir.
Þorvaldur Karl Helgason
Ný gangbrautarljós
Sértilboð
-----'A.
Á ÚTIMÁLNINGU - Stóraukin málningarþjónusta.
BETT, BECKERS,
VITRETEX OG
HEMPELS
málningarvörur.
Litaval
Baldursgötu 14 - Sími 14737