Víkurfréttir - 02.08.1989, Blaðsíða 3
\)IKUR
jtitUt
Sjúkra-
bíllinn
formlega
afhentur
Sjúkrabifreið sú, sem ný-
lega bættist í ílota Rauða
kriss deildar á Suðurnesjum,
var á miðvikudag í síðustu
viku formlega afhent Bruna-
vörnum Suðurnesja til af-
nota. Kom það í hlut Gísla
Viðars Harðarsonar, for-
manns RK deildarinnar, að
afhenda bílinn, en við hon-
um tók Ingiþór Geirsson,
slökkviliðsstjóri.
Með tilkomu umræddrar
bifreiðar verður önnur seld
en engu að síður verða þrjár
sjúkrabifreiðar reknar frá
Brunavörnum Suðurnesja,
auk þess sem Grindvíkingar
reka eina bifreið. Þrátt fyrir
þennan fjölda hefur Grinda-
víkurbíllinn verið fenginn í
þjónustu BS í nokkur skipti
að undanförnu sökum anna
hjá hinum bílunum.
Frjálsar íþróttir:
Stóðu
sig með
sóma
Meistaramót Islands í frjáls-
um íþróttum 15-18 ára og 14
ára og yngri var haldið í
Reykjavík og á Selfossi dag-
ana 22.-23. júlí.
U.M.F.K. sendi að þessu
sinni 2 keppendurá 15-18 ára
mótið í Reykjavík og 16 á 14
ára og yngri mótið á Selfossi.
Stóðu þau sig með sóma en
mörg þeirra voru að keppa í
fyrsta skipti á stórmóti í frjáls-
um íþróttum.
Birgir Bragason, 16 ára,
náði mjög góðum árangri í sín-
um greinum og er mjög efni-
legur spretthlaupari. Hann
varð í 2. sæti í 100 m hlaupi,
11.5 sek., og í 200 m hlaupi,
23.5 sek. Hann keppti líka í
langstökki og hafnaði þar í 3.
sæti með 6,19 m.
Af yngri krökkunum stóð
Jóna Agústsdóttir, 14 ára, sig
einna best og náði hún m.a. 5.
sæti í langstökki, 4,64 m, og í
100 m hlaupi, 13,5 sek. Af
drengjunum_ má nefna árang-
ur Unnars Ola Þórssonar, 14
ára, í 100 m hlaupi. Þar varð
hann í 5. sæti á 12,6 sek. ogí 9.
sæti í 800 m hlaupi á 2.31,5
mín. Héðinn Valþórsson, 14
ára, náði 6. sæti í 800 m hlaupi,
2.29.5 mín. og 13. sæti i 100 m
hlaupi, 13,2 sek.
Þessir krakkar hafa æft í
sumar undir stjórn Lindu
Bjarkar Olafsdóttur.
Allmargir gestir voru viðstaddir afhendinguna. Ljósmyndir: epj.
Miðvikudagur 2. ágúst 1989 3
Sjúkrabíllinn formlega afhentur. Ingiþór Geirsson (t.v.)tekurvið
lyklum bílsins úr hendi Gísla Viðars Harðarsonar.
Fyrir verslunarmannahelgi..
FATADEILD:
ÚTSALAN
í fullum gangi
dömu-, herra og barnafatnaður
og skór á alla fjölskylduna.
Góðar vörur á frábæru verði.
Sneisafullt
kjötborð
Allt á grillið
Við spyrjum bara, hvað viltu?
Lamba-, nauta-, svína- eða
folaldakjöt, með eða án
mareneringar (2 gerðir)?
Grillaðir kjúklingar
Kjúklingahlutar á grillið
Svið - Tilbúnar samlokur og
fleira fljótlegt í ferðalagið.
15% AFSLATTUR AF
SÓLHÚSGÖGNUM
Ferðavörur í miklu úrvali á góðu verði.
• Svefnpokar • Gasgrill og kolagrill • Pottasett
• Kælibox • Tjöld • og margt fleira.
Mikið úrvai - Frábært verð.