Víkurfréttir - 02.08.1989, Page 7
viKim
iutm
Miðvikudagur 2. ágúst 1989 7
Eitt staersta verkefnið í malbikunarframkvæmdum í Garði var lagning nýs slitlags á Valbraut, en þar
var áður klæðning, sem leit út eins og eftir sprengjuárás. Myndin var tekin þegarfyrstu metrarnirvoru
lagðir. Ljósm.: hbb.
Miklar malbikunar-
framkvæmdir í Garði
Miklar malbikunarfram-
kvæmdir hafa undanfarið
staðið yfir í Garði. Er um að
ræða endurnýjun slitlags og
einnig viðgerðir á nýlega
lögðu malbiki.
Stærsta verkefnið var end-
urnýjun slitlags á Valbraut.
Þar hafði á sínum tíma verið
lögð klæðning en efnið í
henni var ónýtt og undirlag-
ið moldarkennt, þannig að
mikið var um holumyndanir.
Einnig hefur verið lagt mal-
bik á veginn upp að Utskála-
kirkju og einnig á hluta
Akurhúsavegar. Þá hefur
verið lagt á hluta Heiðar-
túns.
Meðal viðgerða á malbiki í
Garði verður lagað til í
kringum brunna en nokkrir
hafa fallið niður um nokkra
sentimetra og verður þeim
lyft upp og lagað til í kring.
Er áætlað að framkvæmdun-
um ljúki í annari viku ágúst-
mánaðar, að sögn Ellerts
Eiríkssonar, sveitarstjóra í
Garði.
Lögfræðistofa
Suðurnesja sf.
Við undirritaðir höfum opnað lögfræði-
skrifstofu að Hafnargötu 35, Keflavík,
undir nafninu Lögfræðistofa Suðurnesja s.f.
Sími skrifstofunnar er 14850.
Ásbjörn Jónsson hdl.
Jón G. Briem hdl.
Vélsmiðja 01. Olsen:
Greiðslu-
stöðvun
enn í gangi
Greiðslustöðvun sú sem
Vélsmiðja Ol. Olsen h.f. i
Njarðvík fékk í vetur í þrjá
mánuði var9. júníframlengd
um tvo mánuði til viðbótar.
Samkvæmt því rennur hún
út 9. ágúst nk.
Hefur tími þessi verið not-
aður til að bjarga fjárhagi
fyrirtækisins _ en hvort það
hefur tekist eða ekki liggur
ekki fýrir fyrr en um helgina,
samkvæmý heimildum
samkvæmt héimildum blaðs-
ins.
Grindavík:
Manna-
ferðir
í sund-
lauginni
Farið var inn í húsnæði
sundlaugarinnar í Grinda-
vík sl. sunnudagsnótt. Engar
skemmdir voru unnar en
unnið er að viðgérðum á hús-
næðinu og hefur það staðið
opið.
En þú færð meira en bensín- og olíuvörur á
Aðalstöðinni, því þar færðu einnig ýmsa auka-
og varahluti. Ekki má gleyma grillvörunum og
áhöldunum sem eru nauðsynleg hverja verslun-
armannahelgi. Allir fjölskyldumeðlimirnir geta
fundið eitthvað við sitt hæfí, því nýja verslunin er
yfirfull af fjölbreytilegu dóti fyrir unga sem aldna.
Ferðahelgin
byrjar á
Aðalstöðinni
Það leggur enginn af stað í
langt ferðalag nema að hafa
fyllt bensíntankinn og það er
vissara að athuga olíuna áður
en lagt er í’ann.
ÐALSTOÐIN
- fyrsti áfanginn um
verslunarm annahelgina!