Víkurfréttir - 02.08.1989, Page 8
8 Miðvikudagur 2. ágúst 1989
\)ÍKUR
04tU%
\)iKun
juíUt
Miðvikudagur 2. ágúst 1989
Eldhressir eldri borgarar se, sótt hafa sundnámskeið undanfarið, ásamt ieiðbeinandanum, Hauki Otte-
SCn. Ljósm.: hbb.
Aldraðir á sundnámskeiði
Keflavíkurbær hefur und-
anfarið staðið fyrir sund-
námskeiði fyrir eldri borgara
Keflavíkur. Hefur nám-
skeiðið verið vel sótt og hafa
framfarir verið miklar.
I síðustu viku lauk einu
slíku námskeiði en það sóttu
á annan tug eldri borgara.
Þegar blaðamaður fylgdist
með sundtíma í síðustu viku
voru oft sýnd mikil tilþrif og
árangur eldri borgara góður
miðað við það að margir hafa
ekki svo mikið sem rekið
stóru tána ofan í sundlaug í
fjöldamörg ár. Einn þátttak-
enda á námskeiðinu, sem er
endurgjaldslaust fyrir aldr-
aða, er Halldór Friðriksson.
Sagði hann þetta vera
skemmtilegan hóp á nám-
skeiðinu og að allir hefðu
gott af hreyfingu sem þess-
ari. Eftir að hafa rætt við
blaðamann skellti hann sér
upp á bakkann við djúpu
laugina og tók eina góða
dýfu, sem var ekkert mál.
Það skein ánægja úr öllum
andlitum og ljóst að eldri
borgararnir höfðu gaman af
þessu. Það er Haukur Otte-
sen sem hefur séð um
kennslu á námskeiðum þess-
um.
*1989 $
SÆTAFERÐIR
verða frá Sérleyfisbifreiðum Keflavíkur í
• HÚNAVER
• VESTMANN AEY JAR
• GALTALÆK
Boðið verður upp á „ferðapakka“ alla leið með far-
gjöldum og aðgöngumiða á hátíðarsvæði. Sala er
hafin. Nánari upplýsingar í afgreiðslu SBK í síma^
15551 og 15444.
S érleyfisbifreiðir
Keflavíkur
Tuskurnar á lofti
Það var mikið að gera hjá
eiginkonunt Kiwanisntanna
kvöld eitt í síðustu viku.
Tuskurnar voru á iofti og
þurfti að fara margar ferðir
eftir hreinu sápuvatni. Sina-
wik konurnar, eins og þær
kalla sig, höfðu tekið sig
sarnan og mætt með tuskur
og tilheyrandi í húsnæði
Þroskahjálpar í Keflavík.
Þar þrifu þær allt húsnæði
dag- og skammtímavistun-
arinnar hátt og lágt með því
að þvo veggi, lol't og gólf.
Einnig var þurrkað úr
gluggunt, hurðir þrifnar og
gluggatjöld þvegin og strauj-
uð. Gáfu Sinawik konurnar
alla sína vinnu við þessa stór-
framkvæmd oger þetta vel af
sér vikið hjá þeim félagskon-
Ein Kiwaniskvenna nteð tuskuna á lofti í húsnæði Þroskahjálp-
ar í siðustu viku. ' Ljósm.: bbb.
Sigurður Jóhannesson steig síðastur á
stokk þetta kvöldið og var eini keppandi
sem beitti fyrir sig hinni ástkæru íslensku
tungu.
Bergur Þór var eini keppandinn af Stór-
Hafnarfjarðarsvæðinu.
Stefán fór að dæmi Ferris Beuller’s og tók
gamlan Bítla rokkara - Shake it up, baby.
Þórður tók lag með Simply Red og sömg
það af mikilli innlifun. Mátti vart á milli
heyra hvort þar fór söngvari sveitarinnar
eða Þórður.
STORKOSTLEG TILÞRIF I STAPA
Dúett kvöldsins þeir Björn og Júlli (Rúnna
Júll) sungu Give me some loving, með
miklum tilþrifum.
Seinni umferð söngvakeppn-
innar í Stapa fór fram föstu-
dagskvöldið 21. júlí. Sex þátt-
takendur voru mættir til leiks,
þar af tveir sem sungu dúett.
Keppnin tókst með ágætum og
sýndu söngvararnir mikil tilþrif
á sviðinu. Við eigum augljós-
lega fullt af efnilegum popp-
stjörnum og þess mun örugg-
lega ekki langt að bíða að við
getum barið þær augum á helstu
útihátíðum landsins.
Úrslit söngvakeppninnar
fara fram síðar i þessum mán-
uði og verður spcnnandi að sjá
hver sigrar. Er ekki málið bara
að fjölmenna . . . ?
Texti og myndir:
GKV
Systurnar Jóhanna og Ragnheiður Margeirsdætur, með Ástu Sölva á milli sín. Þær stöllur mættu með
fyrstu mönnum á svæðið, en því miður - engin tríó leyfð í söngvakeppninni.
Myndlist í Vogum
Um síðustu helgi var listsýn-
ing haldin í Vogum, nánar til-
tekið í Vogaseli. Þar sýndu
verk sín myndlistarmennirnir
Aldís Hugbjört Matthíasdótt-
ir og Unnur Karlsdóttir og
einnig sýndi Auður Matthías-
dóttir (systir Aldísar) brot af
verkum sínum, en hún er
skrautskrifari.
Aldís Hugbjört sýndi 24
myndir, flestar vatnslitamynd-
ir. Myndir hennar voru marg-
ar hverjar mjög góðar og
greinilega unnar af mikilli
vandvirkni og hugmyndaríki.
Aldís myndi sjálfsagt teljast
,,naturalisti“, myndir hennar
eru lifandi og náttúran skipar
stóran sess í verkum hennar.
Aldís hóf sinn myndlistarferil
fyrir átta árum úti á Spáni en í
síðasta blaði slæddist inn sú
villa að hún hafi byrjað leik-
listarferil sinn á Spáni en að
sjálfsögðu átti það að vera
myndlistarferill.
Unnur Karlsdóttir útskrif-
aðist úrtextíldeildMyndlistar-
og handíðaskóla íslands árið
1988. Hún sýndi 27 verk á sýn-
ingunni. Unnur sýndi verk
unnin með vatnslitum að
mestu og tússi. MyndirUnnar
eru talsvert frábrugðnar
myndum Aldísar. Þær eru
margar hverjar formsterkar og
litsterkar án þess þó að verða
æpandi hvassar. Sumar mynd-
anna eru eins og litlar fantasí-
ur sem gaman er að horfa á.
Unnur átti einnig nokkrar
bráðfallegar landslagsmyndir
á sýningunni.
Þriðji listamaðurinn sem
sýndi verk sín í Vogaseli var
svo skrautritarinn Auður
Matthíasdóttir. Auður sýndi
aðeins örfá sýnishorn af vinnu
sinni en þessi sýnishorn voru
þó næg til þess að sanna hversu
stórkostlegur listamaður hún
er.
Þessi sýning var á heildina
litið mjög góð og er ánægjulegt
að vita til þess að svo margir
góðir listamenn búi á jafn fá-
mennum stað sem Vogarnir
erú, því fyrir utan þessar þrjár
sem komu, sáu og sigruðu, þá
vitum við um fleiri sem iðka
list sína og gera góða hluti.
gub.
Mikil ölvun I
heimahúsum
Lögreglan í Keflavík
þurfti urn helgina að hafa
mikil afskipti af ölvun í
heimahúsum í umdæmisínu,
sem nær yfir öll Suðurnes að
Grindavík og Keflavíkur-
flugvelli undanskildum.
Þá voru þrír ökumenn
teknir fyrir að hafa Bakkus
með í ferðum á þessu sama
svæði.
Landsmót í golfi í Leiru
HÓFST MÁNUDAGINN 31. JÚLÍ OG STENDUR TIL LAUGARDAGSINS 5. ÁGÚST:
Tekst Sigurði Sig-
urðssyni að verja
íslandsmeistara-
titilinn á heima-
veili?
25 ÁRA
SUÐURNESJAMENN!
Fjölmennum í Leiruna og fylgjumst með öll-
um bestu kylfingum landsins etja kappi á
Hólmsvelli. Allir velkomnir, enginn aðgangs-
eyrir. Veitingasala í golfskálanum frá kl. 06
til miðnættis.
Hvað gerir Karen
Sævarsdóttir. Verð-
ur hún íslands-
meistari kvenna í
fyrsta skipti?
25ÁRA