Víkurfréttir - 02.08.1989, Qupperneq 10
VÍKUR
10 Miðvikudagur 2. ágúst 1989
ioi rfa
mi iki ð á
sjonvarp
úú
- segir Sigurður Jónsson, sem hlaut
eftirsótt verðlaun fyrir störf sín að
sjónvarpsmálum hjá Bandaríkjaher
„Þctta kom mér auðvitað
mjög á óvart. I fyrstu hélt ég að
þeir væru að grínast, þegar yflr-
menn mínir tilkynntu mér að
mér hefði hlotnast þessi viður-
kenning," sagði Sigurður Jóns-
son, tæknilegur framkvæmda-
stjóri útvarps- og sjónvarps-
stöðvar varnarliðsins, en hann
hlaut nýlega hin eftirsóttu Tom
Lewis verðlaun, sem veitt eru
árlega samkvæmt útnefningu
samtaka bandarískra útvarps-
og sjónvarpsstöðva fyrir störf
að útvarps- og sjónvarpsmálum
á vegum bandaríska hersins.
„Sigurður Jónsson er sann-
arlega vel að þessum eftirsóttu
verðlaunum kominn. Þau bera
glöggt vitni hæfileikum og
skyldurækni þeirra fjölmörgu
Islendinga sem starfa hjá varn-
arliðinu. Ég er mjög stoltur af
þessu starfsfólki sem mér veit-
ist sú ánægja að starfa með. Ef
ekki nyti skyldurækni, þekk-
ingar og reynslu þessa fólks
gæti varnarliðinu sannarlega
reynst erfitt að rækja skyldur
sínar," sagði Thomas F. Hall,
flotaforingi á Keflavíkurflug-
velli, í tilefni af verðlaunaveit-
ingunni.
Valinn úr 8000
manna hópi
Sigurður var valinn úr hópi
8000 starfsmanna og her-
manna úr öllum deildum
Bandaríkjahers og veitti hann
verðlaunagripnum viðtöku við
hátíðlega athöfn á ársfundi
allra yfirmanna útvarps- og
sjónvarpsstöðva hersins í Los
Angeles nýlega. Verðlaunin
hafa alla tíð verið veitt her-
mönnum nema í fyrsta skipti
sem þau voru veitt og svo nú,
þegar Sigurður hlaut þau.
Tilviljun
„Þetta var nú fyrir algera til-
viljun að ég fór að vinna hjá
varnarliðinu. Ég kom heim til
íslands eftir nám í Bandaríkj-
unum og ætlaði bara að hafa
viðkomu hér í 3-4 mánuði en
þá kynntist ég konuefninu
Sigurður Jónsson með verðlaunin
mínu, þannig að áætlanir mín-
ar breyttust. Ég vissi af þess-
ari stöð hér á vellinum og fór
upp eftir til að skoða hana en
sú skoðunarferð hefur ekki
endað ennþá, því hér er ég
enn,“ sagði Sigurður, sem var
fyrsti útlendingurinn til að
hefja störf við útvarps- og
sjónvarpskerfi Bandaríkja-
hers, en það var árið 1959.
Jafnframt störfum sínum sem
tæknilegur framkvæmdastjóri
á Islandi hefur hann verið sér-
stakur tæknilegur ráðgjafi
bandaríska flotans um rekstur
útvarps- og sjónvarpsstöðva
hans í Evrópu, á Nýfundna-
landi og Bermúdaeyjum, alls
tíu stöðva. Sigurður hefur
fengið margar viðurkenningar
á 30 ára starfsferli sínum hjá
hernum fyrir hugmyndir sínar
varðandi tæknilega þróun í
sjónvarpsmálum. Hann hefur
undanfarin 3 ár ferðast mikið á
milli sjónvarpsstöðva Banda-
ríkjahers víðsvegar um heim-
eftirsóttu sem hann hlaut.
inn og „tekið þær út“ og síðan
komið með tillögur til úrbóta.
Lifa sig inn
í sjónvarpið
Sjónvarpsstöð varnarliðsins
sendir út á 6 rásum allan sólar-
hringinn, þar á meðal Stöð 2
þegar hún er ótrufluð. Þá
sendir útvarpið út á þremur
rásum. „Bandaríkjamenn
horfa ótrúlega mikið á sjórn
varp og lifa sig inn í þetta. í
flestum tilfellum eru fleiri en
eitt og jafnvel tvö sjónvörp á
heimili og það er kveikt á þeim
strax á morgnana og eru í
gangi eins og útvarpið hjá okk-
ur Islendingum.“
Sjónvarpsstöð varnarliðsins
hér þykir sú besta innan
bandaríska hersins, er með
eigin dagskrárgerð og fréttir
sem tengjast Keflavíkurstöð-
inni og hernum í heild. „Við
erum ekki endilega á höttun-
um eftir „heitum“ fréttum
heldur sinnum við meira því
sem er á seyði hverju sinni. Þá
til dæmis situr flotaforinginn
fyrir svörum einu sinni í mán-
uði og þá geta varnarliðsmenn
hringt og spurt um hvað sem
er,“ sagði Sigurður.
Gífurleg óánægja
Við biðjum Sigurð um að
rifja upp tímann þegar stór
hluti íslendinga sá ameríska
sjónvarpið. „Þetta er eitt það
eftirminnilegasta á starfsferli
mínum, þegar skrúfað var
fyrir kanasjónvarpið. Útsend-
ingar náðust vel um allt Stór-
Reykjavíkursvæðið en einnig
upp í Borgarfjörð og til Vest-
jutUt
Ljósm.: pket.
mannaeyja.Það varð gífurleg
óánægja þegar það var klippt á
þetta, sem varð endanlega árið
1974 en þremur árum áður var
byrjað að minnka útsending-
arstyrkinn."
Aðspurður um hvort svo-
kallaðir „sextíumenningar"
hafi haft þau áhrif að lokað var
á kanasjónvarpið segir Sigurð-
ur að aðgerðir þeirra hafi haft
þau áhrif að þetta gerðist fyrr,
en engu að síður hefði þetta
gerst þótt þeir hafi ekki komið
til. „Það er vegna þess að við
fáum allt dagskrárefni gefins
eða á mjög lágu verði. Seljend-
ur þess vilja þess vegna ekki að
það nái út fyrir herstöðina, því
það getur skemmt fyrir sölu á
efninu, eins og í okkar tilfelli
til íslensku stöðvanna." Þá eru
ekki leyfðar útsendingar á
auglýsingum í kanasjónvarp-
inu og varnarliðsmenn sakna
þess, því þá ná þeir ekki að
fylgjast nógu vel með á hinum
ýmsu sviðum neytendamark-
aðarins.
Líkar vel
Auk Sigurðar hefur annar
keflvískur starfsmaður unnið í
sjónvarpsstöð varnarliðsins í
30 ár, en það er Teitur Al-
bertsson, en hann byrjaði
þar 6 mánuðum seinna en Sig-
urður. Þeir lærðu iðnina sam-
an í Bandaríkjunum og hafa
starfað saman síðan. En hefur
Sigurði aldrei dottið í hug
að fara að starfa fyrir sjón-
varpsstöðvar á Islandi? „Nei,
ég get ekki sagt það. Mér líkar
vel hérna og er ánægður þar
sem ég er,“ sagði Sigurður að
lokum.
Húseigendur athugið
Tökum að okkur sprunguviðgerðir og há-
þrýstiþvott. Notum málningaruppleysi ef
óskað er, einnig sílanhúðun. Notum aðeins
viðurkennd múrviðgerðarefni. Upplýsing-
ar í síma 68165 og 68486 á kvöldin.