Víkurfréttir - 02.08.1989, Side 14
VÍKUR
14 Miðvikudagur 2. ágúst 1989
Víðismenn aftur á skrið
Víðismenn eru aftur
komnir á skrið eftir tvo tap-
leiki. Þeir unnu Vestmanna-
eyinga á fimmtudagskvöldið
með tveimur mörkum gegn
einu.
Heimamenn náðu fyrst
forystunni í leiknum en
Björn Vilhelmsson jafnaði
með löngu skoti utan af velli.
Víðismenn náðu síðan for-
ystunni rétt fyrir leikhlé,
þegar Óskar Ingimundarson
nýtti sér mistök markvarðar
Eyjamanna eftir auka-
spyrnu. Við sigurinn skutust
Víðismenn í annað sæti ann-
arar deildar.
Vilberg Þorvaldsson með 250
leiki fyrir Víði.
Reynir tapaði
Reynismenn urðu að bíta í
það súra epli að tapa fyrir
Hveragerði unt sl. helgi.
Fóru leikar 3:2 fyrir Hvera-
gerði. Var þetta hörkuleikur
og hefðu Reynismenn getað
marið jafntefli með smá
heppni. Mörk þeirra skor-
uðu Ævar Finnsson og
Valdimar Júlíusson.
Vilberg með 250 leiki
og Grétar með 200
Að loknum leik Víðis og
Leifturs á mánudag var
tveimur leikmönnum Víðis
aibentur blómvöndur. Voru
það Vilberg Þorvaldsson,
sem var að spila sinn 250.
leik, og Grétar Einarsson,
sem var að ljúka sínum 200.
leik. Leikurinn við Leiftur
endaði meðsigri Víðismanna
1:0.
Sú regla hefur verið við-
höfð á heimaleikjum Víðis í
sumar að maður leiksins er
kjörinn. Að launum hlýtur
hann málsverð í boði Sjávar-
gullsins í Keflavík. Það var
Sævar Leifsson, KR-ingur-
inn í Víðisliðinu, sem var
boðið í mat að loknum síð-
asta heimaleik, gegn Leiftri.
Grindvíkingar sigruðu
Grindvíkingar báru sigur-
orð af Gróttu í deildinni um
helgina. Skoruðu Grindvík-
ingar tvö mörk gegn engu
Gróttumanna. Voru það
Þórarinn Ólafsson og
Hjálmtýr Hallgrímsson sem
gerðu mörk Grindvíking-
annai
Kanarisi til Keflvíkinga
Nú liggur Ijóst fyrir að
Kellvíkingar munu mæta til
leiks í úrvalsdeildinni í haust
með bandarískan risa í lið-
inu. Er hinn nýi leikmaður
frá Los Angeles og heitir
John Weargason, 23ja ára
varnarleikmaður sem er2.12
metrar á hæð.
Keflvíkingar munu mæta
með sterkt lið til leiks í deild-
inni í haust og ættu að geta
ráðið lögum og lofum í loft-
inu með risa eins og Wearga-
son í liðinu.
„Fólk er
farið að
æfa
öðruvísi
- segir Berta
Guðjónsdóttir, erobikk-
leiðbeinandi, nýkomin
af námskeiði erlendis
„Þetta var stórskemmtileg
ferð og þar kynntumst við öllu
frægasta fóikinu í þessum
bransa og æfðum með því og
borðuðum. Einnig lærðum við
allt það nýjasta,“ sagð Berta
Guðjónsdóttir, erobikkleið-
beinandi, í samtali við blaðið,
en hún er nýlega komin frá
Kaliforníu í Bandaríkjunum
þar sem hún, ásamt Huldu
Hér eru þær Berta og Hulda Lárusdóttir með einum heimsfrægum,
Pier Gaspari, sem m.a. hefur orðið „Herra Olympia".
Lárusdóttur, var á námskeiði
fyrir erobikkleiðbeinendur.
„Það var stórkostlegt að sjá
hvernig strákarnir, sem eru
að byggja sig upp, borðuðu til
dæmis tólf egg, fyrir utan allt
Og hér er Berta fyrir framan æEingasvæði þar sem líkamsræktar-
fólk æfir úti við.
hitt. Maður gat ekki annað en
starað.“
-Hvað er það nýjasta í þjálf-
uninni?
„Nýjustu æfingarnar eru
þannig að þú æfir hægt og
hratt til skiptis og færð út úr
því mikla brennslu í lengri
tíma. Einnig var mikið talað
um „Crosstraining", þ.e.
þrekæfingar, erobikk, skokk,
sund og hjólreiðar. Fólk er far-
ið að æfa öðruvísi og þróunin
virðist vera sú að fólki finnist
gólfæfingar leiðinlegar, þann-
ig að núna er reynt að gera þær
flestar standandi, eða skjóta
þeim inn á milli. Fólk sem
stundar líkamsrækt er einnig
farið að æfa öðruvísi. Það teyg-
ir meira og notar erobikk
með,“ sagði Berta Guðjóns-
dóttir að endingu, en hún mun
opna erobikkstudio seinna í
mánuðinum.
Tekst Sigga að verja titilinn?
„Ég stefni að því að verja titilinn. Ég er í góðri æfingu og völlurinn
er í mjög góðu ásigkomulagi. Þetta verður þó án efa mjög erfitt og
ég á alveg eins von á því að það verði margir sem muni blanda sér í
baráttuna um titilinn", sagði Sigurður Sigurðsson, Islandsmeistari
í golfi, en í morgun hófu meistaraflokkar og 1. flokkar karla og
kvenna þátttöku í 48. Landsmóti í golfi á Hólmsvelli í Leiru. Mót-
inu lýkur á laugardag og má þá búast við miklum fjölda fólks í
Leirunni að fylgjast með þeim bestu etja kappi.
Nýtt líkamsræktarstúdíó að opna
í Færseth-höllinni:
Heitur pottur
ð svölunum!
„Það vcrður stórkostlegt að
fara í svona góða aðstöðu. Við
erum á fullu að vinna í hús-
næðinu núna og stefnum að
því aðopna í lok mánaðarins“,
sagði GuðmundurSigurðsson,
eða Brói, en hann og kona
hans, Anna Lea Björnsdóttir
munu opna nýtt líkamsrækt-
arstúdíó á 3. og 4. hæð í
Færseth-höllinni, Hafnargötu
23 í Keílavík, innan nokkurra
vikna.
Guðmundur sagði að það
yrðu tveir salir, hvor um 130
ferm. ásamt búningsklefum og
sturtuaðstöðu. Þá væri hug-
myndin að setja upp heitan
pott úti á svölunum og gufu-
bað í lyftuopinu. „Húsnæðið
býður upp á ýmsa möguleika
og er mjög hentugt. Við hlökk-
um til að byrja“, sagði Guð-
mundur, sem ásamt konu
sinni Önnu Leu, eru nýkomin
af erobikknámskeiðum í
Bandaríkjunum.
Guðmundur (Brói) Sigurðsson hefur lítið hlaupið eða hoppað að
undanförnu. Hann er að gera klárt fyrir opnun líkamsræktarstöðv-
ar í Færseth-höllinni, og þarf að kunna réttu handtökin á
ntálningarrúllu og fleiru.