Víkurfréttir - 02.08.1989, Síða 15
viKim
\ium*
Miðvikudagur 2. ágúst 1989 15
„Ekkert gaman að
hirða félaga sína“
- segir Jóhann Arnarson, Garðmaður, sem fæst við
löggæslustörf á Eskifirði um helgar
Hann var staddur ofan í
mjölþurrkara í bræðslunni á
Eskifirði þegar blaðamaður
Víkurfrétta hitti hann að máli
nýverið. Sá er hér um ræðir
heitir Jóhann Arnarson, tvítug-
ur Garðmaður (og fyrrum Kefl-
víkingur) sem fluttist til Eski-
fjarðar á síðasta ári. Þar starf- j
ar hann í bræðslunni hjá Alla
ríka á virkum dögum en hefur
fengist við löggæslustörf um
helgar.
Ekkert er brætt í verksmiðj-
unni yfir sumartímann og þá
fer fram mikil viðhaldsvinna á
vélum og húsnæði. „Sumarið
er raunar eini tími ársins, þeg-
Jóhannes Arnarson, starfsmaður hjá Alla ríka, í lögreglunni og
fæst við markvörslu hjá knattspyrnuliði staðarins. A bak við sést
hluti byggðarinnar á Eskifirði. Ljósm.: hbb.
ar fólk getur dregið andann
hér í firðinum því aðra mánuði
ársins liggur mikill reykmökk-
ur ofan í öllum firðinum.“
-Eg frétti að þú fengist aðeins
við löggœslustörf?
„Já, ég hef aðeins verið að
fást við þetta um helgar. Eg hef
voðalega lítið gaman af því og
raunar er ekkert skemmtilegt
að hirða félaga sína fulla, þó
svo maður eigi ekki að hugsa
um það hverja maður er að
handtaka,“ sagði Jóhann.
Fyrir þá sem þekkja Jóhann
hér fyrir sunnan, þá fæst hann
við markvörslu hjá knatt-
spyrnuliði staðarins og hefur
staðið sig með sóma.
„Eg er búinn að fá á mig
rúmlega tuttugu mörk það
sem af er þessu tímabili, en við
höfum bara skorað fjögur.
Vörnin hjá okkur er svolítið
mikið úti að aka og ég er yfír-
leitt í einvígi við sóknarmenn
mótherjanna," sagði Jóhann
er hann var spurður um gengi
liðsins. „Eg kem örugglega
suður í knattspyrnuna næsta
sumar, því ég ætla ekki að
verða mér til skammar eitt
sumarið enn,“ sagði Jóhann
Arnarson að lokum.
JÁRN & SKIP:
Góð
þjónusta
verslunarstjórans
í síðustu viku kynntist ég
mjög góðri þjónustu af hálfu
verslunarstjóra Járn og skip i
Kcflavík. Af því tilefni skrifa
ég þetta greinarkorn.
Vandamál mitt var að fyrr í
vetur hafði verið keypt fyrir
mig Pinotex Supcrtec í
ákveðnum lit til að bera á
grindverk við húsið hjá mér.
Er veður fór að verða gott var
drifið í því að bera umrætt efni
á og þá kom í ljós að það sem
keypt hafði verið dugði ekki.
Fór ég því í Jám og skip og
hugðist kaupa það sem á vant-
aði. Afgreiðslumaðurinn sem
fyrir svörum varð sagði við-
komandi lit ófáanlegan og því
yrði ég að breyta um lit á því
sem eftir væri.
Þetta þótti mér hálf súrt í
broti og hafði því samband við
verslunarstjórann, Magnús
Brimar Jóhannsson. Bauðst
hann þegar til að útvega mér
viðkomandi lit í því magni sem
ég teldi mig þurfa og mætti ég
koma í búðina aftur rétt fyrir
lokun degi síðar. Það gerði ég
og þá kom svo sannarlega i
ljós að Magnús Brimar stóð
við orð sín og heim fór ég mjög
ánægður með góða þjónustu.
Með þökk fyrir.
Ánægður viðskiptavinur.
Blaðburðarfólk
óskast til sumarafleysingar,
sjávar megin við Víknaveg
í Njarðvík.
VÍKURFRÉTTIR
GRINDVIKINGAR
BYRJIÐ VERSLUNARMANNAHELGINA HJÁ OKKUR
Lambakjötið ( ídýra
Kjúklingar kr, 559 kg
- Tveir
í poka kr. 546 kg.
Endur kr. 679 kg
Unghænur kr. 249 kg
STÚRKOSTLEG TILBOÐ
í KAUPFÉLAGINU:
Toffo pops kex, 25% afsl.
Co-Op heilveitkex m/súkkulaði
4 tegundir, 20% afsl.
Happy Quick súkkulaðidrykkur
3 gerðir, 15% afsláttur.
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA
GRINDAVIK
Víkurbraut 17 - Sími 68162
Sirkken kaffi, 3 gerðir
500 g pk., 20% afsl.
Einnig margt annað á tilboði.
XBott úrval af steikum
á grillið!.