Víkurfréttir - 02.08.1989, Blaðsíða 16
V/KUR
ftitíií
Miðvikudagur 2. ágúst 1989
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15 - Símar 14717, 15717.
Frá undirritun samningsins milli íslenskra stjórnvalda og Vatnsveitu Suðurnesja. F.v.: Jón Baldvin
Hannibalsson, Oddur Einarsson, Eðvald Bóasson, Guðfinnur Sigurvinsson og Hannes Einarsson.
Ljósm.: hbb.
VATNSVEITA SUÐURNESJA:
Tímamótasamningur undirritaður
Grindavík:
Nætur-
gestum
vísað úr
lóninu
Lögreglan í Grindavík
þurfti þrívegis að hafa af-
skipti af næturgestum sem
voru í leyfisleysi í Bláa lón-
inu um síðustu helgi. Var
fólkið búið að koma sér
notalega fyrir í lóninu þegar
lögreglan mætti á staðinn og
vísaði því upp úr, en óheimilt
er að stunda þar böð utan
lokunartíma.
Virðast vinsældir nætur-
baða koma í bylgjum og er
ein slík að ganga yfir þessa
dagana. Var um utansvæðis-
fólk að ræða í öllum tilvik-
urn.
Benedikt
skatta-
kóngur
Suðurnesja
Benedikt Stgurðsson, apó-
tekari í Keflavík, er skatta-
kóngur Suðurnesja í ár, með
6.520 þús. kr. í heildarskatta.
Jafnframt er hann annar
hæsti einstaklingurinn í
Reykjanesumdæmi. Næsti
Suðurnesjamaðurinn í hópi
efstu einstaklinga er Karl
Njálsson, Garði, en hann er
jafnframt í 8. sæti yfir um-
dæmið, með 4.212 þús. kr.
Af lögaðilum eru Isl. aðal-
verktakar hæstir yfir um-
dæmið allt, með 516 milljón-
ir króna. Varnarliðið er i 3.
sæti með43 milljónir, Dverg-
hamrar í 8. sæti með 19 mill-
jónir, Félag vatnsvirkja h.f.,
Höfnum, með 16 milljór.ir
og að lokum verma Málara-
verktakar Kefiavíkur 10.
sætiðv með 15 milljónir
króna.
Tímamótasamningur var
undirritaður milli íslenskra
stjórnvalda og Vatnsveitu
Suðurnesja á Flug Hótcli sl.
föstudag. Með samningnum
er Vatnsveitu Suðurnesja fal-
ið að leggja nýja vatnsveitu og
annast rekstur hennar. Sam-
kvæmt samningum milli ís-
lenskra stjórnvalda og banda-
rískra munu þau bandarísku
kosta gerð nýrrar vatnsveitu á
Suðurnesjum og greiða til
þess 465 milljónir króna (8
millj. dollara). Einnig leggja
bandarísk stjórnvöld fram 58
milljónir króna (1 millj. doll-
ara) til þjálfunar og byrjunar-
rekstrarkostnaðar, þegar
vatnsveitan tekur til starfa.
Það var Jón Baldvin
Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, sem undirritaði samn-
inginn fyrir hönd íslcnskra
stjórnvalda en þeir Oddur
Einarsson, Eðvald Bóasson,
Guðfinnur Sigurvinsson og
Hannes Einarsson fyrir hönd
Vatnsveitu Suðurnesja sf.
Nánar er fjallað um þennan
tímamótasamning og Vatns-
veitu Suðurnesja í viðtali við
Odd Einarsson og Hannes
Einarsson á blaðsíðu 12 í
blaðinu í dag.
Sólveig
ráðin yfir-
Ijósmóðir
Fæðingar-
heimilisins
Sólveig Þórðardóttir,
Njarðvík, sem verið hefur
deildarstjóri fæðingar- og
kvensjúkdómadeildar
Sjúkrahúss Kefiavíkurlækn-
ishéraðs, hefur nú verið ráðin
yfirljósmóðir Fæðingar-
heimilis Reykjavíkur. Var
hún valin úrhópi lOumsækj-
enda um stöðu þessa.
Ekki er Ijóst hvenær Sól-
veig tekur til starfa, en heim-
ilið er lokað vegna sumar-
leyfa til 4. september og frá-
farandi yfirljósmóðir hefur
þegar látið af störfum eftir 30
ára starfstíma.
Nú tökum
við viku
sumarfrí.
Víkurfréttir
Væri ekki fínt að nota alla
þessa golfara til að
skjóta niður vargfuglinn?
Formannsfrúin sló fyrsta höggið
María Jónsdóttir, formannsfrúin í Gollklúbbi Suðurnesja, sló fyrsta höggið á 48. Landsmóti í golfi,
sem hófst kl. 8 á mánudagsmorgun á Hólmsvelli í Leiru. Þetta er í fysrta sinn sem kona tekur fyrsta
höggið á Landsmóti í golfi. Metþátttaka er á mótinu, 307 þátttakendur frá flet öllum landshlutum. í
dag, miðvikudag, hófst keppni í meistaraflokkum og 1. flokkum karla og kvenna. Mótinu lýkurá laug-
ardag. Ljósm.: pket.
—a
Jlllii'i _ m t i
TRÉ s/ ?
LOKAÐ VEGNA SUMARLEYFA
frá og með 3. ágúst til 8., ágúst, trésmiðja og verslun.
TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR, Iðavöllum 6-7, Keflavík.