Víkurfréttir - 07.09.1989, Side 13
Fréttir
Aðsóknarmet
í Lðninu
Nýtt met í aðsókn að Bláa
lóninu var slegið um þarsíð-
ustu helgi er hátt í 1200
manns keyptu sig inn á
svæðið. Að sögn Guðmund-
ar Guðbjörnssonar er erfitt
að finna nákvæmlega út hve
margir komu sökum þess að
krakkar borga ýmist hálft
gjald eða ekkert.
Sagði Guðmundur að eitt
væri þó víst, að aldrei áður í
sögu baðhússins hefði annar
eins íjöldi komið þangað á
einum degi. Undir það getur
blaðamaður tekið því bíla-
iestin náði niður undir hótel-
ið, þ.e. lest bíla sem lagt var
við iónið. Sama var hvert
augum var beint á sjálfu
svæðinu, alls staðar var urm-
ull af fólki. Sést það best á
meðfylgjandi mynd Páls
Ketilssonar.
Vinnueítirlitið:
Alhliöa könnun
meðal starfsmanna
í Leifsstöð
Á vegum Vinnueftirlits
ríkisins hefur verið skipaður
fjögurra manna starfshópur
til að gera úttekt á Flugstöð
Leifs EiríkssonaráKeflavík-
urflugvelli. Hefur öllum
starfsmönnum er vinna í
húsinu verið sendur spurn-
ingalisti um ýmsa þætti.
Að sögn Gests Friðjóns-
’sonar hjá Vinnueftirlitinu á
Suðurnesjum er hér um al-
hliða könnun á vinnustaðn-
um að ræða en nicjurstöður
eru ekki væntanlegar nærri
strax. Ástæðan fyrir því að
ráðist var í þessa úttekt er sú
að mikið hefur verið um
kvartanir vegna aðbúnaðar I
Leifsstöð, en húsið hefur
aldrei verið tekið út sem slíkt
og því ekki komið í Ijós hvort
umræddar kvartapir hafi við
rök að styðjast.
Nú verður skorið úr því í
framhaldi af könnun þess-
ari. I
Fjarlægt á kostnað
eiganda
A mánudagsmorgun var
hafist handa við að fjarlægja
slysa- og brunagildruna neð-
an við Nýja bíó í Keflavík.
Voru notaðar til þess stór-
virkar vinnuvélar og ætti
,,húsið“ nú að vera horfið af
sjónarsviðinu.
Umrætt hús hefur verið
mikill þyrnir í augum ýmissa
yfirvalda að undanförnu
sökum ástands þess og hafði
eigandi fengið fjölmargar
ítrekanir um að láta fjarlægja
húsið en þvi var ekki sinnt.
Það var þvi nú eftir helgina
sem hafist var handa við að
fjarlægja húsið á kostnað eig-
anda.
Stórvirk grafa brýtur slysa- og brunagildruna bak við Nýja bíó
niður á mánudagsmorgun. Ljósm.: hbb
Vikurfréttir
5. sept. 1989 13
1200 manns í Bláa lóninu þarsíðasta laugardag.
Ljósm.: pket.
ER BUIÐ AÐ OPNA!
BREKKUSTÍG 39 - SÍMI 14828
OPNUNARTÍMI: Leiðbeinandi í þrektækjasal er Ingvar
Mánudaga-föstudaga kl. 16-22 Guðmundsson. Erobikkleiðbeinendur
Laugardaga kl. 10-16. eru Berta Guðjónsdóttir og Hulda
Sunnudaga LOKAÐ. Lárusdóttir.