Morgunblaðið - 08.12.2015, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
Tækni í þína þágu
hitataekni.is
Bjóðum upp á fjölbreyttan
búnað svo sem loftræsingar,
hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi
sem og stjórnbúnað
og stýringar.
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Öllum heiðum og fjallvegum var lokað eftir hádegið í gær
vegna veðurhamsins sem von var á. Að sögn G. Péturs
Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er
þetta í fyrsta skipti sem öllum heiðum og fjallvegum er
lokað á landinu á sama tíma.
Fyrstu lokanir hófust strax á hádegi í gær en þá var
vegum á Suðurlandi um Jökulsárlón, Mýrdalssand og
Hvolsvöll lokað. Í heild náðu lokanir Vegagerðarinnar til
46 vega um allt land og þ.á m. var öllum vegum á um 600
km kafla, frá Hvolsvelli til Reyðarfjarðar, lokað.
Samkvæmt áætlun átti síðast að loka veginum undir
Hafnarfjalli klukkan 21 í gærkvöldi. „Við höfum ekki haft
þennan háttinn á áður. Þetta er stór hluti vegakerfisins,“
segir G. Pétur. Hann segir að auk viðbragða við slæmri
spá hafi Vegagerðin verið að prófa nýtt verklag sem miðar
að því að grípa inn í atburðarásina áður en fólk lendir í
sjálfheldu. „Við settum upp hlið á fjallvegum í samráði við
lögreglu. Svo voru björgunarsveitir með viðbúnað á flest-
um veganna,“ segir G. Pétur. Samkvæmt áætlunum í gær
átti að opna flesta vegina strax í morgun. Holtavörðuheiði
og Þröskuldar verða opnuð síðast eða um klukkan 15.
Öllum heiðum og fjallveg-
um lokað í fyrsta skipti
Vegagerðin prófar sig
áfram með nýtt verklag
Morgunblaðið/RAX
Lokað Veginum yfir Hellisheiði var lokað í gær.
Óveðrið í byrjun febrúar 1991 hef-
ur verið borið saman við veðrið í
gærkvöldi og í nótt. Mikið tjón
varð þá í fárvirði um allt land, en
þá blés af suðvestri. Athygli vekur
að lítið var um varnaðarorð áður
en veðrið gekk inn yfir landið og
það var ekki fyrr en nokkrum
klukkustundum áður en stórviðrið
skall á að tölvuspár gáfu slíkt til
kynna.
„Tækninni hefur fleygt fram á
síðasta aldarfjórðungi og menn
missa ekki lengur af svona bombu-
lægðum,“ segir Einar Sveinbjörns-
son. „Þá voru tölvuspárnar ófull-
komnari og gisnari en núna og
misstu hreinlega af örri dýpkun
lægða. Ég reiði mig mikið á spár
Evrópsku reiknimiðstöðvarinnar
og óvissan nú orðið snýst helst um
dýpt lægðanna og nákvæma stefnu
fremur en hvort þær myndist yfir
höfuð eins og ég man vel frá
1991.“
Gífurlegt eignatjón
varð víða um land
Vonda veðrið sunnudaginn 3.
febrúar 1991 olli miklu tjóni og í
frásögn á forsíðu Morgunblaðsins
þriðjudaginn 5. febrúar segir að
engin alvarleg slys hafi orðið á
fólki. Hins vegar hafi orðið gífur-
legt eignatjón á sunnan-, vestan-
og norðanverðu landinu í ein-
hverju mesta fárviðri sem gengið
hafi yfir landið í manna minnum.
Blaðamenn Morgunblaðsins og
fjöldi fréttaritara um land allt
fjölluðu um veðrið á tæplega 20
síðum í blaðinu og má lesa þar
kraftmiklar fyrirsagnir: Mesti
vindhraði sem mælst hefur á land-
inu; Óveðrið jafnaðist á við fellbyl-
inn Hugo; Hlöður fuku á haf út og
þakjárn fór af flestum bæjum;
Eins og spilastokkur á lofti; Flug-
skýlið splundraðist og fjórar flug-
vélar skemmdust; Gróður-
skemmdir þær mestu sem orðið
hafa í borginni; Æsilegt þakplötu-
kapphlaup; Lyftur út af spori og
allt á tjá og tundri; Rokstrókar
dönsuðu af öllum áttum um Poll-
inn …
Tæpast til frásagnar
Í blaðinu er sagt frá því að ný-
reist einbýlishús á Leifsstöðum í
Austur-Landeyjum hafi fokið. „Við
horfðum á húsið hreinlega eins og
springa í loft upp klukkan 15 mín-
útur fyrir tólf á sunnudaginn,“
sagði Eygló Birgisdóttir, húsfreyja
á Leifsstöðum, í samtali við frétta-
ritara.
Um viðlagasjóðshús var að
ræða, svokallað gámahús. Það var
nánast tilbúið og búið að flytja
þangað megnið af búslóðinni. „Við
þökkum bara guði fyrir að hafa
ekki verið flutt í húsið, þá værum
við líklegast ekki til frásagnar,“
sagði Eygló. aij@mbl.is
Lítið varað við
fárviðrinu fyrir
aldarfjórðungi
Tækninni hefur fleygt fram og menn
missa ekki af „svona bombulægðum“
Forsíða Í Morgunblaðinu 5. febrúar
1991 var fjallað var um óveðrið
sunnudaginn áður á hátt í 20 síðum.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk
Fárviðri Eygló Birgisdóttir á Leifs-
stöðum í Austur-Landeyjum við
þvottavél sem nýbúið var að kaupa,
en íbúðarhúsið sprakk í óveðrinu.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Mér finnst athyglisverðast við
þetta veður hvað lægðin dýpkaði
hratt og einnig hvað það ætlar að
verða hvasst um norðanvert landið
miðað við að það er austanátt,“
sagði Einar Sveinbjörnsson veður-
fræðingur í gær. Hann var þá önn-
um kafinn við að
spá í ofsaveðrið
eða fárviðrið sem
var um það bil að
skella á landinu
öllu.
Reiknað var
með að austan-
veðrið gengi nið-
ur er liði á nótt-
ina, en Einar
varaði við vatns-
veðri á höfuð-
borgarsvæðinu undir morgun og
fram eftir degi. „Þegar lægðasn-
úðurinn kemur upp að suðvestan-
verðu landinu á þriðjudagsmorgni
með suðaustan- og sunnanátt, sem
eru almennt miklu opnari vindáttir
á höfuðborgarsvæðinu, verður
kominn fimm stiga hiti með tals-
verðri rigningu. Það verður hvasst
og í hlákunni leysir snjó og klaka
þannig að mikið vatn verður á ferð-
inni,“ segir Einar.
Aðalvindröstin oft suður af
landinu eða í Grænlandshafi
Hann segir að stundum geri
óveður eins og í gærkvöldi á hafinu
sunnan við landið og oft sé að-
alvindröstin á Grænlandssundi. Nú
hitti óveðrið hins vegar nákvæm-
lega á Ísland. En hvað veldur veðri
eins og í gærkvöldi og í nótt?
„Þegar hlýtt og kalt loft mætast
fellur þrýstingur og þannig verða
til lægðir. Þegar mikill hitamunur
er á loftmössunum og ef skilyrði
eru hagstæð í háloftunum til
myndunar lægða, ef til dæmis er
ákveðin sveigja í háloftavindinum,
þá verða til mjög djúpar lægðir.
Þannig jafnast hitamunurinn út
sem er á milli heittempruðu svæð-
anna í suðri og heimskautaloftsins
með hvössum vindi. Þessi lægð
verður mjög djúp eða 945 millibör
upp úr miðnætti samkvæmt spám,“
sagði Einar í gær.
Hann segir að þessu til viðbótar
haldi hæð fyrir norðan land af
krafti á móti lægðinni og við það
verði til sérlega mikil vindröst af
austri yfir landinu. „Við erum mjög
vön því að sjá austanveður með
suðurströndinni og á Suðaustur-
landi, en núna horfum við upp á að
þessi mikla austanvindröst er ekk-
ert síður yfir Norðurlandi en Suð-
urlandi.“
Sviptivindar í miklu roki
Einar segir að víða á Norður-
landi sé ágætis skjól í austanátt
undir háum fjöllum. Núna átti
hann hins vegar von á því að vind-
urinn yrði svo hvass að það myndi
slá niður bylgjum eða sviptivindum
á stöðum sem alla jafna væru í
skjóli. Hann nefndi meðal annars
Siglufjörð, ákveðin svæði í Eyja-
firði og Blönduhlíð í Skagafirði.
Núna hitti óveðrið
nákvæmlega á landið
Mjög djúpar lægðir myndast þegar mikill munur er á heit-
um og köldum loftmassa og við tiltekin skilyrði í háloftunum
Einar
Sveinbjörnsson
Morgunblaðið/Eva Björk
Breytingar Með hláku og rigningu
leysir snjó og klaka í borginni.
Mynd/Veðurstofu Íslands - ECMWF
Kort Á miðnætti í nótt átti staðan að vera svona: Lægð við Reykjanesi á norðurleið og ofsinn átti að vera í hámarki.