Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Kerrur
frá Ifor Williams
í öllum stærðum
og útfærslum
Laugavegur 59, 2. hæð • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 12
-16
Jólagjafir fyrir
þá sem prjóna,
hekla, sauma út...
Á Íslandi er kvartað yfir „fjór-flokknum.“ Þreytt klisja það.
Vandinn er sá að á Íslandi er nú bara
einn flokkur, Stjórnmálaflokkurinn.
Fátt er því um frumlegar hugmyndir
á borð við þessa sem mbl.is sagði frá:
Stjórnvöld í Finnlandi hafa tekiðtil skoðunar tillögu um að öllum
fullorðnum þegnum landsins verði
greiddar 800 evrur á mánuði úr rík-
issjóði skattlaust eða sem nemur um
113 þúsund krónum. Á móti verði all-
ar félagslegar bætur lagðar af í land-
inu.
Fram kemur á fréttavef breskadagblaðsins Daily Telegraph að
tillagan hafi verið samin af finnsku
tryggingastofnuninni og málið njóti
meðal annars stuðnings forsætisráð-
herrans Juhas Sipila.
Verði greiðslurnar að veruleikaskerðist þær ekki vegna ann-
arra tekna. Hugmyndin með tillög-
unni er að hún verði til þess að
hvetja fólk til þess að vinna en at-
vinnuleysi er um 10% í Finnlandi og
enn hærra á meðal ungs fólks eða
22,7%.
Ennfremur segir í fréttinni aðsamkvæmt skoðanakönnunum
styðji 69% Finna hugmyndina. Gagn-
rýnendur tillögunnar segja að hún
yrði til þess að draga úr hvatanum til
að vinna. Stuðningsmenn vísa til
fyrri tilrauna sem hafi gefið góða
raun.
Haft er eftir Sipila að fyrir hon-um snúist málið um að einfalda
almannatryggingakerfið. Þá segir
að stjórnvöld í Sviss séu einnig að
íhuga að koma á slíku fyrirkomu-
lagi.“
Úr viðjum vanans
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 7.12., kl. 18.00
Reykjavík 4 alskýjað
Bolungarvík 2 alskýjað
Akureyri 1 alskýjað
Nuuk -8 snjóél
Þórshöfn 6 súld
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 heiðskírt
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 6 léttskýjað
Lúxemborg 9 skýjað
Brussel 11 heiðskírt
Dublin 13 skúrir
Glasgow 12 skúrir
London 12 heiðskírt
París 12 heiðskírt
Amsterdam 11 heiðskírt
Hamborg 8 þoka
Berlín 11 skýjað
Vín 2 þoka
Moskva 6 skýjað
Algarve 17 skýjað
Madríd 11 heiðskírt
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 12 heiðskírt
Aþena 11 heiðskírt
Winnipeg -2 léttskýjað
Montreal 2 alskýjað
New York 9 léttskýjað
Chicago 2 þoka
Orlando 17 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
8. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:03 15:37
ÍSAFJÖRÐUR 11:44 15:06
SIGLUFJÖRÐUR 11:28 14:48
DJÚPIVOGUR 10:41 14:58
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Dansparið og hjónin Hanna Rún
Bazev Óladóttir og Nikita Bazev frá
dansdeild HK lentu í fjórða sæti á al-
þjóðlegu móti á heimsbikarmeist-
aramóti Alþjóðadansíþrótta-
sambandsins í latindönsum um
síðustu helgi. Hanna Rún segir þetta
besta árangur Íslendinga sem náðst
hafi í flokki fullorðinna og nærvera
sonarins, Vladimirs Óla, sem er tæp-
lega eins og hálfs árs, hafi hvatt þau
til dáða.
Á mótinu kepptu 36 pör og voru
þau Hanna Rún og Nikita fulltrúar
Íslands þar sem þau eru bæði Ís-
lands- og bikarmeistarar. Það var
haldið í borginni Wetzlar í Þýska-
landi, sem er um tveggja tíma akstur
frá heimili hjónanna í bænum Bad
Rappenau í Suður-Þýskalandi, en
þar hafa þau verið búsett undan-
farna þrjá mánuði. Að sögn Hönnu
Rúnar var ein ástæða flutninganna
sú að þaðan er auðveldara að komast
á alþjóðleg mót, enda hafa þau keppt
um hverja helgi síðan þau fluttu út
og æfa undir handleiðslu þýsks
þjálfara. „Þetta er mikil vinna,“ seg-
ir Hanna Rún, sem segir þrotlausar
æfingar þeirra hafa skilað sér og þau
séu nú komin í 51. sæti á heimslist-
anum í latindönsum.
Nutu þess að dansa saman
Samkeppnin á mótinu var hörð,
segir Hanna Rún. „Þegar við mætt-
um á mótið og fórum að kíkja á
keppinautana, sem margir eru mjög
góðir, settum við okkur það mark-
mið að vera meðal sex efstu, að kom-
ast í lokahópinn. Áður en við fórum
út á gólf ákváðum við að hugsa um
að njóta þess að dansa saman, að
dansa fyrir áhorfendur. Vladimir Óli
var á staðnum í fanginu á vinafólki
okkar og það gaf okkur svo mikið að
vita af honum.“
Hanna Rún segir þau Nikita ekki
vera atvinnufólk í þeim skilningi að
þau fái greitt fyrir að dansa. Án
stuðnings frá fjölskyldum þeirra
beggja hefðu þau aldrei getað náð
þessum árangri, en markið er sett
hærra og framundan eru mörg stór-
mót. „Við stefnum á að komast á
toppinn og að geta starfað við
kennslu og sýningar.“
Dansarar Hanna Rún, Nikita og Vladimir Óli að lokinni keppni um helgina.
Stefnum á toppinn
Hanna Rún og Nikita í 4. sæti á HM
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/