Morgunblaðið - 08.12.2015, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 08.12.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015 SMÁRALIND • 2 HÆÐ SÍMI 571 3210 Dömukuldaskór Verð 14.995 Stærðir 36-42 Gæða kuldaskór -Mjúkt leður -Loðfóður -Stamur sóli (anti-slippery) Mokkajakkar - Fatnaður Leðurjakkar Loðskinnskragar og loðskinnsvesti Tryggvagötu 18 - 552 0160 Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Túnika Verð 5.900 Str. s-xxlFleiri litir Laugavegi 63 • S: 551 4422 Peysuúrval - Blúndublússur Sparibolir - Loðskinnskragar Kasmírtreflar - Hanskar Gjafakort o.m.fl. Gjafainnpökkun Vandaðar jólagjafir konunnar Vertu vinur á Laufey Rún Ketilsdóttir laufey@mbl.is „Við erum að stoppa í þetta gat enda eina svæðið á milli Ægisgötu, Suðurgötu og Rauðarárstígs sem ekki er gjaldskylt,“ segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs Reykjavíkur, um svæðið neðan við Hverfisgötu, þ.e. Lindargötu og Skúlagötu, sem nú verður gert gjaldskylt fyrir bíla. Íbúar svæðisins hafa verið upp- lýstir um yfirvofandi breytingar en nýja svæðið mun skiptast í gjald- svæði 2, þar sem klukkutíminn kost- ar 125 kr., og gjaldsvæði 3, þar sem 85 kr. eru greiddar fyrir fyrsta og annan klukkutímann en 20 kr. fyrir klukkutímann eftir það. Óvissu á svæðinu lokið „Ástæðan er að uppbyggingin á svæðinu er mjög langt komin og bú- ið að skilgreina hvar verða ný hús, hvar ný bílastæði koma og hversu mörg þau verða,“ segir Kolbrún. Íbúar nýju háhýsanna neðan við Hverfisgötuna verða síst varir við þessa breytingu því með hverri íbúð fylgdu 1-2 stæði í bílakjallara. Hins vegar munu þeir íbúar sem eru með lögheimili við götu þar sem bílastæði eru gjaldskyld og eru ekki með bílastæði á lóð sinni eiga þess kost að sækja um bílastæðakort íbúa. Þau veita heimild til að leggja einni bifreið án endurgjalds í gjald- skyld bílastæði innan tiltekins svæðis, eins og fram kemur í reglum Bílastæðasjóðs. „Ég á ekki von á því að umsóknir um íbúakortin aukist sérstaklega,“ segir hún en flestir þeirra íbúa sem þau þurfa séu þegar komnir með þau og hafi hingað til mikið lagt á öðrum gjaldskyldum svæðum innan hverfisins vegna ágangs gesta í ókeypis stæðin. Fleiri staðir seldir undir gjald Þá hefur Bílastæðasjóður einnig látið íbúa við Brautarholt og Brá- vallagötu og nágrenni vita um yf- irvofandi gjaldskyldu í þeirra hverfi. Munu nýju svæðin verða á gjaldsvæði 2. „Þetta kemur í kjöl- farið á íbúasamráði og öðru sem umhverfis- og skipulagsráð hefur staðið fyrir frá því að uppbygging hófst í hverfinu,“ segir Kolbrún en fjöldi íbúða er nú í byggingu í ná- grenni Brautarholts, þar á meðal stúdentaíbúðir. Við Brávallagötuna hafa borist margar kvartanir frá íbúum og lög- regluyfirvöldum vegna mikilla þrengsla á svæðinu vegna bíla sem leggja illa og skaga út í götuna. Stoppað í göt gjaldskyldra bílastæða í Reykjavíkurborg  Gjaldskyldum svæðum í Reykjavík fjölgar  Mikil uppbygging nýrra íbúða Blátt = Nýtt gjaldsvæði (P2) Rautt= Nýtt gjaldsvæði (P3) Ný gjaldskyld bílastæði í Reykjavík Brávallagata Skúlagata Skúlagata Lindargata Lindargata Mjölnisholt Brautarholt Ásholt Stúfholt Stórholt Traðarholt Veghúsastígur Ljósvallagata Laugavegur Skipholt Sæb raut Sn or ra br au t Hringbraut Aflaheimildir Íslands í kolmunna á næsta ári verða 125.984 tonn, sam- kvæmt ákvörðun Sigurðar Inga Jó- hannssonar sjávarútvegsráðherra. Í tilkynningu segir að þessi ákvörð- un sé í samræmi við hlutdeild Ís- lands samkvæmt eldri samningi strandríkjanna: Íslands, Evrópu- sambandsins, Noregs og Færeyja frá árinu 2006, sem auk þess gerir ráð fyrir ákveðnum hlut til Rúss- lands og Grænlands sem úthafs- veiðiþjóða. Ákvörðunin sé enn- fremur í samræmi við 776.391 tonns ráðgjöf Alþjóðahafrann- sóknaráðsins (ICES) fyrir árið 2016. Eins og stendur er ekkert sam- komulag á milli strandríkjanna, hvorki um heildarafla ársins 2016 né um skiptingu hans milli þjóð- anna. „Þessi ákvörðun er því tekin í trausti þess að aðrar þjóðir virði ráðgjöf ICES og samkomulagið frá árinu 2006 á meðan unnið er að lausn deilumála sem lúta að skipt- ingu kolmunnastofnsins,“ segir í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu. Ekkert samkomulag og ráðherra ákveður 126 þúsund tonna kolmunnaafla - með morgunkaffinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.