Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015 gefðu Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogur, sími 577 6000, garmin.is GPS úr á hendi sem er fullkomið í útivistina, þríþraut, á skíði eða aðrar íþróttir sem gerir það einstakt með sinni glæsilegu hönnun. Fenix 3 er einnig snjallúr sem upplýsir þig um hver er að hringja, sérð skilaboð og aðrar tilkynningar frá símanum án þess að fálma eftir honum í vasan. Með Garmin Connect fylgist þú með árangrinum, sækir ný forrit fyrir úrið eða klukkuskífur. Fenix 3 er úrið fyrir kröfuharða íþróttamenn, útivistarfólk og alla sem líkar vandað og fallegt úr. Farðu skrefinu lengra með Fenix Sama hver takmörk þín eru, farðu skrefinu lengra með Fenix 3 snjallúrinu frá Garmin Verð frá 74.900 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samið hefur verið um stækkun Hót- els Selfoss. Framkvæmdir eru hafn- ar en byggð verður fjórða hæð ofan á syðri álmu hótelsins. Við það fjölg- ar herbergjum úr 99 í 127. Til saman- burðar eru 85 herbergi á Hótel Örk í Hveragerði og 122 herbergi á Stracta Hotel Hella. Fjórða hæðin hefur verið teikn- uð inn á ljós- myndina hér til hliðar og er hún til hægri á mynd- inni. Nýja álman snýr að Selfoss- kirkju til suðurs og þaðan verður út- sýni yfir Ölfusá til vesturs. Ragnar Jóhann Bogason, fram- kvæmdastjóri Hótels Selfoss, segir eigendur hótelsins sjá mikil tæki- færi til vaxtar. Bókunarhlutfall her- bergja fari hækkandi með hverju árinu. Næsta ár líti mjög vel út. 97% herbergjanna bókuð í júlí Ragnar Jóhann segir bókunar- hlutfallið hafa verið 85-97% í júní til september í ár. Það var 97% í júlí og segir hann erfitt að fara hærra. „Það er í raun orðin 100% nýting. Það er tæplega hægt að vera með 100% nýtingu. Við fáum svo mikið af hópum til okkar og alltaf er inn á milli einn og einn dagur með minni nýtingu. Ef nýtingin er orðin 100% lendir maður í að vera með yfirbók- að og það er ekki æskilegt,“ segir Ragnar Jóhann. Haustmánuðirnir eru líka að styrkjast í rekstrinum. Milli 50 og 60% herbergja voru bókuð í október og nóvember. Þá er útlit fyrir að hlutfallið verði um 40% um jólin og áramótin og yfir 60% í febrúar og mars á nýju ári. „Apríl og maí eru mánuðir sem við þurfum að vinna vel í en nýting á hótelum á Suður- landi hefur þá ekki verið nógu góð,“ segir Ragnar Jóhann um árssveifl- una. Geta haft hundruð manna í mat Ragnar Jóhann segir aðspurður að ekki þurfi að fjölga starfsfólki mikið vegna þessarar stækkunar. Þá muni núverandi veitingastaður, sem tekur 200-250 manns í sæti, vel geta annað aukinni eftirspurn. Að auki sé hótelið með funda- og veislusali sem taka yfir 400 manns í sæti. Bílastæði og aðrir innviðir hótelsins séu vel búnir undir að taka við fleiri gestum. Ragnar Jóhann segir fjárfest- inguna munu skila góðri arðsemi. „Ferðaþjónustan er að styrkjast utan höfuðborgarsvæðisins. Það eru margir áhugaverðir staðir á Suður- landi sem alltof fáir vita um. Það gæti skapað mikil tækifæri. Þá eru hugmyndir um nýjan miðbæ á Sel- fossi afar áhugaverðar. Það yrði líka aðdráttarafl,“ segir Ragnar Jóhann. Hann segir aðspurður að styrking krónunnar – evran kostaði 154 krón- ur í ársbyrjun en kostar nú 140 krónur – hafi haft óveruleg áhrif á neyslu ferðamanna. Neyslumynstrið sé mismunandi eftir þjóðerni. „Asíubúarnir eyða yfirleitt ekki miklu fyrir utan ferðina sjálfa. Þeir eru búnir að kaupa matinn og ferð- ina fyrirfram. Bandaríkjamenn, Bretar og Þjóðverjar eyða hins veg- ar meira í aðra hluti,“ segir Ragnar Jóhann og bendir á að bandaríkja- dalur sé nú sterkur gagnvart krón- unni. Þess má geta að nú munar litlu á gengi krónu gagnvart evru og bandaríkjadal. Evran kostar sem fyrr segir um 140 krónur en dal- urinn kostar nú um 130 krónur. Teikning/Arkís/Birt með leyfi Hótel Selfoss Fjórða hæðin hefur hér verið teiknuð á álmuna sem er til hægri á myndinni. Teikning/Arkís/Birt með leyfi Eftir stækkun Á fjórðu hæðinni verða stærri gluggar með góðu útsýni. Byggja við Hótel Selfoss  Herbergjum fjölgar úr 99 í 127  Fjórða hæð byggð ofan á suðurálmu Ragnar J. Bogason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.