Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 08.12.2015, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015 Mér hlýnaði um hjartaræturnar sem áhugamanni um ís- lenskt mál þegar ég sá að á degi íslenskrar tungu var haft eftir þeim Mörtu Guðjóns- dóttur, formanni nefnd- ar um íslenskuverðlaun unga fólksins, og Vig- dísi Finnbogadóttur, fv. forseta Íslands, það vit- urlegasta sem ég hef séð hingað til um t.d. læsi. Töluðu þær fyrir því að hefja lestrarkennslu strax í leikskólunum. Að mínum dómi er furðulegt í allri umræðunni um læsi að öllum sjálfskipuðu „spekingunum“ og jafnvel kennurum skyldi aldrei detta í hug þessi gamla góða aðferð sem smá- barnaskólarnir voru og leikskólarnir geta nú komið í staðinn fyrir ein- mitt til að kenna börnum að lesa og búa þau þann- ig undir frekari skóla- göngu og lífið. Ég get t.d. getið þess að í gamla daga, þegar ég byrjaði í 1. bekk í barnaskóla og kom þá úr smábarnaskóla, las ég 175 atkvæði, sem þótti bara alveg þokkalegt, en þetta var nú útúrdúr. Ekki einu sinni menntamála- ráðherra hefur tjáð sig um þetta mál að mér vitandi. E.t.v. finnst þessum spekingum þessi aðferð við lestrarkennslu of gamaldags þótt hún sannanlega beri góðan árang- ur, enda sú kynslóð, sem uppi var á fyrrgreindum tímum, fluglæs í dag og hefur alltaf verið en á meðan eru unglingar og hálfstálpað fólk í stórum stíl sem ekki getur lesið sér til gagns. Í stað þess að hugsa rökrétt um þetta mál er stórt áhugamál hjá spekingunum arfavitlaus einkunna- gjöf í bókstöfum, sem að engu gagni kemur nema skapa leiðindi og vitleysu því nokkuð öruggt er að einkunnagjafir í tölustöfum eru börnum og unglingum langtum meira til örvunar og metnaðar. Það segir sig sjálft. Öll þessi umræða sjálfskipaðra spekinga minnir óneit- anlega á þegar mengjavitleysan í stærðfræði var öpuð upp eftir Sví- um hér um árið og átti þetta að verða til að bjarga allri stærðfræði- kennslu í skólum landsins en reynslan varð sú að jafnvel kenn- ararnir botnuðu hvorki upp né nið- ur í herlegheitunum. Ekki er öll vitleysan eins. Læsi myndi svo sannarlega batna að miklum mun ef menntamálaráðherra og þeir sem ráða ferð bæru nú gæfu til að fara eftir því sem fyrrgreindar konur, þær Marta Guðjónsdóttir og Vigdís Finnbogadóttir, eru að benda á, því lengi býr að fyrstu gerð, svo sannarlega. Eins myndu enskuslett- urnar í íslensku máli e.t.v. minnka, því staðreynd er að fjöldi foreldra má ekki vera að því að kenna börn- um sínum að lesa. Ég læt ósagt af hverju. Íslensk tunga og læsi Eftir Hjörleif Hallgríms » Skilyrðislaust verður að kenna börnum að lesa strax í leikskólum því lengi býr að fyrstu gerð. Hjörleifur Hallgríms Höfundur er eldri borgari á Akureyri. Á dimmum dögum þegar heim þig sækir súld og sorg, kvíði eða vanlíðan, angist eða ótti. Þá er gott að eiga samtal við einhvern sem þú treystir og kann að hlusta. Því það er svo gott að finna samstöðuna og skiln- inginn og þiggja um- hyggjuna og uppörv- unina. Þá er ekkert betra en að láta biðja fyrir sér. Því bænin færir sálinni fró og frið. Hún stillir kvíða, losar streitu og er besta áfallahjálpin. Kuldi og trekkur Þótt á móti blási og kuldi og trekk- ur taki völdin um stund svo það næði um. Hafðu þá hugfast að það mun birta til og vora á ný. Því er svo gríð- arlega mikilvægt að vera með vorið vistað í sálinni, sólina og eilíft sumar í hjarta. Ekki feiminn við framtíðina Vertu ekki feiminn við framtíðina. Hafðu hugrekki til að stíga inn í hana. Og láttu muna um þig. Því hamingjan þarf á þér að halda. Hamingjan felst nefnilega einfald- lega í því að leitast við að lifa í kær- leika, friði og sátt við Guð og menn. Í þakklæti með fyrirgefandi hugarfari. Með því að gefa af sér, vilja læra að taka á móti í vanmætti og þiggja. Hún kemur með jákvæðu hugarfari, auð- mýkt, von og trú á lífið. Þannig og að- eins þannig náum við áttum og sáttum við okkur sjálf. Stöndum svo saman í bæn Ekkert er fallegra en að sameina ólíka hugi um margt í einlægri bæn fyrir meðbræðrum okkar og systrum og leitast síðan við að lifa í kærleika og sátt. Bænin eykur orku og léttir lund. Hún veldur vellíðan og unaði svo maður fyllist öryggistilfinningu, þakk- læti og gleði. Jafnvel í gegnum tárin. Bænin treystir og eflir vináttubönd, eykur skiln- ing og minnkar fordóma. Hún fær okkur til að staldra við, standa sam- an, þótt ólík séum og með misjafnar skoðanir á svo mörgu en líklega svip- aðar grunnþrár og -þarf- ir svona þegar allt kemur til alls. Biðjum því hvert fyrir öðru! Það mildar sjónarhorn okkar á menn og málefni og færir okkur nær hvert öðru. Biðjum því daglega saman fyrir þeim sem nýlega eða einhvern tíma hafa misst og vita því af eigin raun hvað það er að syrgja og sakna. Biðjum einnig fyrir þeim sem orðið hafa fyrir hvers kyns vonbrigðum eða upplifað áföll og gengið í gegnum erf- iða tíma. Og biðjum svo ekki síst bara fyrir þeim sem daglega ganga til sinna hversdagslegu verka og heyja þannig sína stöðugu og oft hörðu lífsbaráttu. Og gleymum ekki þeim sem sæta kúg- un og ofbeldi, eru heimilislausir og á flótta. Já og svo bara öllum þeim sem elska lífið, þrá að höndla það, fá að halda í það og njóta þess. Með friðar- og kærleikskveðju. Lifi lífið! Á dimmum dögum Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Bænin færir sálinni fró og frið. Hún still- ir kvíða og losar streitu. Þá er gott er að vera með vorið vistað í sál- inni, sólina og eilíft sum- ar í hjarta Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Föstudaginn 27. nóvember var spilaður Mitchell tvímenningur með þátttöku 26 para. Efstu pör í N/S (% skor): Erla Sigurjónsd. - Jóhann Benediktss. 64,5 Ragnar Jónsson - Vigdís Sigurjónsd. 58,4 Örn Einarss. - Guðlaugur Ellertss. 58,4 Örn Isebarn - Birgir Sigurðsson 57,3 Bjarni Þórarinss. - Magnús Jónss. 53,0 A-V Sigtryggur Jónss. - Höskuldur Jónss. 59,5 Auðunn. Guðmss. - Guðm. Sigursteinss. 56,9 Sigfús Skúlason - Óskar Ólafsson 56,2 Því miður féll spilamennska nið- ur þriðjudaginn 1. desember vegna ófærðar. Föstudaginn 4. desember var spilað á 10 borðum. Efstu pör í N/S: Ragnar Jónsson - Lúðvík Ólafsson 67,8 Örn Einarss. - Guðlaugur Ellertsson 65,0 Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnss. 55,2 A-V Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 61,1 Ágúst Stefánsson - Helgi Einarsson 58,8 Sigfús Skúlason - Óskar Ólafsson 55,5 Síðasti spiladagur fyrir áramót er föstudagurinn 18. desember BFEH spilar á þriðjudögum og föstudögum í Hraunholti, Flata- hrauni 3. Spilamennska byrjar kl. 13. Keppnisstjóri er Sveinn R. Ei- ríksson og er hjálpað til við mynd- un para fyrir staka spilara. Allir spilarar, vanir sem óvanir, eru velkomnir og er tekið vel á móti öllum. Sveit Péturs Gíslasonar Kópavogsmeistari 2015 Aðalsveitakeppni Bridsfélags Kópavogs lauk sl. fimmtudag. Lokastaðan: Pétur Gíslason 166,74 2. Vigfús Pálsson 140,48 Bingi og feðgarnir 130,37 Bergsteinn 118,53 Þórður Jörundsson 108,15 Fimmtudagana 10. og 17. des. verður spilaður tveggja kvölda jólatvímenningur. AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. • Bílson hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi auk starfsleyfis til endurskoðunar frá Samgöngustofu. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - www.danco.is Heildsöludreifing Járn ljós 23x25 cm Loftljós, kopar 30 cm Kerti 13x15 cm Postulínslampi 24 cm Stjakar 3 teg. 9 cm Hreind. haus fyrir kerti 31 cm Púði 40x40 cm Teppi 130x150 cm Kertaglös 7x8 cm Fyrirtæki - Verslanir Starfsmannagjafir Púði 30x50 cm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.