Morgunblaðið - 08.12.2015, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þér líður eins og tilfinningarnar ætli
að kaffæra þig. Snjóskaflar sálarinnar eru
síður en svo ókleifir. Vertu opinn fyrir öllum
möguleikum til að komast að því.
20. apríl - 20. maí
Naut Þegar þú heyrir eitthvað sem þér líkar
ekki, gerðu þá eins og franska tónskáldið Flo-
rent Schmitt gerir – hlustaðu á það nánar.
Reyndu að gera sem mest úr þessu því þann-
ig líður manni best.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhverjar breytingar eru yfirvof-
andi og valda þér hugarangri. Fjölskyldu-
drama á sér hættulega undiröldu og hol-
skeflan sem fylgir á eftir getur auðveldlega
sópað burt öllu sem áður var.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Bjartsýni þín leiðir þig langt og þegar
sá gállinn er á þér ertu hvers manns hugljúfi
og samstarfsmenn þínir njóta einnig góðs af.
Brettið bara upp ermarnar og gangið í málin
því hálfnað er verk þá hafið er.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Athafnasemi og bjartsýni eru þér nauð-
synleg. Ef maður heldur að hún eigi eftir að
meiða mann, gerir hún það líklega.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er nauðsynlegt að huga að hverju
smáatriði ef heildarútkoman á að vera rétt.
Dagurinn í dag er góður til þess.
23. sept. - 22. okt.
Vog Viðkvæmni gerir vart við sig í nánu sam-
bandi í dag. Vertu lítillátur og láttu ekki
drambsemi ná tökum á þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Lausn mála er nær en þú heldur.
Kannski berast þér gjafir, hver veit, og ein-
hverjir finna sig knúna til greiðasemi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert nútímamanneskja á undan
þinni samtíð. Leggðu drög að litlu ævintýri og
komdu ástvini þínum á óvart. Vandinn er bara
að velja.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Að láta sér lynda við ástvinina er
hvorki erfitt né auðvelt. Forðastu ákvarðanir í
stórum málum og umfram allt reyndu að ná
jarðsambandi aftur.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er einhver sem er að þrýsta á
þig og vill fá þig til að gera hlut sem þér er
þvert um geð. Farðu þér hægt og berðu alla
kosti vandlega saman áður en þú velur.
Gleymdu ekki gleðinni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Samstarfsfólk styður þig í dag og
þess vegna gætir þú átt dásamlegan vinnu-
dag. Ef þig endilega langar að láta hlutina
flakka gerðu það þá í einrúmi.
Þessi staka Stefáns á Vallanesikom upp í hugann þegar ég
settist við tölvuna:
Ofan drífur snjó á snjó,
snjóar hylja flóató,
tófa krafsar móa mjó
mjóan hefur skó á kló.
Bólu-Hjálmar lék sér síðan með
þessi rímorð og hefur hringhent
og síðasta hendingin heldur sér:
Nógan gefur snjó á snjó,
snjóum vefur flóató,
tóa grefur móa mjó
mjóan hefur skó á kló.
Hjálmar Freysteinsson yrkir á
Boðnarmiði:
Veðráttan gengin er göflunum af
götunum skaflarnir loka.
Tvílyft hús eru komin í kaf,
ég kemst ekki út til að moka.
Ástu Sverrisdóttur leist ekki á
blikuna:
Máttu fresta mokstri enn?
Mikið þarf að skafa.
Er með veðrið, eins og menn,
„allt vill lagið hafa“!
Og Hallmundur Kristinsson
bætti við:
Búast skaltu fljótt til ferðar.
Fönnin má ei hamla þér.
Fáðu tól til gangagerðar;
göngin ein víst duga hér!
Nú rifjaðist það upp fyrir
Hjálmari Freysteinssyni að vísan
sem hann „setti hér inn áðan er
skuggalega lík annarri vísu:
Þegar snjóframleiðsla hófst í
Hlíðarfjalli fyrir mörgum árum,
brugðust veðurstjórnendur við
með því að tvöfalda eigin fram-
leiðslu. (Þannig bregðast einok-
unarfyrirtæki oft við nýrri sam-
kepni.)
Þá varð þetta til:
Allt er að ganga göflunum af
geggjast og fara af sporinu
snjógerðarvélin er komin í kaf
kannski hún finnist með vorinu.
Það telst varla alvarlegur
glæpur að stela vísum frá sjálfum
sér.“
Friðrik Steingrímsson hafði
áhyggjur á Leirnum:
Í ýmsu geta læknar lent
með lista feril kunnan,
nú er víst hjá frænda fennt
fyrir grenismunnann.
En á Grenivík sagði Björn Ing-
ólfsson:
Ég er ekkert að ganga af göflunum
yfir grimmdinni í náttúruöflunum,
því þó að sé kalt
er þrátt fyrir allt
notalegt skjólið af sköflunum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Það keyfir niður snjó
Í klípu
EFTIR AÐ HAFA UNNIÐ HJÁ HINU
OPINBERA MESTALLA STARFSÆVI SÍNA,
ÁTTI FRIÐFINNUR ERFITT MEÐ AÐ
AÐLAGAST EINKAGEIRANUM.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ALLIR Í HÚSINU LÖGÐU SAMAN Í
PÚKK. HÉRNA ER 20.000 KALL
FYRIR FIÐLUNA ÞÍNA.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að njóta stunda
saman sem fjölskylda.
ÉG VONA AÐ ÞAÐ
RIGNI EKKI
ÉG VONA AÐ VIÐ EIGUM
EKKI KARAMELLUNAMMI!
ÉG ER SVO
ÁNÆGÐUR MEÐ AÐ
ÉG TÓK KODDA
MEÐ MÉR Í ÞESSA
FÖR!
HANN ER
NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SEM
ÉG ÞARF TIL ÞESS AÐ
KOMAST Í GEGNUM
NÓTTINA!
ÉG LÍKA! MINN
ER FYLLTUR MEÐ
GÆSADÚN!
MINN ER FYLLTUR
MEÐ SNARLI!
ÚPS – SORRÍ,
STRÁKAR, ÉG VERÐ
MEÐ MINN
Á MORGUN.
Víkverji var viðstaddur jólahlað-borð að dönskum sið í bekk dótt-
ur sinnar um helgina. Þar tóku hönd-
um saman umsjónarkennarar,
nemendur og nokkrir foreldrar og
skelltu upp veislu, sem jafnframt var
fjáröflun fyrir útskriftarferð nem-
endanna.
x x x
Dönskukennari krakkanna sá tilþess að matseðill, söngtextar,
merkingar á hlaðborði og ýmsar aðr-
ar upplýsingar væru á dönsku. Dreg-
ið var í happdrætti og krakkarnir
lásu númerin fyrst upp á dönsku, og
síðan á íslensku. Virtist sem dönsku-
kunnátta fullorðinna veislugesta
væri farin að ryðga því yfirleitt urðu
engin viðbrögð vinningshafa fyrr en
tölurnar komu á íslensku.
x x x
Svona veisla hefði ekki orðið aðveruleika nema fyrir velvilja
nokkurra fyrirtækja sem lögðu til
hráefni. Öll gáfu þau hráefni utan eitt
sem seldi það á 50% afslætti. Ekki
skal efa að þegar nær dregur jólum
fjölgar fyrirspurnum og beiðnum til
fyrirtækja um styrk og aðstoð. Þessi
samkoma var áreiðanlega bara ein af
fjölmörgum sem treysta á velvilja
fyrirtækja.
x x x
Kennarar og foreldrar notuðu sínsambönd og tengslanet og þegar
upp var staðið var maturinn og með-
lætið í slíku magni að nokkur afgang-
ur var eftir veisluna. Vildu nemend-
urnir láta gott af sér leiða og gáfu
þau afgangsbirgðir til Konukots.
Ekkert fór því til spillis og eiga nem-
endurnir heiður skilinn fyrir fram-
takið. Unga kynslóðin er þá ekki svo
slæm eftir allt saman!
x x x
Að veislu lokinni héldu allir til sínsheima, sælir og saddir, og sumir
hlaðnir pökkum eftir happdrættið.
Víkverji var enn að æfa sig í að telja á
dönsku. Upprifjunin í útdrættinum
dugði þó varla á leiðarenda því Vík-
verji var þá búinn að gleyma þýð-
ingum eða rugla saman tugatölum
eins og halvtreds, tres, halvfjerds og
halvfems. Þetta er í lagi upp að 50 en
þá er eins fari að halla undan fæti,
líkt og í lífinu! víkverji@mbl.is
Víkverji
En ég segi yður: Elskið óvini yðar og
biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður.
Matt. 5:44
SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið
gefur út sérblað
um skóla og
námskeið
mánudaginn
4. janúar
Í blaðinu verður
fjallað um þá
fjölbreyttu flóru
sem í boði er fyrir
þá sem stefna á
frekara nám.
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, föstudaginn 18. desember